Vikan - 26.01.1961, Page 2
Til Vikunnar:
Blaðið
sem húðin finnur
ekki fyrir
Gillette hefir gert nýja uppgötvun, sem stóreykur þægindin við raksturinn. t*að
er nýtt rakblað með ótrúlegum raksturseiginleikum. Skeggið hverfur án pess að
pér vitið af. Pegar notað er Blátt Gillette Extra rakblað má naumast trúa pví
að nokkuð blað hafi verið í rakvélinni. 5 blöð aðeins Kr. 18.50.
þér verðið að reyna það
® Gillette er skráseM vörumerki
ViljiÖ þið ekki gera svo vel að senda Vikuna
á biðstofur læknanna. Það eru ósköp til þess
að vita, livað þessar blaðslitrur þar eru óhrein-
ar. Ég snerti aldrei á þeim og þó verð ég oft
að bíða á biðstofum. G. S.
Hvað skyldu vera margar biðstofur lækna
hér í Reykjavik? — Þær skipta áreiðanlega
tugum og við tökum undir það að ástandið
í þessum efnum er víðast svipað og það má
segja, að sá óþrifnaður sé þar sem sízt skyldi.
Það væri sjálfsagt sama með Vikuna og önn-
ur blöð, væri hún send á biðstofur: Hún
lægi þar frammi þar til slitrur einar væru
eftir og þar verður engu öðru um kennt en
sóðaskap og trassaskap læknanna sjálfra og
kannski slælegri framgöngu heilbrigðiseftir-
litsins.
Of hraður lestur?
Kæra Vika!
Hvernig er það þegar er verið að Iesa upp-
skriftir af kökum í útvarpinu, ég er mjög
skúffuð hvað það er farið rangt með það.
Svoleiðis er mál með vexti, að um daginn átti
nú aldeilis að gefa húsmæðrunum góða upp-
skrifa af laufabrauði, ég í flýti og næ í penna
og blað og ætla ég nú að ná þessu. Þá er byrjað
að lesa í belg og byðu ég næ hveitimjöl, mjólk,
búið buntum og basta, næ ekki meiru, það var
ekki einu sinni farið aftur yfir það, þetta
átti ég að steikja í feiti, hvernig ætli henni
mundi bragðast þettað frúnni, ef hún kæmi í
kaffi til mín, veri hún velkominn. Svona kemur
oft fyrir, þettað er ekkert einsdæmi. Með fyrir
fram þökk ef ég fæ svar við þessu. Á. J.
Ég er svo aldeilis hissa á þessu! Húsmóðirin
í húsinu þar sem ég var þetta kvöld, átti ekki
í neinum vandræðum með að skrifa þetta
hjá sér. — Ég sneri mér því til hennar, svo
þú færir ekki að henda hveiti, smjöri og
mjólk í feiti og halda að það væri laufabrauð,
en sú ágæta húsmóðir var þá svo mikill
sunnlendingur í eðli sínu, að hún var búin
að henda uppskriftinni. En hér er önnur
uppskrift, sem þú skalt geyma til næstu jóla:
1 kg hveiti, 1 matskeið sykur, 1 teskeið ger,
1 teskeið salt, 35 gr smjör, 5—6 dl mjólk. —
Smjörið er látið út í mjólkina og suðan látin
koma upp. Síðan látið kólna lítið eitt og af-
ganginum hrært saman við og síðan hnoðað í
fremur hart deig. Flatt út í þunnar kökur
og skorið, t. d. eftir diski. Síðan er þetta
látið standa um stund, síðan skorið út eftir
smekk og steikt í tólg þar til kökurnar eru
orðnar ljósbrúnar. — En víst er það og satt,
að það væri góð regla fyrir þá, sem vilja
láta skrifa eftir sér úr útvarpi, að vera sjálf-
ir með pappír og ritföng og skrifa niður, í
stað þess að ætla ósýnilegum hlustendum
tímann.
Viljið þið gera svo vel að prenta kvæðið
„Hjálmar og Hulda“ I Vikunni. — Þið birtuð
það m. a. árið 1946.
Lesandi.
Við höfum ekki rúm fyrir það núna, en ráð-
2 VIKAN