Vikan - 18.01.1962, Blaðsíða 4
Japönsku hjólbarðaverksmiðjurnar
BRIDGESTONE
bjóða yður:
Lægsta verðið - Beztu endinguna
Mesta öryggið
Allar upplýsingar hjá einkaumboðinu á Islandi
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Laugavegi 178. — Simar 36840 og 37880.
Læknar kváðu l'yrir löngu hafa
skýrl orsök þess, að mann dreymir
að hann fijúgi viðstöðulaust yfir
ár og læki og aðrar liindranir. Sál-
fræðingar kváðu líka gerta skýrt or-
gB JBJIJB nja UUOUI gB SSOCj T[OS
strita við að koma draumum sínum
í framkvæmd í veruleikanum, eða
vona að þeim takist það — þetta
4 VIKAN
VIKAJSI
og taekn in
Ornumurínn rwtist
kvað ailt byggjast á hversdagslegri
líffærastarfsemi, hormónahlutföll-
um og öðru þess háttar, öldungis
eins og ástin og guðstrúin og trúin
á annað lif. Með öðrum orðum,
þetta stafar allt af efnaskiptum
og kirtlastarfsemi, og ef heilading-
ullinn í Napoleoni sáluga mikla
hefði eklci verið eithvað afbrigðileg-
ur, hefði hann aldrei orðið Napoleon
milcli og mannkynssagan öll önnur
en hún var á tímabili að minnsta
kosti. Svona er þetta atlt sáraein-
falt, þegar það er lesið ofan í kjöl-
inn. Það eru meira að segja til svo
sérfróðir séi fræðingar, að þeir telja
sig geta sannað að allt þetta líf
okkar sé eingöngu plat og snuð líf-
færastarfseminnar og skynjana okk-
ar og ekki neitl mark takandi á
neinu. -
Látum svo vera og gerum öllum
Iæknum, sálfræðingum og sérfræð-
ingum ])að til geðs að trúa þeim.
Samkvæmt því, er það jxá ein af nýj-
ustu blekkingum skynfæra okkar, að
hinn ævagamli draumur hafi nú
rætzt, og við getum svifið fyrirhafn-
arlítið yfir ár og læki og aðra
minni háttar vegartálma, með til-
tölulega einföldum tækjum, sem við
þurfum ekki annars við en spenna
á bak okkar. Og það er ekki ein-
göngu svo, að skynfæri okkar láti
blekkjast af þessari sjónhverfingu,
heldur líka Ijósmyndavélin, eins og
meðfylgjandi myndir sýna.
Áhrif tækninnar segir víða til sin.
Fyrir nokkrum árum voru eingöngu
til valmenni, góðmenni, hraust-
menni, afreksmenni, ómenni, lubba-
menni og skítmenni. Fyrir nokkrum
árum bættust svo froskmenni i
þessa fríðu fylkingu, og nú eru þotu-
mennin lika komin fram á sjónar-
sviðið. Mundi nú ekki ástæða fyrir
Árna sáluga Pálsson að spyrja:
„Hvar lendir þetta?“ Og það eru ein-
mitt þotumennin, sem hafa nú, með
aðstoð tækninnar, gert þennan svif-
draum mannsins að veruleika. Þeim
er það leikur einn að taka sig allt að
því seytján metra i loft upp og svífa
100—300 m í einum áfanga, og
lenda síðan, hægt og mjúklega, þar
sem þeim býður við að horfa. /Etli
þeim hefði ekki þótt þetta nokkur
munur, öfum okkar og langöfum,
þegar þeir voru að basla við að
komast yfir stórár I leysingum í
gamla daga, og kunnu ekki önnur
ráð en fyJla vasa sina grjóti og;
skríða svo i kafi eftir botninum
bakka á milli?
Og víst hefði það verið munur..