Vikan


Vikan - 26.01.1961, Síða 21

Vikan - 26.01.1961, Síða 21
r hóprmm — Hvað heitirðu? — Steingrímur Leifsson. — Og kallaður hvað? — Steini. — Ertu í nokkrum skóla? —; Já, í Flugskólanum Þyt. — Kanntu þá að fljúga eða hvað? — Bara á bílnum hans pabba. — Jæja, er hann með fluggír? En hvernig er það með flugskólann, er ekki almennt nám eins og í Iðnskól- anum? — Nei, ekki til A-prófs. Þar lærum við loftsiglingafræði, veðurfræði, flugreglur og flugeðlisfræði. Ég veit ekki hvernig það er með B-prófið. —• Hvaða réttinói veitir A-prófið? — Það er sama og minna próf á bíl, þannig að maður má fljúga með farþega, en ekki taka borgun fyrir. — Hvað tekur námið langan tíma? Steingrímur Leifsaon — Hvað áttu við? A-próf eða allt flugnámið? — Ja, eiginlega hvorttveggja. — A-prófnámskeiðið stendur tæpa þrjá mánuði og er krafist 40 tíma flug auk bóknáms. B-próf tekur 3 tii 4 mán. og þurfa að vera komnir 200 flugtímar alls með A-prófi. Við það bætast 20 tímar blindflug. — Þarf ekki svaka gáfur til þess að standast þessi próf? — Það þýddi að minnsta kosti ekki fyrir ykkur að fara í það. Svona blaðanegrar. — Engar kynþáttaofsóknir, dreng- ur minn. Hvað ertu annars gamall, Steingrímur? — Ég verð átján i apríl. — Þegar þú ert að verða fimmtíu og eins, segirðu sjálfsagt að þú sért tæplega fimmtugur. Heyrðu annars, hvort reykirðu vindla eða sígarettur? -—• Pípu. —- Nú, hver fjandinn. Hvað drekk- urðu þá? — Maltöl. — Ja, ekki veitir af með þetta útlit. — Ég sé á ykkur, að þið drekkið það ekki. —• Megum við taka af Þér mynd? — Ef þið náið henni. —- Ferðu oft á rúntinn? — Ekki nema á kvöldin og um helgar. — Og auðvitað á bilnum hans pabba þíns — Já, auðvitað. — Jæja, Steingrímur. Ætli það sé ekki bezt að þakka Þér fyrir og fara? — Mín vegna. Með þetta förum við skamyndirv Horst Buchholz er nú á tindi frægð- ar sinnar. Enda Þótt Peter Kraus sé alveg á hælunum á honum sem stendur, þá á hann langt í land að ná sömu hylli utan Þýzkalands og Horst Buchholz. Horst er einn af þeim tíu vinsælustu í Þýzkalandi og núna hefur hann unnið mik- ið á annars staðar með mynd- um þeim, sem teknar hafa verið í Ameríku, Englandi og Frakklandi. Margir hafa séð hann i sjómannshlut- verki sínu í ensku myndinni „Tiger Bay“, sem sýnd var i Tjarnarbíói. Önnur mynd hefur verið gerð með honum i hlutverki sjómanns, sem misst hefur alla pappíra sína og fær hvergi skipsrúm. lcvilcmyndir Sal Mineo þarf varla að kynna fyr ir þeim, sem fylgst hafa með ungl- ingamyndum undanfarinna ára frá Hollywood. Hérna sjáið þið hann með Gene Krupa. Þeir eru að æfa saman undir mynd sem fjallar um ævi Krupa. Krupa er sjálfsagt frægasti trommuleikari okkar tima, þó ekki sé hann talinn bezti. Sú var tíðin, að ekki var talað um neinn trommuleik- ara nema Krupa. Og nú er ein mynd- in enn I ævisögustílnum komin á kreik. Þetta er Elke Sommers, sem er mót- leikari Horst Buchholz í myndinni „Feiga skipið". Hún hefur smám saman fikrað sig upp stjörnustigann og hefur ekki gengið alltof vel. Nú er hún sem sagt komin í gagnið, því ólíklegt er, að stúlka sem leikur á móti Buchholz gieymist fljótlega. Petei' og Nadja Peter van Eyck og Nadja Tiller eru alltaf á uppleið, síðan þau léku i myndinni um stúlkuna Rosemarie. Van E'yck er sérkennilegasti kvik- myndaleikari Þýzkalands. 46 ára, heimsborgari og hefur alls staðar leikið í kvikmyndum. 1952 lék hann í myndinni „Laun óttans“ i Frakk- landi. Sú mynd varð heimsfræg. Hann hefur leikið í meira en 50 myndum i Ameriku, Englandi, Italíu, Frakk- landi og Þýzkalandi. Hann er á blaði hjá hverjum einasta kvikmyndafram- leiðanda um allt vesturhvel. Allir vilja sjá hann. Kruya segir Sal til í trommuUstinni íþróttir Það liggur við að Þórður geyspi golunni i þessu kasti. Hann kvað hafa lært þessa aðferð af Könum. Annars er varla hægt að skrifa um utanhúss- iþróttir á þessum kuldatímum. En hitt er annað mál að veturinn er hægt að nota til þjálfunar og svo mun líka gert. Það veitir ekki af mikilli þjálfun núna, ef við ætlum eitthvað að spjara okkur á sumri komanda, en frammistaðan í fyrrasumar var að mörgu leyti lök. Ýmsir kappar brugðust heldur betur og liklegast er engu um að kenna, nema slælegri þjálfun. Það er orðið langt siðan að Islendingar hafa getið sér orðs fyrir frjálsar íþróttir. Nú er að taka á lionum stóra og gera eitthvað i mál- inu. Svo eru nú Þeir sem erfa landið. Það þarf að búa betur að þeim, ef við viljum sjá einhvern árangur í framtíðinni. E?kki er hægt að búast við því, að þeir æfingavellir, sem núna eru i Reykjavík fullnægi þörf- inni. Að minnsta kosti finnst mörgum heldur þröngt á þingi. Þóröur aö verki áttu þetta? Það er svo margt þegar að er gáð. Þetta gátum við sannprófað, þegar við gengum um bæinn og athuguðum í hverju væri fengur fyrir ykkur að eiga. Eins og öðrum bæjarbúum vartj okkur starsýnt í glugga húsgagna- verzlunar og fyrr en varði vorum við komnir inn. Þar sáum við meðal annars ýmislegt skemmtilegt fyrir stúlkur. Á meðfylgjandi mynd eru svo munirnir. Kommóðan er úr teak og mjög snyrtileg I öllum frágangi. Það má nota hana sem snyrtiborð, þar sem hún er svo lág. Verðið er um 1100.00 og má kallast hóflegt nú á timum. Lampinn er léttur og þægilegur, skermurinn marglitur. Hann kostar rúmar 200.00 Hundurinn mun vera af úrvals- kyni, hið svokallaða tréhundakyn og þarf hvorki hundaleyfi né mat fyrir hann. Hann selst á rúmar 100.00, af- borgunarlaust. HBKAM 21 H A>* IV X O.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.