Vikan


Vikan - 10.08.1961, Side 21

Vikan - 10.08.1961, Side 21
BlómUál Blómkál er bæði hollt og ljúffengt, en það þolir illa geymslu nema fryst eða niðursoð- ið. — Þegar matreiða á blómkál, eru y/.tu grófu blöðin tekin af og kálið lagt i salt- vatn um stund (ef maðkur væri i því). Látið i sjóðandi saltvatn. Bezt er að gufusjóða blómkál. Suðutími fer eftir stærð og einnig eftir því, hvort kálið er soðið í hríslum eða heilt. Hríslur þurfa 3—5 min. suðu, Iieil höfuð 8—10 mín. suðu. Blómkál er ljúffengt soðið eða lirátt. Það er notað i salöt, súpúr og margs konar rétti. Hrátt blómkál m/gulrótum og rúsínum. 1 lítið blómkálshöfuð, 2 gulrætur, 50 gr rúsínur, 1VL> dl súr rjómi (eða ósúr rjómi, og er þá sítrónusafa bætt í salat- ið), 1 msk. sykur, Vt tesk. paprika. Blómkálinu er skipt í smáhríslur. Gulræt- urnar eru hreinsaðar og rifnar á finu rif- járni, rúsínurnar þvegnar. Paprikan er hrærð með sykrinum og sitrónusafanum, — rjóminn þeyttur, blandað saman við. Soðið grænmeti. Grænmetistegundirnar fara eftir árstiðum, en Ijúffengast er það nýupptekið. Sé það haft sem sjálfstæður réttur til miðdegisverðar, er hæfilegt að sjóða 2—4 tegundir. Þær teg- undir, sem þurfa lengsta suðu, eins og t. d. gulrætur, eru látnar neðst í pottinn eða á gufuristina og síðan eftir suðutíma. Soðið er i litlu saltvatni, látið á vel heitt fat eða borið fram í tauservíettu (þá helzt það bet- ur heitt). Yfir grænmetið er fallegt að strá steinselju eða karsa. Borið fram með hrærðu smjöri eða sósu, t. d. karrý- eða tómatsósu. (Meðfylgjandi mynd sýnir blóm- kál, rósinkál, gulrætur og grænar baunir.) Sósa, sem er góð með köldu, soðnu blómkáli. 1 harðsoðið egg, 1 eggjarauða, salt, pip- ar, sinnep, 1 msk. sítrónusafi, 2 dl þykk- ur rjómi. Bjóminn er hálfþeyttur, eggjarauðan hrærð með kryddinu, blandað í rjómann ásamt söxuðu egginu. Blómkálshöfuðin eru látin á fat, sósunni hellt yfir, skreytt með salatblöðum, tómötum og steinselju. Blómkálsbakstur. 2 blómkálshöfuð, 25 gr smjörlíki, 25 gr hveiti, salt, pipar, um 3% dl blómkáls- soð, 3 egg. Blómkálið er hálfsoðið, kælt. Soðið er jafnað með mjölbollu (smjörlíki og hveiti hrærð í bollu, sem látin er út i sjóðandi soðið). Eftir 5 mín. suðu er sósan krydduð. Eggjarauðurnar þeyttar varlega saman við og síðast stifþeyttum hvítunum. Helmingur deigsins er látinn í vel smurt, eldtraust mót, þar yfir blómkálshríslurnar og það, sem eftir er af deiginu. Brauðmylsnu og rifnum osti skreytt með tómatbátum og steinselju, — borið fram með bræddu eða hrærðu smjöri. er stráð yfir, bakað i um 30 mín, við 200°, Blómkál í jafningi. 