Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 13.07.1961, Qupperneq 35

Vikan - 13.07.1961, Qupperneq 35
Raðir hermanr.anna þynntust i sífellu. Harmur nísti hjarta Picketts, er hann sá pilta sína hníga í valinn, hundruðum og þúsundum saman. Hlíðin niður af Kirkjugarðshvolnum var þakin særöum möniium og dauðum. Sjálfur var hann fyrir löngu kominn í skotfæri Norðanmanna og leitaði nú hælis i skógarrunni, þar sem hann gat fylgzt með gangi orustunnar. En Pickett hvatti menn sína til framgöngu. Þeir stefndu beint til stöðva Norðanmanna á hæð- arkollinum, ruddust gegn riffilkjöftunum af óskilj- anlegri fífldirfsku og tókst að reka ofurlítinn fleyg í fylkingar óvinanna. Allt i einu höfðu nokkrir þeirra Suðurríkjamanna höggvið sig i gegn! TVÖ ÞÚSUND Á FIMMTÁN MÍNÚTUM! Nú var barizt i návigi, maður gegn manni. Knífar og byssustingir blikuðu i loftinu. Hér gilti aðeins ein regla: að drepa eða vera drepinn. Manníallið var gífurlegt. Kirkjugarðurinn fylltist af dauðum mönnum og deyjandi. Þeir, sem á hæla þeim komu, tróðu þá niður og héldu bar- daganum áfram með öllum tiltækilegum vopnum. Stórfylkishöfðingi Picketts, Lewis Armistead, lagði til atlögu við eitt fallbyssustæðið, veiíaði hattinum á sverðsbroddi sínum og hrópaði: — Áfram, piltar. Tökum þá! 1 sömu andrá kom byssukúla í hann. Armistead snerist í hring og féll niður milli leiðanna. Það var auðfundið, að Þeir Norðanmenn voru jafn-harðvítugir í návígi sem endranær. Þeir hop- uðu ekki um hársbreidd, en börðust með hverju bví, er var hendi nær, og hugsuðu ekkert um að bjarga lifinu. Þeir komu alls staðar i opna skjöldu og notuðu allt, sem þeir náðu til, staura, Ijái, steina og hnýtta hnefana. Hvað eftir annað gerðu Þeir gagnáhlaup á andstæðingana og ráku þá af höndum sér með þvílíkum ofsa, að Sunnanmenn urðu grallaralausir yfir grimmdinni í mönnum, sem þeir höfðu haldið, að væru hreinustu raggeitur í návígi. Fimmtán mínútur liðu, og létu þá liðssveitir Picketts undan síga. Fyrst hopuðu þeir niður hlíðina, en brátt breyttist undanhaldið i skipu- lagslausan flótta. Að baki þeim lágu látnir og særðir í hrönnum. Á fimmtán mínútria stundar- korni hafði Pickett misst á þriðja þúsund manna. Við hliðarfótinn tókst Pickett að koma skipu- lagi á leifarnar af sinni glæsilegu herdeild. Hann raðaði þeim upp að hýju og hrópaði einu sinni enn: —• Áfram! Hrekjum Norðanmenn heim til sín! Og hinir gráklæddu stríðsmenn, strangir á svip og ataðir svita og blóði, þustu fram einu sinni enn, beint á móti bannvænni skothríð úr byssu- kjöftum Norðanmanna, er nú hafði greinilega aukizt þróttur að unnum fyrsta sigri. Báðir hliðararmar hers þeirra sendu nú þétta kúlnahrið á miðsveitir Suðurhersins, eftir að báð- um áhlaupsörmum hans hafði verið sundrað og þeim eytt að mestu. Það var aðeins miðherinn, sem enn var vígfær um stund. En hann var einnig stráfelldur. LOKAÖSIGUR. Klukkan hálffjögur var öllu lokið. Á þrjátíu mínútum hafði Pickett beðið einn ofboðslegasta ó- sigur í veraldarsögunni. Þeir, sem eftir lifðu, lögðu á flótta. Án minnstu reglu flýðu þeir í ofboði til sinna fyrri stöðva við_ Skólahæð og skildu eftir mörg hundruð fanga. Á samri stundu hópuðust sigurreifir, bláklædd- ir Norðanmenn saman uppi á Kirkjugarðshvoln- um, svo að þúsundum skipti. Og sólmettað síð- degisloftið kvað við dynjandi fagnaðarópum sigur- vegaranna yfir unninni orustu. 