Vikan


Vikan - 10.08.1961, Page 2

Vikan - 10.08.1961, Page 2
/ 'SÁVM mm ...........v .í'. W&feitS&sSÍMS&íífówi Slankbelti eða brjóstahaldari er undir- fatnaður, sem þér kaupið ekki nema að vel athuguðu máli. Lifstykkjavörur eru það þýðingarmikill þáttur í klæðaburði yðar, að nauðsynlegt er að velja þær með fyllstu nákvæmni. Spyrjið um hinar vel þekktu KANTER'S lífstykkjavörur, sem eingöngu eru framleiddar úr beztu efnum, í nýjustu sniðum. Þér getið ávallt verið öruggar um að fá einmitt það sem yður hentar bezt frá Þeim fjölgar stöðugt sem nota netteygju- buxur, vegna þess hversu þægilegar þær eru að vera í. Myndin er af KANTER'S teg. 3277, valið sniö úr vönduðum efnum, með lausum sokkaböndum. FRAMTÍÐARMÖGULEIKAR. Tvær smástelpur, 6—7 ára, stóðu og töluðu um framtiðina. — Hvað ætlarðu að verða, þegar þú ert orðin stór? spurði önnur. — Ég, svaraði hin. Ef ég fæ stór brjóst, ætla ég að verða leikkona, en ef ég fæ ekkert ætla ég að verða kennslukona. Ameriski kvikmyndaframleiðand- inn, John Huston, ætlar að gera kvikmynd um austúrríska iækninn Sigmund Freud, en það er fyrirtæki, sem ættingjar Freuds eru mikið á móti. Þeir eru hræddir um, að kvik- myndin geri líf Freuds að hlægi- legum skrípaleik. John Huston reiknar nú samt með jívi, að fjöl- skyldan samþykki, þegar hún sér handritið. Það er enginn annar en Smælki Jcan — Paul Sartre, sem skrifaði- kvikmyndahandritið, og hann á eftir því sem sagt er, að hafa búið til fallega og hógværa sögu. Áður en hægt er að byrja að kvik- mynda, er nauðsynlegt að fá sam- þykki fjölskyldunnar. En það er ekki það eina, sem amar að, segir Huston. Ég hef ekki hugmynd um, hvern ég á að láta leika Freud. Sem stendur man ég ekki eftir neinum, sem gæti tekið hlutverkið að sér. Svarti sauðurinn i fjölskyldu Fabiolu Belgiudrottningu, er hinn 32 ára gamli bróðir hennar, Don Jaime de Mora. Hann hótaði meðal annars á sínum tíma, að gera ein- hvern „skandala" við brúðkaup systur sinnar og siðasta uppátæki hans er það, að gerast leikari. Hann hefur fengið lítið hlutverk i ítalskri kvikmynd, sem verið er að taka í Róm. Það er sagt að liann sé ekki alveg hæfileikalaus. — Loksins hef ég dottið ofan á vinnu, sem ég hef áhuga á, segir hann. Og hann bætir þvi við, að hann muni ekki fara til Spánar í bráðina, að minnsta kosti, eklci fyrr en reiði fjöiskyldunnar lægir. — Og þó svo að mér heppnaðist að koma í stutta heimsókn til ætt- iands mins, segir hann, mundi fjöl- skyldan sjá um, að ég gæti aldrei komist þaðan aftur. BÍÓ f HÁLOFTUM. Hið volduga ameríska flugfélag TWA hefur komið á fót fyrsta fljúg- andi kvikmyndahúsinu. Á löngum millilandaferðum eru sýndar kvik- myndir á lérefti, sem hengt er upp fyrir enda miðgangs flugvélarinnar. Sætunum er þannig fyrirkomið að farþegarnir ráða hvort jæir horfa á myndina. Og við hvert sæti er snilldarlega útbúið heyrnartæki, þannig að farjiegarnir ráða einnig hljóðstyrldeika. ... Það er fallegur siður að kyssa börnin sin góða nótt. En það er erfitt að halda sér valcandi, þangað til þau koma heim ... STJÓRNMÁL. Það hefur verið tilkynnt frá Bonn, að Adenauer kanslari ætlist alls ekki til þess að félagar hans í ríkisstjórninni, segi já og amen við öllum hans tillögum. Það er alveg nóg að þeir segi já. Tekið upp úr erlendu blaði: ... Tvö lík lágu þegar á götunni og þeir reyndu að hrópa upp til himna, að það væri lífshættulegt að hoppa út um gluggann. Allt var þakið reyk og ... —o— — Haldið þér vilduð ekki setjh þessa grímu á yður í dag, kæra fröken, konan mín getur nefnilega komið á hverju augnabliki. — En hvað þetta er yndisleg perlu- festi, en hafðirðu annars ráð á þessu, elskan? 2 vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.