Fréttablaðið - 04.12.2009, Qupperneq 86
62 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. dylja, 6. guð, 8. magi, 9. loga, 11.
verslun, 12. krafsa, 14. tappi, 16. í
röð, 17. ot, 18. besti árangur, 20. ekki
heldur, 21. arða.
LÓÐRÉTT
1. afl, 3. skammstöfun, 4. land
í Suðvestur-Asíu, 5. sigað, 7.
kviknakinn, 10. eiturlyf, 13. hljóð
rjúpunar, 15. baklaf á flík, 16. kerald,
19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fela, 6. ra, 8. hít, 9. eld,
11. bt, 12. klóra, 14. spons, 16. áb, 17.
pot, 18. met, 20. né, 21. arta.
LÓÐRÉTT: 1. þrek, 3. eh, 4. líbanon,
5. att, 7. allsber, 10. dóp, 13. rop, 15.
stél, 16. áma, 19. tt.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Meira en 350 milljónir manna.
2. Þorsteinn Þorsteinsson.
3. Marvin Valdimarsson, Hamri.
„Alvöru 101 beikonslorborgari
í Drekanum. Fráhrindandi
sjoppa, en best geymda leyndar-
mál hamborgaramenningar
Reykjavíkur.“
Ómar Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri
Smart DVD.
„Það er lagt upp með að þeir séu komnir á fullt í
heilsugeiranum og ætli að hasla sér völl í heilsu-
rækt,“ segir leikarinn og bókaútgefandinn Karl
Ágúst Úlfsson. Á teikniborðinu er nú loks kominn
vísir að handriti fyrir næstu Líf-mynd og hefur því
verið gefið vinnuheitið Heilbrigt líf.
Karl mun skrifa handritið ásamt þingmanninum
Þráni Bertelssyni en Gísli Örn Garðarsson verður
að öllum líkindum framleiðandi myndar-
innar. Karl og Eggert Þorleifsson
verða síðan að sjálfsögðu í hlutverk-
um hinna geðþekku og seinheppnu
félaga, Danna og Þórs, en ekki er
enn ákveðið hver mun setjast í leik-
stjórastólinn. Hinar myndirnar
þrjár, Nýtt líf, Dalalíf og Löggu-
líf, nutu allar mikilla vinsælda á
níunda áratug síðustu aldar en þær
fjölluðu um þá Þór og Danna sem áttu
fremur auðvelt með að koma sér
í klandur hvar sem þeir drápu
niður fæti, meðal annars
í fiskvinnslu í Eyjum.
Fréttablaðið greindi frá
því í nóvember í fyrra að fjórmenningarnir Þráinn,
Karl, Eggert og Gísli hefðu hist á fundi og rætt um
hugsanlega endurkomu þessa tvíeykis. Þá lá ekki
fyrir söguþráður og allt virtist í fremur lausu lofti.
Karl útilokar ekki að þekktu fólki úr heilsuræktar-
bransanum bregði fyrir í kvikmyndinni og er þar
af nógu að taka: Jónína Ben, Björn Leifs í World
Class, Gillzenegger og Ágústa Johnson að
ógleymdri Lindu Pé.„Fólk hefur náð
miklum hæðum í þessu fagi og það
er vel líklegt að einhver þeirra komi
við sögu í eigin persónu.“ - fgg
Þór og Danni í heilsuræktina
FJÓRÐA MYNDIN VERÐUR TIL Karl Ágúst
Úlfsson og Þráinn Bertelsson skrifa
handritið að fjórðu Líf-myndinni sem að
öllum líkindum mun gerast innan
heilsuræktarbransans. Gísli Örn
Garðarsson verður fram-
leiðandi en Karl og Eggert
Þorleifsson verða að sjálf-
sögðu Danni og Þór.
„Það er alveg geðveikt að fá að taka þátt í
þessu verkefni,“ segir Halldór Gunnar Páls-
son í karlakórnum Fjallabræðrum. Kórinn
tekur á mánudaginn þátt í risavöxnu, alþjóð-
legu (RED) Love-verkefni þar sem fulltrúar
frá 196 þjóðum syngja samtímis Bítlalagið All
You Need Is Love í beinni útsendingu á netinu.