1 blómkál (Vz kg), 25 gr smjörlíki, 25 gr hveiti, 2—3 dl mjólk, % tesk. salt, % tesk. pipar, 1 te-sk. sykur. Söxuð steinselja. Smjörlíkið brætt, hveitið hrært saman við. Þynnt út með mjólkinni, sem er heit. Salt, pipár og sykur sett i eftir vild. Soðið i 5 mín. Blómkálið, sem þegar hefur verið soðið, tekið sundur í smáhríslur og jafningnum hellt yfir það á fat. Þegar þetta er borið fram, er stéinseljunni stráð yfir. í staðinn fyrir mjólk, er hægt að nota blómkálssoð. Þetta er borðað með kjötréttum, pylsum, steiktum blóðmör o. fl. Blómkálssúpa. 1 blómkálshöfuð, ÍVí 1. kjötsoð, 30 gr smjörlíki, 25 gr hveiti, 2 eggjarauður eða egg, 1 tesk. sykur, salt. Bezt er að nota kálfskjötssoð. Blómkálið er soðið i kjötsoðinu, sem er siað, þar til það er meyrt. Smjörlíkið er brætt, hveitið hrært út í, þynnt út með kjötsoðinu. Þegar sýður, er blómkálið, sem tekið er í smá- hríslur, látið út í, eggjarauðan hrærð með sykrinum, súpan hrærð smátt og smátt út í eggjarauðuna, hellt í pottinn aftur, en má ekki sjóða. Salt er sett i eftir smekk. Það er ekki nauðsynlegt að hafa kjötsoð, þá bara kálsoðið. Pvjónmó pils Efni: 170 gr af rauðu 4 þráða ullargarni, 115 gr af hvítu garni af sama grófleika. Prjónar nr. 3 og 3%. 14 1. prjónaðar sléttar á prj. nr. 3% = 5 cm. Afturstykki: Byrjið að neðan. Fitjið upp 168 1. með rauðu garni á prj. nr. 3V. Prjónið 1 umferð slétta, þar sem farið er í innri hlið lykkjunnar; við það myndast gróf umferð. Prjónið 7 umf. sléttprjón, síðan 1 umf. slétta frá röngu, sem faldurinn er síðar brotinn um. Prjónið áfram sléttprjón, 14 umferðir. 1 seinustu umferð er tekin úr 1 1. (167 1.). Prjónið nú mynzturbekkinn eftir myndinni. (3 1. eru milli stöku lykknanna og bekkirnir 5 umf. hver.) Geymið rauða garnið, og prjónið með Því hvíta. 1. umf. slétt, 2. umf. brugðin, 3. umf. 3 1. sléttar með hvítu garni *, 1 1. rauð, 3 1. hvítar *; endurtakið frá * til * umf. á enda. 4. umf. brugðin með hvítu. 5. umf. slétt með hvítu. 6. umf. brugðin með rauðu. 7. umf. slétt með rauðu. 8. umf 1 1. br. með rauðu * 1 1. br. með hvitu, 3 1. rauðar *; endurtakið frá *, þar til 2 1. eru eftir, þá er fyrri 1. prj. hvít, en sú síðari rauð. 9. umf. slétt með rauðu. 10. umf. brugðin með rauðu. 11. umf.—15. prjónast eins og 1.—5. umf. Haldið nú áfram að prjóna með rauða garninu. Aukið út 1 1. í seinustu mynzturumferðinni, við jaðar (168 1.). Prjónið 34 1. sléttprjón. Takið nú úr þannig: * 12 1. sl., 2 1. sl. saman *, endurtakið frá * til * umf. á enda. Prjónið 5. umf. sléttþrj. 2. úrtökuumferð * 11 1. sl., 2 1. sl. saman *; endurt. frá * til * umf. á enda. Endurtakið síðan þessar 6 umf. 5 sinnum. Prjónið alltaf 1 umf. minna milli úrtökuumferðanna (84 1. á prj.). Prjónið nú 10 umf. brugðning; 1 1. sl. og 1 1. br., á prj. nr. 3; fellið af, og ath. að prjóna slétt, sem slétt er, og brugðið, sem brugðið er, um leið og fellt er af. Framstykki: Prjónið eins og afturstykki, þar til úrtökum er lokið (84 1. á prjóninum). Framhald á bls. 36. VIKAN' 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.