Vikan


Vikan - 26.01.1961, Page 6

Vikan - 26.01.1961, Page 6
Ungfrú Yndisfríð Hér kemur ungfrú Yndisfríð, yndislegri en nokkru sinni áð- ur og léttklædd að vanda. Hún er alltaf að týna einhverju, blessunin og þá finnst henni auðveldast að snúa sér til ykk- ar, lesendur góðir, enda hafið þið alltaf brugðist vel við. Nú hefur hún týnt klukkunni sinni og hún biður ykkur að finna hana fyrir sig. — Dregið verð- ur úr réttum lausnum og verð- launin eru konfektkassi. Klukkan er á bls........ Nafn Heimilisfang Simi .......... Hvað notarðu marga sykurmola i kaffið? Fjórtán. Fjórtán, ham- ingjan góða. Já, en ég hræri ekki i því, því að ég þoii ekki sætt kaffi. Tveir menn töluðu saman í boði og annar sagði hrifinn og ákafur frá konu sem hann þekkti. — Þú skilur, sagði hann, hún er ein af þeim konum sem fær menn til að kasta sér í vatn eða klifra upp í tré, hoppa, stökkva eða ..• I — Já, ég skil sagði hinn, hún ekur bíl. TILLITSSAMUR ÁMINNANDI. Þegar Elísabet Bretadrottning var í opinberri heimsókn í Dan- mörku siðast, var haldin konungleg athöfn i Hróarskeldu og lagðir kransar á kisturnar i dómkirkjunni. Ungur ljósmyndari sem þar var staddur lagði í flýti tómt mynda- vélahylki á einn af legsteinunum. Friðrik konungur benti honum á að fjarlægja það og til þess að gera aumingja ljósmyndarann ekki mjög miður sín hvíslaði hann að honum: Þér skiljið, þetta er fjölskylda mín. Karen Johnsen. héraðsdómari í Danmörku, þurfti dag nokkurn að fá pípulagningamenn á skrifstofuna til sín. Pípulagningamaðurinn byrj- aði að útskýra fyrir aðstoðarmanni sínum hvernig leggja ætti rörin sam- kvæmt teikningunni og meðan hann var að því, heyrðist frá héraðsdóm- aranum: Ég þyrfti á tveimur hraust- um mönnum að halda, til að flytja þennan skáp. Pípulagningamaðurinn lét sem hann heyrði þetta ekki og hélt áfram útskýringu sinni. En dóm- arinn endurtók: Mig vantar nauð- synlega tvo hrausta menn til að flytja þennan skáp. Þá fékk pípulagninga- maðurinn meira en nóg, hann sneri sér að héraðsdómaranum og sagði: Heyrið þér mig ungfrú, ef yður vant- ar hrausta menn, skuluð þér bara fara niður að almenningsspítalanum kl. eitt. Þeir sem koma þaðan hafa vottorð upp á það, að þeir séu hraustir. Hver fann eiginlega upp á þvi að kalla konur stundum gæsir. Var það vegna þess hve þær geta stundum verið ótrúlega líkar gæsum og stafa ÞANNIG ER LÍFIÐ. Fyrrverandi skipaþema var á gangi um höfnina og heyröi þá hrópaö á hjálp úti í sjónum. Hún kastaöi frá sér tösku sinni og kápu og stökk út í og henni heppnaöist aö bjarga dreng frá drukknun. Þegar hún kom aftur á þurrt land, sá hún aö einhver haföi stol- iö þúsund kr. úr tösku hennar á meöan. Og mundu það svo, að gera eitthvað af þér svo að þú fáir að sitja eftir meðan ég líkindin af þvi hve báðar eru til- gerðarlegar og reigðar? 1 rauninni hefur þetta orðtæki niðrandi merk- ingu og það kannski vegna tilgangsins er í saumaldúbb. sem liggur á bak við Það þegar kon- Húsmóðir nokkur í New Jers- ery í Bandaríkjunum ætlaði að reyna að drepa mölflugu með því sem hendi var næst og það vildi svo heppilega til að það var hamar og með honum sló hún manninn sinn f rot. an reigir sig eins og gæs. Það er Jane Mansfield, sem þarna setur sig í kroppastellingar með þessum ár- angri. Munið það stúlkur mínar að næst Þegar þið setjið ykkur í kroppa- stellingar eins og Jane Mansfield og vaggið í göngulagi eins og Marilyn Monroe, þá eruð þið líkastar ... DAGURINN var honum óvenju- erfiður. Hann átti bágt með að sitja kyrr. Einhver órói var I hopum. Það var eitthvað svo óvenju- erfitt