Útsetjari og undirleikari verður kvikmynda-
tónskáldið Graeme Revell sem hefur samið
tónlist fyrir kvikmyndirnar Sin City og The
Saint auk sjónvarpsþáttarins CSI Miami. Bein
vefútsending verður send til London þar sem
straumur frá öllum þátttökuþjóðunum verður
klipptur saman í eitt myndband af auglýsinga-
leikstjóranum Chris Palmer. Hægt verður
að skoða útkomuna á síðunni Starbuckslove-
project.com. Allur ágóði af verkefninu rennur
til baráttu AIDS í Afríku.
Fjallabræður munu hefja upp raust sína
við Tjörnina í Reykjavík, fyrir framan Iðnó á
slaginu 13.30 á mánudaginn. „Við erum náttúr-
lega bara mýfluga í þessu. Ég ætla að vona að
það verði einhver rafvirki frá Pakistan eða
múrari frá Úsbekistan sem taki líka þátt. Við
erum bara venjulegir kallar,“ segir Halldór.
„Strákarnir eru alveg mígandi spenntir yfir
þessu. Það var gaman að fara beint frá útgáfu-
tónleikunum og öllu sem því fylgdi og svo aftur
niður á jörðina, inn í æfingahúsnæði og byrja
að taka þátt í einhverju svona skemmtilegu.“
Halldór segir þá félaga ekki þurfa á neinni
ráðgjöf að halda fyrir verkefnið.
„Ég sagði strákunum að henda textablöðun-
um því þetta væri ekki flókið. Það kunna allir
þetta lag. Það er eldra en flestir í kórnum,“
segir hann og óttast ekkert að verkefnið sé of
stórt fyrir Fjallabræður: „Þetta verður ekkert
vesen. Þetta verður minnsta mál í heimi og
við munum syngja eins og við eigum lífið að
leysa.“ - fb
Fjallabræður syngja fyrir heimsbyggðina
FJALLABRÆÐUR Fjallabræður syngja All You Need Is
Love í beinni útsendingu á netinu á mánudaginn.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í sumar hlaut Þorvaldur Davíð
Kristjánsson, nemi við leiklistar-
deild Juilliard-listaháskólans í New
York, styrk úr The Robin Williams
Scholarship upp á sjö og hálfa
milljón íslenskra króna, eða 60
þúsund dollara. Þorvaldur hafði
aldrei hitt leikarann þegar hann
hlaut styrkinn. Nú hefur
hins vegar orðið breyting
þar á því samkvæmt
heimildum Fréttablaðs-
ins eyddi Þorvaldur
síðastliðnum miðviku-
dagsmorgni með
bandarísku
stórstjörn-
unni.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst fór ákaflega vel á með þeim
félögum enda Williams þekktur
fyrir að vera bæði flippaður og
fremur klikkaður náungi sem
lætur allt gossa þegar síst skyldi.
Svo vel náðu Hollywood-stjarnan
og Þorvaldur saman
að Íslendingurinn
stóðst ekki mátið og
bauð honum í mat.
Ekki þó í New York,
enda yrði það eflaust
heldur fátæklegur
námsmanna-
matur, heldur
á Íslandi ef
Robin skyldi
einhvern
tímann eiga hér leið um.
Og Robin fór auðvitað ekki
tómhentur heim því Þorvaldur
gaf honum Icelandic Folktales
eða Íslenskar þjóðsögur sem ættu
að vekja áhuga Robins Williams
á þessari furðuþjóð sem trúir víst
öll á álfa ef marka má
erlenda fjölmiðla. Og
til að fullvissa sig um
að Robin myndi ekki
týnast í óbyggðum
landsins fékk
leikarinn
Ferða-
handbók
eftir Ara
Trausta.
