Vikan


Vikan - 10.08.1961, Síða 20

Vikan - 10.08.1961, Síða 20
FALLEG Á NÆTURNA Það varð uppi fótur og fit. Fallega skrif- stofustúlkan okkar ætaði að gifta sig, og henni varð skyndiléga Ijóst, að ef hún birtist með andlitið þakið næringarkremum og með rúllur og spennur i hárinu, mundi hinn ný- hakaði eiginmaður fljótlega missa alla þá trú, sem hann hafði haft á fegurð hennar, og það álit á henni, sem hún hafði vandlega reynt að koma inn hjá honum. — Hann heldur, að ég sé falleg frá nátt- úrunnar hendi, stundi hún upp. — Já, en það ertu, sagði ég hughreyst- andi. — Nei, ef ég nota ekki næringarkrem, verð- ur húðin á mér þurr og gróf eins og sand- pappír, sagði hún i uppgjafartón. Hárið á mér er alveg slétt, ég get alls ekki haft perman- ent.og það versta af öllu er, að augnabrúnir og augnahár eru alveg ijós, svo að án máln- ingar er ég alveg ómöguleg. Gamaldags. — Hertu upp hugann, sagði ég, en það tók mig nokkurn tíma, að sannfæra hana um það, að það væri bæði gamaldags og ó- nauðsynlegt að fara í rúmið með andlitið þakið í feiti og höfuðið þakið pinnum og nálum. Allir rekast á þetta vandamál fyrr eða siðar. En livort sem maður er giftur eða ógiftur, er lítið vit í því að fara í rúmið eins og fuglahræða nú á tímum. Geymið stríðsmálninguna. Allt, sem heitir málning verður að hverfa, áður en þið leggizt til svefns, það er að segja, ef þið kærið ykkur að hafa slétta og fína húð, en helzt ætti að gera það i einrúmi. Hafið lireinsunarkrem, baðmull eða andlitsþurrkur ásamt næringarkremi og góðu andlitsvatni í skemmtilegu íláti eða öðru þess háttar í bað- herberginu, þannig að snyrtivörurnar liggi ekki eins og hráviði út um allt. Kvöldverkin. Hreinsunarkremið verður að bera tvisvar á, i síðara skiptið er það fjarlægt með rakri haðmull. Svo smyrjið þið þunnu lagi af nær- ingarkremi á andlit og háls og leyfið þvi að vera þar, meðan þið gerið annað, t.d. burstið ykkur tennurnar, þvoið og setjið í hárið. Þetta með að setja í hárið er hægt að minnka mjög mikið, ef þið hugsið vel um það og þvoið það oft. Mjög Htið permanent gefur mátulegar bylgjur í hárið, án þess að það sé stífkrullað. Ef þið neyðizt til að setja f ])að, þá vefjið lokkunum upp í flata hringi og festið spennum eða (klippsum), og þekið svo allt járnaruslið með fallegu hárbandi, sem á við náttkjólinn. Þegar búið er að ganga frá hárinu, nudd- ið þið hinu þunna lagi af næringarkremi, sem var á andlitinu, með léttum strokum inn í húðina, en afganginum þurrkið þið af með andlitsþurrku, og éf liúðin er þá ennþá dá- lítið klístrug, þá farið yfir hana með ör- litlu andlitsvatni. Augnhár og brúnir. Ljósar augnabrúnir og augnhár eru dálitið leiðinlegt fyrirbæri, það verður að viður- kenna, og það er ekki gott að hafa málningu á þeim um nætur. Þetta vandamál er leyst með því að fá sér ekta lit. Það kostar ekki svo mikið og helzt i fimm til sex vikur. Enn minna kostar það, ef þið gerið það sjálfar. Ekta lit til notkunar heima má kaupa i snyrti- vöruverzlunum, en þá þurfið þið að vera ör- uggar í höndunum og lesa leiðarvísinn vel. Engan varalit. Sumir varalitir skilja örlítinn blæ eftir á vörunum, þannig að þeir verða aldrei alveg litlausir, en varaliturinn er nú það, sem er minnst áríðandi af stríðsinálningunni. Þið skuluð því sleppa lionum. Hress, hrein, ilmandi, — þannig dreymir væntanlegan eiginmann um elsku litlu kon- una sína. Úr því að við tölum svona mikið um hreinsunar- og nær- ingakrem, er ekki úr vegi að minnast á eitt, sem nýkomið er á markaðinn, en það er Placenta-krem. Það er framieitt i Þýzka- landi og inniheldur efni, sem eiga að hafa yngjandi og styrkjandi áhrif á húðina, — eða með öðrum orðum, eins og stendur í leið- arvísinum, styrkir eðlilega starfsemi húð- vefjanna og eykur blóðsóknina til liörunds- ins. Hrukkur og drættir liverfa, sömuleiðis öll óhreinindi í húðinni. Þar sem að þetta eru nú nokkuð algeng orð, ákváðum við að reyna þetta krem, og niðurstaðan varð sú, að þetta hefur mjög styrkjandi og yngjandi áhrif á húðina, en eins og að h'kum lætur er ungum stúlkum ekki ráðlegt að nota þetta, það er helzt til sterkt fyrir þær. Mikil áherzla er lögð á ]iað í leiðarvísinum að nota kremið einnig á brjóst og háls. Ástæðan til þess, að kremið hefur svo mikil áhrif, er sú, að það eykur mjög blóðsókn til húðarinnar, og verður hún því mýkri og fyllri. En eins og áður segir, er kremið frekar fyrir konur en unglings- stúlkur. JANOME snumnvclin Ein af þessuin nýtízku saumavélum, sem gerir allt, en kostar ekki nema 5.351 krónu. Hvernig stendur á því? Hún er japönsk, og eins og allir vita, eru japanskar iðnaðar- vörur að setja allt á annan endann á heimsmarkaðnum. Þær eru miklu ódýrari en aðrar iðnaðarvörur, og stafar það af þvi, að vinnukraftur er svo ódýr í Japan. En þar fyrir eru vörur þessar alveg jafnvandaðar og endingargóðar og aðrar. Það þarf vist varla að fara að segja nútímahúsmæðrum, hvað saumavélar gera, en hún saumar út alls kyns listsauma, festir á hnappa og býr til hnappagöt, „applikerar“ og getur sem sagt gert allar hundakúnstir. Hún er mjög þægileg í meðförum, og gott er að fá vara- hluti í hana — fyrir utan það, sem fylgir með. Mjög góður og nákvæmur leiðarvisir fylgir með í kaupunum, og einnig er unnt að fara og skoða hana í verzluninni. En ástæðan til þess, að kvennasíðan vill benda lesendum sínum á þessa vél, er sú, hvað hún er einstaklega ódýr, en þó vönduð. Og ekki veitir af þvi að hafa allar klær úti á þessum síðustu o. s. frv. Hér er vélin að bródera.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.