að sitja svona og telja þessi blöð, flokka þau og bunka, þetta sama nudd upp aftur og aftur. Bara, að hann mætti fara út og gera eitthvaö annað, —• vinna. Jafnvel tilbreytingarlaust pikk rit- vélarinnar æsti hann. Stúlkan, sem sat við að vélrita, minnti hann svo mikið á Rúnu, — lítil, þybbin, með stóran munn. Hann langaði að segja þessu öllu í helvíti, en hann hafði heitið því að sitja á sér, láta sem ekkert væri, vera rólegur, ekki æðr- ast. Hann skyldi líka hafa það af. En þessi dagur var óvenjuerfiður. Kannski var Það af því veðrið var svo gott. Strax í morgun var allt leiðinlegt: að vakna eftir örstuttan svefn, útsofinn, óþreyttur, aldrei líkamlega þreyttur, langa aldrei til að sofa lengur og hvíla sig betur. Kannski dálítill verkur i bakinu, stingur, þegar hann rétti úr bæklaða fætinum, engin þreyta, aðeins verk- urinn, það var helviti. Og sjá hana, konuna, heyra hana anda létt og áhyggjulaust. Hann leit yfir í rúm hennar. Hún vildi endilega sofa inni hjá honum, eins og það væri einhver nauðsyn. Hann vissi, að hún hélt fram hjá honum. Hann hafði fljótlega skil- ið þessi löngu kvöldpartí. En það ergði hann ekki, það varð að vera. I morgun, — sængin hafði færzt ofan af henni, hún lá hálf á bakið, og hann sá fagran vöxt hennar gegn- um þunnan náttkjólinn, fagurmótað- ar mjaðmirnar, sléttan magann, stór, mjúk brjóstin, ávalar axlirnar, húðin mjólkurhvít, munnurinn nettur, hvít- ar, þéttar tennur, bráhárin dökk og löng, ennið hátt, hárið þykkt og dökkt. Falleg kona, konan hans. Og hann vissi, að hún hafði notað nótt- ina til ásta, vissi, að hún læddist inn undir morguninn, syfjuð, þreytt, en þó sæl, gáð að, hvort hann svæfi, afklæðzt hljóðlega í myrkrinu, sofn- að strax, líklega dreymt skemmtileg- heit kvöldsins, — sennilega var hana enn að dreyma það. En það kom honum ekki við. Hann var henni dauður, verra en dauður, lifandi lík — ófær. Stundum langaði hann þó til að vita, hver það væri, sjá hana tala við hann. Nei, það var ekki til neins. Ekkert kom við hann framar. Kannski var það ekki alltaf hinn sami, hún hlaut að vera eftirsótt. Honum var sama, bara láta sem hann vissi ekkert. Og hann hafði geispað, ræskt sig, og hún vaknaði, breiddi ofan á sig sængina, teygði sig og geispaði. „Ah, er virkilega orðið svona framorðið? Ó, ég er svo syfjuð. Við vorum svo lengi að spila, klukkan var víst fjög- ur, þegar við hættum.“ „Jæja, já.“ — Hann hlustaði ekki á hana, vissi, hvernig hún var vön að afsaka sig. Skyldi hún halda, að hann vissi ekkert? Kannski. „Jæja," sagði hún, geispaði enn, reis upp, smeygði sér í morgun- sloppinn að ofan, teygði fæturna fram úr, stóð snöggt upp og kippti sloppn- um saman, snöggt, eins og til að hylja nekt sína sem fljótast. Svona var það alltaf. Síðan fram i eldhús að hita kaffið. Hann að bjástra við að klæða sig, var oft lengi að því, vildi ekki, að hún hjálpaði honum nema stund- um, ef hann var eitthvað verri. Síð- an hann að raka sig, drekka kaffið, líta i blaðið, hún að klæða sig á með- an. Svo þau á leiðinni í vinnuna, í bílnum, hún með hugann við bílinn og umferðina, hann að horfa út um gluggann, kannski tala um veðrið, gott eða illt, kannski bara þegjandi. Þetta var ekki svo löng leið og svo sem elckert til að tala um. Þannig var það alltaf. Staulast svo upp tröppurnar, styðjandi fast á stafina, veifa til hennar, akandi til saurna- stofunnar. Stundum kom einhver af skrifstofunni á móti honum, aðrir voru á leið í vinnuna, buðu góðan dag, gengu hægt til að fylgjast með 6 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.