Vikan


Vikan - 13.07.1961, Page 8

Vikan - 13.07.1961, Page 8
Dovid Dachs; Einhver frægasta orusta veralda sögunnar ungur en hraustur íótgönguliðsforingi, einn af fræknustu herstjórum Suðurríkjanna. Hann var 38 ára að aldri. Þegar á kveldið leið, gerðist ys nokkur í her- búðunum, því að í ljós kom, að sjálfur Lee yfir- hershöfðingi var kominn þangað tii viðræðna við Pickett. Nokkrir hermannanna reyndu að rísa á fætur og raða sér í stöðu. E'n Pickett veifaði til þeirra. — Liggið kyrrir og hvílið ykkur, sagði hann. Það er mest um vert! 1 GRENND VIÐ AÐALHE'R NORÐANMANNA. Foringjarnir ræddu um stöðu herjanna. Lee var þreyttur og hugsjúkur. Sýnilegt var, að nú dró tii stórorustu. Fyrstu vopnaviðskiptin voru Þegar hafin og gífurlegt mannfall orðið af beggja hálfu. •— Pickett, sagði Lee. Ég held við stöndum andspænis aðalher Norðanmanna. Hann hafði árangurslaust reynt að reka fleyg í fyikingar Norðurhersins, en í fyrramálið skyldi annað verða uppi á teningnum. Þá áttu þeir að vinna mikinn úrslitasigur. Gera skyldi byssu- stingjaárás á miðfylkingar Norðanmanna, og það var Piekett, er stýra skyldi áhlaupinu. Á hæla honum átti að fylgja sveit eftir sveit hinna frægu, gráklæddu hermanna Suðurríkjanna. Pickett kinkaði kolli og skildi. Nú mundi reyna á menn hans. Hann skipaði verði umhverfis her- búðirnar, til þess að ekki lenti i ófyrirsjáanlegum vandræðum. 1 fjarska mátti enn heyra óp hinna særðu manna, sem verið var að flytja inn i Get.tysburg: — Mamma, mamma, veinuðu þessir vesalingar. Ó, guð minn góður! Þegar á leið kvöidið, bárust Pickett illar frétt- ir. Mikill skoðanamunui- hafði komið upp í aðal- stöðvum Lees hershöfðingja, og var meginágrein- ingurinn um, hvort Pickett ætti að gera áhlaupið eða bíða átekta. Lee héit fast við þá skoðun, að Pickett skyldi ráðast á Norðurherinn miðjan, en James Longstreet, hinn eineygði hershöfðingi, taidi heppilegast að iáta Norðanmenn um að opna eldana. Taldi hann meiri von um úrslitasigur, ef hægt væri að ginna blástakkana niður á lág- lendið. Krangelen sat alla nóttina yfir uppdráttunum í tjaldi Lees hershöfðingja. Um það bil, er dag- ur rann i austri, var máiið á enda kijáð. Pickett skyldi hefja áhlaupið. Longstreet hvarf úr tjald- inu, fokreiður yfir málalokum. Nokkrum mínút- um síðar fékk Pickett fyrirskipanir sinar í inn- sigluðu bréfi, Hann las þær og rilaði því na>st Eftlr fimm stunda erfiða göngu frá Chambergs- burg í ryki og sólarhita náði Pickett hershöfðingi loks útjaðri «Gettysburg með sína þjálfuðu Virginíuhermenn. Þetta var 2. júlí 1863. Hafði herganga þessi verið nær óþolandi í brennandi sólskininu. En ekki höfðu þeir þó með öllu farið varhluta af ánægju á leiðinni, því að þeir Pickett og menn hans voru svo heppnir að geta náð föng- um úr Sambandshernum meðfram veginum hvað eftir annað. Þegar herinn gekk inn á torgið í Gettysburg, grillti hershöfðinginn í gráa reykbólstrana frá stórskotaliðinu og heyrði fallbyssudrunur og riff- ilskothríð frá vígvellinum. Hann sendi Robert E. Lee yfirhershöfðingja þegar svolátandi skeyti: Votutyi aö koma til Gettysbuvg. Mgtiti míniT eru þreyttir, en eftir stundarfhvíld getura viö tek- iö þátt í orustunni. Sendiboði Picketts hitti Lee hershöfðingja, þar sem hann sat á hesti sinum, hinum fræga Ferða- garp, uppi á Skólahæðinni og fylgdist með gangi orustunnar í sjónauka. Sendimaður heilsaði á hermannavísu, en stóð síðan og beið svars. Loks rnælti Lee hershöfðingi hugsi: — Segið Pickett, að mér þyki vænt um komu hans og að ég treysti honum og mönnum hans, en ég þurfi ekki á þeim að halda í kvöld, Þegar Pickett fékk svarið, gat hann ekki að sér gert að brosa. Honum þótti lofið gott. Síðan skipaði hann mönnum sínum að búast til nætur- hvíldar á spildu milli hveiti- og baðmullarakra, er lágu meðfram veginum. Sjálfur steig hann af baki Brún sínum, kófsveittum, og virti hermenn- ina fyrir sér. Mátti segja, að þeir fremur féllu til jarðar en legðust endilangir. Hann var þreytt- ur og hálfórólegur. Pickett var hinn glæsiiegasti maður og leit fremur út fyrir að vera kvennagull og spjátr- Wta var ekki nein hertækni lengur, það var slátrun B viKAM

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.