Fréttablaðið - 04.12.2009, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 04.12.2009, Blaðsíða 80
56 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Allt útlit er fyrir að Kristján Gauti Emilsson, sex- tán ára Hafnfirðingur, semji við enska úrvalsdeildarfélagið Liver- pool í næstu viku. Hann æfði með félaginu fyrr í mánuðinum og var í kjölfarið ákveðið að bjóða honum samning. „Það voru útsendarar frá Liver- pool sem sáu mig spila með lands- liðinu í sumar og var óskað eftir því að ég kæmi og æfði með félag- inu,“ segir Kristján Gauti í sam- tali við Fréttablaðið. „Ég dvaldi hjá Liverpool í viku og æfði með U-18 ára liðinu. Það gekk vel og þeir vildu fá mig.“ Kristján Gauti hefur vakið mikla athygli erlendra félaga að undanförnu. Hann fór til reynslu hjá bæði IFK Gautaborg í Svíþjóð og Glasgow Rangers í Skotlandi í haust og þá lýsti til að mynda Manchester United yfir áhuga á að fá hann til æfinga. Þrátt fyrir mikinn áhuga að utan segist Kristján Gauti ávallt hafa stefnt að því að spila með sínu uppeldisfélagi, FH, í nokkur ár til viðbótar. Hann spilaði þó með FH í sumar í þremur leikjum í Pepsi- deildinni. „En svo kom tilboð frá Liver- pool sem ég get ekki hafnað. Það er bara of ljúft,“ sagði hann og brosti. „Aðstæður hjá félaginu eru eins og best verður á kosið. Mitt helsta markmið hjá Liverpool verð- ur að bæta mig sem knattspyrnu- mann og þarna fæ ég gott tækfæri til þess. Þar gefst mér kostur til að æfa á hverjum degi við bestu mögulegu aðstæður.“ Kristján Gauti er þriðji Íslendingurinn sem semur við Liverpool. Haukur Ingi Guðnason fór fyrstur til félagsins árið 1997 og Guðlaugur Victor Pálsson hefur verið hjá Liverpool undanfarið ár. „Ég hitti hann reyndar ekki þegar ég var úti en ég hef talað við hann í síma,“ sagði Kristján Gauti um Guðlaug Victor. „Hann sagði að það væri frábært að vera þarna enda mjög gott félag. Það skemmir heldur ekki fyrir að vera með annan Íslending í félaginu.“ Kristján Gauti hefur alla tíð verið mikill stuðningsmaður Liverpool og hann neitar því ekki að hans draumur er að spila með liðinu á Anfield. „Fyrst og fremst stefni ég þó að því að bæta mig og vinna í því sem ég þarf að vinna í. Svo kannski kemst ég eitthvað lengra en tíminn verður bara að leiða það í ljós.“ Hann segir erfitt að yfirgefa Hafnarfjörðinn og ekki síst FH. „Það var líka alltaf draumur hjá mér að komast í meistaraflokk- inn hjá FH – fá að æfa með liðinu og komast í leikmannahópinn. En ég er líka mjög þakklátur félaginu enda er unglingastarfið mjög öfl- ugt hjá FH. Það er því að þakka að ég er orðinn svo góður leikmaður. Það verður auðvitað líka erfitt að fara frá vinum og fjölskyldu. En svona þróaðist þetta og ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu.“ Kristján Gauti hefur þó ekki áhyggjur af því að vera í kringum stórstjörnurnar hjá Liverpool. „Ætli maður venjist því ekki fyrir rest. Ég er allavega ekki hræddur við þá tilhugsun.“ eirikur@frettabladid.is Ekki hægt að hafna Liverpool Hinn sextán ára gamli Kristján Gauti Emilsson heldur til Englands í næstu viku þar sem hann mun væntanlega skrifa undir þriggja ára samning við Liverpool. Hann segir erfitt að þurfa að yfirgefa FH nú. KRISTJÁN GAUTI EMILSSON Gengur væntanlega frá þriggja ára samningi við Liverpool í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Arnór Smárason hefur nú verið frá vegna meiðsla í tæpt hálft ár en hann þurfti að fara í tvær aðgerðir í sumar. Hann fann fyrst fyrir eymslum í vöðva aftan í læri í landsleik Íslands og Makedóníu í byrjun júní síðastliðins og segir hann að það hafi svo farið stigversnandi. „Það versta við þetta er að menn vita ekki almennilega hvernig meiðsli þetta eru nákvæm- lega,“ sagði Arnór við Fréttablaðið í gær. Í fyrri uppskurðinum kom í ljós líklega með- fæddur galli sem gerði það að verkum að ákveðið var að hin löppin yrði einnig löguð. „Þessir uppskurðir heppnuðust vel en batinn gengur voða- lega hægt. Það hefur ýmislegt annað verið að hrjá mig en ég er nú að vinna í því á fullu að ná mér góðum.“ Óhætt er að segja að Arnór liggi ekki allan daginn uppi í sófa með tærnar upp í loftið. „Ég þarf að mæta tvisvar í endurhæfingu á dag, fimm daga vikunnar. Ég þarf að hjóla og styrkja mig enda nauðsynlegt fyrir mig að halda mér í góðu formi. Enda held ég að líkaminn sé í ágætu standi. Þegar ég verð loksins búinn að losna við þessi meiðsli verð ég bara klár í slaginn.