1 fyrsta sinni um tveggja ára skeið hafði Norður- herinn unnið sigur í úrslitaorustu. Þegar Meade hershöfðingja voru færðar fréttirnar um, að lið- sveitum Picketts hefði verið stökkt á flótta, svar- aði þessi fátalaði West-Point maður með einum þremur orðum: — Guði sé lof! Br á kveldið leið, hafði Pickett gert sér fulla grein fyrir manntjóni því, sem herdeild hans hafði orðið fyrir. Virginíuhermenn hans höfðu verið 4.800 talsins, margir þeirra svo ungir, að þeir heíðu getað verið synir hans. Af þeim voru 3.393 fallnir, særðir eða herteknir, liðsforingjar og ó- breyttir hermenn til samans. Af þeim fimmtán þúsundum manna, er tekið höfðu þátt i áhlaup- inu, voru yfir sjö þúsund fallnir, ssprðir eða sakn- að. Og allt hafði þetta gerzt milli klukkáh þrjú og hálffjögur. En Norðurherinn hafði einnig beðið mikið tjón. Á þeim þremur dögum, er bardagarnir um Gettysburg höfðu geisað, voru yfir 23.000 manna þeirra fallnir eða særðir. Hafði meiri hluti þeirra týnt lífi í hinu ofsalega áhlaupi Picketts. Aftur á móti höfðu þeir loks borið hærra hlut i orustu við hinn ósigrandi Lee hershöfðingja. „Grái herinn" var gersigraður og hrakinn á flótta. Þegar Pickett lagði skýrslu sína um ófarirnar fyrir yfirhershöfðingja Sunnanmanna, svaraði Lee: — Það var mín sök, Pickett hershöfðingi, mér að kenna allt saman. Það var ég, sem vildi, að þessi orusta yrði háð, og það er ég og ég einn, sem ber að ákæra. Þér og menn yðar hafið gert allt, sem i mannlegu valdi stóð, og þið eigið all- an heiður skilinn fyrir yðar hetjulegu þátttöku og 'fórnfýsi. En Pickett hershöfðingi svaraði: — Sá heiður er ekki til, er megni að vega móti sorginni hjá ekkjum, foreldrum og föðurleysingjum, herra hershöfðingi. Upp írá þessu fór stjarna Lees hershöfðingja læklcandi. Hann hafði byggt alla von sína á áhlaupi Picketts. Og aldrei höfðu Suðurríkin verið svo nærri sigri í þessari. blóðugu borgarastyrjöld sem þá, er hinir harðfengu hermenn Picketts voru um það bil að ná undirtökum uppi á Kirkjugarðs- hvolnum við Gettysburg og höfðu nær því stökkt Norðanmönnum á flótta — fyrir fullt og allt. Nú fór allt á annan veg. Herguðinn hafði snúið baki við Lee yfirhershöfðingja. Tuttugu og fjórum árum síðar, hinn 3. júlí 1887, mæltu gamlir liðsmenn bæði úr herl Sunnan- og Norðanmanna sér mót á hinum þlóði stokknu bar- dagahæðum við Gettysburg. Þar lágu þeir i gras- inu og rifjuðu upp gamlar minningar frá þessum hryllilegu dögum, er ollu svo örlagarikum breyt- ingum, ekki einungis á sögu Bandaríkjanna, heldur veraldarsögunni í heild. siiálhflHjipilkiiiji heimilistækin hafa staðist dóm reynslunnar nýtízkuleg hússtörfin H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN, HAFNARFIRÐI ■ .• • '•■............. ---#•* ________________. VlkAN 35

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.