Vikan - 13.07.1961, Síða 3
carabella
Yndisþokki næturinnar í carabella...
mjög fljótt l$iðar á öðrum tjaldlitum. Rautt
getur kannski verið svolítið rómantískt, en
ákaflega þreytandi til lengdar. Bæði blá og
rauð tjöld eru auk þess dimmari en hvít. —
Góða skemmtun.
Molar um Melinu.
Kæri Póstur.
Getur þú sagt mér eitthvað um Melinu Mercu-
ori og myndina, sem hún leikur í (Never on
sundays) ? Hvað er hún gömul og svoleiðis, og
hvað heitir sá, sem stjórnaði myndinni? Er það
satt, að hann leiki í henni líka?
MM
Ég get nú ekki mikið sagt þér um þessa á-
gætu stúlku annað en það, að hún er grísk
og sennilega um tvítugt. Ég geri ráð fyrir, að
„svoleiðis" þýði, hvort hún sé gift, og ég
held, að það sé hún áreiðanlega ekki núna.
Hún giftist 17 ára gömul, en það hjónaband
varð æði-skammvinnt, og ég man ekki að hafa
heyrt, að hún legði út í það á ný. Um Melinu
er sagt, að hún sé iðandi af lífsfjöri og hætti
aldrei við hálfnað verk, en viti mætavel, hvað
hún vill. Leikstjóri myndarinnar heitir Dass-
in og er franskur.
Ljóskeradeila.
Kæri Póstur.
Mig langar til að fá þig til að skera úr deilu
milli mín og mannsins míns. Svo er mál með
vexti, að nú ekki fyrir löngu fór ég á bilnum
okkar með krakkana upp í sveit. Á undan mér
var stór trukkur og fór hægar en ég vildi fara,
en meðan ég var að reyna að komast fram úr
hnnnm, kom steinn undan hjóli á honum og
mölbraut annað framljósið hjá mér. Ég tók núm-
erið af bílnum og ætlaðist til, að karlinn minn
færi með það í tryggingarnar, en það vill hann
ekki gera. Hann segir, að tryggingarnar borgi
ekki brotin ljós og auk þess þýði það ekkert
að tala við þær, úr þvi áð ég talaði ekki við
trukkbílstjórann. En það er hægt að sanna það,
að hann hafi verið á þessari leið þennan dag,
og til hvers er ábyrgðartrygging á bilum, ef hún
borgar ekki allan skaða, sem verður af notkun
þeirra?
Opelfrú.
Mér þykir leitt að þurfa að viðurkenna,
kæra Opelfrú, að maðurinn þinn hefur rétt
fyrir sér. Tryggingarnar taka ekki til brot-
inna ljóskera, nema fleira hafi skemmzt. Þá
væri svo hægur vandi fyrir þann, sem er
ineð brotin ljósker, að aka á eftir einhverj-
um bíl upp í sveit til þess að fullvissa sig
um, að sá bíll hafi raunverulega verið þar,
skrifa hjá sér númerið á honum, snúa síðan
við og aka í bæinn aftur og heimta bætur
f tryggingunum.
Hún sér ekkert „út úr því“.
Kæra Vika.
Það var ekki alls fyrir löngu, að ég fór á
sýningu hjá einum af þessum abstraktmálurum
og ég var alveg jafnnær. Þetta voru eintómir
fletir og hvur veit hvað og það var ekki fyrir
kellingar eins og mig að skilja það. Ég gat
ekkert séð út úr myndunum hvernig sem ég
reyndi og nú langar mig til að spyrja: Er þetta
bara hókus pókus og nýju fötin keisarans og
geta ekki allir gert svona myndir?
Jórunn G.
Bústaðahverfi.
Mér þykir leitt, Jórunn, að þú skyldir
vera alveg jafnnær eftir förina á sýningu
abstraktmálarans. En ertu nú viss um það,
að þú hafir skoðað myndirnar með réttu
hugarfari? Eins og flestir aðrir, sem ekki
eru vanir þess háttar myndlist, hefur þú
verið að reyna að sjá einhverja náttúrlega
fyrirmynd í málverkunum. Það má líka vel
vera, að málarinn hafi haft náttúrlegar
fyrirmyndir. En hann hefur bara verið bú-
inn að breyta þeim það mikið, að hin raun-
verulega fyrirmynd hefur ekki verið þekkj-
anleg lengur og raunar væri myndin ekki
abstrakt annars. Gættu þess vel, Jórunn?
að mynd er hvorki betri né verri, þótt hægt
sé að sjá eitthvað „út úr henni.“ Það skiptir
í rauninni ekki máli. Aðalatriðið er, að sjálf
myndin sé góð. Hún er hvort er eð einangr-
að og sjálfstætt fyrirbrigði, sem lifir eigin
lífi. Þú hefðir átt að staðnæmast fyrir fram-
an myndirnar og athuga áhrifin, eða ósköp-
einfaldlega: Hvort þér þótti myndin falleg
eða ljót. Eiginlega er það byrjunin; hitt
kemur á eftir. Það verður að líta á mál-
verk, svipað og hlustað er á tónlist. Þú nýt-
ur væntanlega tónlistar án þess að vera sí-
fellt að hugsa um, hvort tónarnir líkist ein-
hverjum hljóðum úr náttúrunni. Farðu aft-
ur á svona sýningu, Jórunn, og þá mun bet-
ur ganga. Svo ég svari spurningu þinni ná-
kvæmlega: Það gætu verið nýju fötin keis-
arans, en mér finnst það ekki líklegt. Ég
veit ekki hvaða sýningu er átt við og get því
ekki um það dæmt. En það er víst ekki eins
auðvelt að gera góðar abstraktmyndir og
margir halda og sumir málarar halda því
fram, að það sé erfiðara að gera góða ab-
straktmynd heldur en hlutlæga, vegna þess,
að þá verður listamaðurinn fyrst og fremst
að sækja í eigin huga.
IÐKAK 3