“ Arnór segir að hann hafi fengið þau skilaboð frá sínum lækn- um að sennilega gæti hann byrjað að æfa upp úr áramótum. „En það er ekkert víst í þeim efnum. Ég get lítið annað gert en að halda áfram og vona það besta.“ Hann segir að hann hafi fundið fyrir litlum bata til þessa. „Voðalega litlum og þetta virðist gerast hægt,“ segir hann. „Ég er opinn fyrir hverju sem er og núna hef ég verið að prófa nálastungumeðferð. Það er því ýmislegt gert.“ Hið svokallaða legkökunudd hefur vakið mikla athygli en margir þekktustu leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar hafa leitað til serbnesku konunnar sem hefur beitt þeirri meðferð með góðum árangri. „Ég held bara að það sé það næsta sem maður þarf að prófa,“ sagði hann og hló. „Það virðist þó virka ágætlega en ég er til í allt sem gæti hjálpað manni. Ég er ekki búinn að snerta bolta í hálft ár og er orðinn verulega pirraður á þessu ástandi.“ ARNÓR SMÁRASON: HEFUR VERIÐ FRÁ VEGNA MEIÐSLA Í TÆPT HÁLFT ÁR Jafnvel kemur til greina að fara í legkökunudd FÓTBOLTI Það styttist óðum í heims- meistarakeppnina í Suður-Afríku sem fer fram næsta sumar en þetta verður sú fyrsta sem fram fer í Afríku. Á morgun verða 188 dagar í opnunarleikinn og þá verð- ur mikil hátíð í Höfðaborg þegar dregið verður í riðlana átta. 32 þjóðir taka þátt í HM og hefur þeim þegar verið skipt niður í fjóra hópa. Gest- gjafar Suður-Afríku eru í fyrsta hópnum og munu leika í A riðli. Hin lönd- in í hópnum eru Spánn, Brasilía, Holland, Ítalía, Þýskaland, Argentína og England. Næst er dregið úr öðrum hópnum þar sem eru Ástralía, Japan, Norður-Kórea, Suður- Kórea, Hondúras, Mexíkó, Bandaríkin og Nýja-Sjáland. Í þriðja hópnum eru síðan Alsír, Kamerún, Fílabeins- ströndin, Gana, Nígería, Chile, Paragvæ og Úrúgvæ. Í lokahópnum eru síðan þær Evr- ópuþjóðir sem komust ekki í efsta styrkleikaflokk. Þar verður mesta spennan enda vill enginn lenda með Frökkum eða Portúgölum í riðli þar sem þeir eru meðal sjö bestu knattspyrnuþjóða heims samkvæmt nýjasta styrkleikalista FIFA. Í lokahópnum eru Portúgal, Frakkland, Grikkland, Sviss, Serbía, Danmörk, Slóvenía og Slóvakía. Þjóðir innan sömu álfu geta aldrei lent í sama riðli fyrir utan Evrópuþjóðirnar en þar gildir sú regla að aldrei verði fleiri en tvær þjóðir frá Evrópu í sama riðli. Sjónvarpið mun sýna beint frá drættin- um og hefst útsendingin klukkan fimm. Íþrótta- fréttamenn Fréttablaðs- ins settu saman nokkra möguleika á riðlum og má finna þá hér til hliðar. - óój Dregið verður í riðla í úrslitakeppni HM 2010 í dag: Enginn vill Frakka eða Portúgala > FH mun styrkja sig eftir brotthvarf Davíðs Fyrirliði FH, Davíð Þór Viðarsson, skrifaði í gær undir þriggja ára samning við sænska félagið Öster. Davíð var að klára samning sinn við Íslandsmeistarana og FH fær því ekki krónu fyrir fyrirliðann sinn. Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði við Fréttablaðið að ljóst væri að liðið þyrfti að styrkja sig. „Það er ágætt að það sé komin niðurstaða í málið því nú munum við fara af stað og líta í kringum okkur. Við höfum misst nokkra leikmenn í haust og því er ljóst að við munum þurfa að styrkja liðið. En við óskum þó Davíð alls hins besta og vonum að honum gangi vel á nýjum starfsvettvangi.“ FÓTBOLTI Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, þekkir vel til Kristj- áns Gauta Emilssonar sem mun ganga til liðs við Liverpool í næstu viku. „Kristján Gauti er afar efni- legur leikmaður og mjög þrosk- aður miðað við aldur,“ sagði Heimir. „Ég tók hann á sér- æfingar með öðrum leikmönnum síðasta vetur og það er ekki oft sem maður sér sextán ára strák sem hefur jafn góðan leikskiln- ing og hann. Hann er talsvert á undan jafnöldrum sínum hér heima og ég tel að leikskilningur hans og stöðumat á vellinum sé hans helsti styrkleiki.“ Kristján Gauti mun fyrst um sinn æfa með U-18 liðinu en mikil samkeppni ríkir um að komast áfram hjá stórliðum eins og Liverpool. „Ég hef trú á að hann standi sig. Hann fær góða hjálp frá foreldrum sínum og fær nú þrjú ár til að sanna sig. Ég tel að það verði feykinóg. Ég tel víst að hann geti staðist öllum þessum strákum snúning.“ - esá Heimir Guðjónsson: Hef trú á að hann standi sig HEIMIR GUÐJÓNSSON Telur að Kristján Gauti getur staðið sig vel hjá Liverpool. Hér ræðir hann við leikmann FH í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.