Vikan


Vikan - 18.01.1962, Blaðsíða 14

Vikan - 18.01.1962, Blaðsíða 14
Baldvin Jónsson hrl., forseti Flug- máiafélags Islands. ÁRSHÁTÍÐ Flugmálafélags Islands Þau virðast skemmta sér vel. Katrfn Eiríksdótíir og Guðbrandur Magnús- son. Ólöf Ottósdóttir, Gunnar Hilmarsson og Sigríður Sverrisdóttir sýna í verki spakmælið: Eining andans í bandi friðarins. Flugmálafélag íslands efndi til árshátíðar að Lídó, þann 1. des. s.l. Var það mikið hóf og fjöl- sótt, veizlumatur á borðum og veigar Ijúfar, ræður haldnar og minni drukkin, en að lokum skemmtiatriði og dans. Fór árshátíð þessi fram með virðuleik og gleðibrag í senn, og voru allir á einu máli um að hún hefði tekizt mætavel. Baldvin Jónsson hrl., fórseti Flugmálafélags . Isiands, setti árshátiðina með ræðu, og þegar gestir hófðu gerl krásum þeim, sem fram voru rciddar, nokkur skil, kvaddi flugmálaráð- lurra, Ingólfur Jónsson, sér hljóðs og ávarpaði gesti með sk.örulegri ræðu. Þá fór fram afhend- j ing gullmerkis félagsins, og var Halldór Jónas- son, einn af elztu forvígismönnum flugs og flug- mála hér á landi, heiðraður með því að þessu sinni. l>á talaði Loftur Guðmundsson rithöf- undur; nefndist þáttur lians „Flugtak og lend- ing“, og mun óhætt að fullyrða að hann hafi haft marga viðkomustaði i máli sínu. Á miðnætti fór fram óvenjulegt skemmtiat- ■ riði, scm vakti hina mestu ánægju og kátínu, en sami galli 'er á því og öðrum góðum skemmti- atriðum, að því verður ekki með orðum lýst, . heidur verða menn að vera viðstaddir til að j njóta þess. í stuttu máli — nokkrir flugmenn j kappklæddu þar kvenmann, sem var litt klædd fyrir, og sakar kannski ekki að taka fram, að þar var um nælonkvinnu að ræða. Skemmtinefnd árshátíðarinnar skipuðu þeir • Leifur Magnússon verkfræðingur, Skapti Þór- j oddsson starfsmaður flugmálastjóra og Valdi- • mar Ólafsson flugumferðarstjóri. <] Loftur Guðmundsson hvílir sig og hugsar málið,„ eftir að hafa flutt skemmtiþáttinn „Flugtak ag: lending“. Björn Pálsson sjúkrafiugmaður og kona hans: Gullmerki Flugmálafélagsins hlaut Halldór Jónasson frá Eiðum, sem hér sést ásamt konu Guðbrandar Magnússonar.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.