- ag
FRÉTTIR AF FÓLKI
Eva María Daniels er annar fram-
leiðandi myndarinnar The Romant-
ics með leikkonunni Katie Holmes í
aðalhlutverki. Holmes kemur einn-
ig að framleiðslu myndarinnar með
Evu Maríu en auk hennar leika
þau Elijah Wood, Josh Duhamel
og Anna Paquin úr True Blood í
myndinni.
„Þetta er fyrsta bíómyndin sem
ég framleiði, en hingað til hef ég
eingöngu haft yfirumsjón með eftir-
vinnslu kvikmynda. Þessa dagana
er ég að ljúka við Lísu í Undralandi
með Tim Burton. Ég hef áður unnið
með honum að Sweeney Todd og
það er töfrum líkast að sitja með
honum og hlusta á hann,“ segir
Eva María sem hefur verið búsett í
Bandaríkjunum í tæp þrjú ár. Hún
nam kvikmyndagerð í Danmörku
og flutti þaðan til London þar sem
hún starfaði í fimm ár að eftir-
vinnslu á auglýsingum og kvik-
myndum.
The Romantics fjallar um hóp
vina sem hittast í fyrsta sinn í tíu
ár í brúðkaupi. Brúðguminn er að
fara að giftast bestu vinkonu fyrr-
verandi kærustu sinnar og á brúð-
kaupsdaginn koma upp ýmis óleyst
mál sem vinahópurinn þarf að tak-
ast á við. Eva segist lengi hafa sett
stefnuna á að framleiða kvikmynd-
ir sjálf en hún hafi ákveðið að taka
þetta verkefni að sér þar sem hún
hafi heillast af konunum sem stóðu
á bak við hana. „Það er mjög sjald-
gæft að kvikmyndir séu framleidd-
ar einungis af konum,“ segir Eva
María og bætir því við að kvik-
myndin sé framleidd utan hinna
stóru kvikmyndavera og því hluti af
hinum sjálfstæða kvikmyndageira.
„Það þýðir að það er lítið um fjár-
magn. Við fengum Katie Holmes
til að taka að sér aðalhlutverkið en
það var ekki til nægur peningur til
að borga henni fyrirfram þannig í
staðinn eignast hún hluta af mynd-
inni og er titlaður framleiðandi,“
útskýrir Eva María.
Aðspurð segir hún mikinn mun
vera á því að starfa í eftirvinnslu
kvikmynda og því að framleiða
þær. Starf eftirvinnslumanns-
ins sé erfitt en vanþakklátt starf.
„Ég funda með leikstjóranum og
tökumanninum rétt áður en tökur
hefjast til að finna ákveðið útlit
á myndina. Það sem gerir starfið
erfitt er að þessir tveir aðilar
geta haft mjög ólíka sýn á tökurn-
ar og þá þurfa eftirvinnslumenn-
irnir að reyna að koma á sáttum.
Maður þarf að hafa góðar taugar
í þetta starf. Það vegur upp á móti
að maður kynnist fullt af skemmti-
legu fólki. Ég kynntist til að mynda
Jack Nicholson nýlega og fylgdist
með honum að störfum í mynd sem
ég var að eftirvinna.“ Stefnt er á að
The Romantics verði frumsýnd á
Íslandi í vor. sara@frettabladid.is
EVA MARÍA DANIELS: UMKRINGD STJÖRNUM Í NEW YORK
FRAMLEIÐIR MYND
MEÐ KATIE HOLMES
RÓMANTÍSK MYND
Eva María Daniels framleiðir
kvikmyndina The Romantics. Með
aðalhlutverk fara Katie Holmes
og Anna Paquin úr sjónvarps-
þáttunum True Blood. Myndin
gerist í brúðkaupi og segir frá hópi
gamalla vina sem þurfa að gera
upp gamlar syndir. Elijah Wood
og Josh Duhamel fara einnig með
stór hlutverk í myndinni sem er
eingöngu framleidd af konum.
Myndin verður væntanlega frum-
sýnd á Íslandi í vor.
Auglýsingasími
– Mest lesið