Vikan


Vikan - 18.01.1962, Side 24

Vikan - 18.01.1962, Side 24
íltsnla/ Útsalfl/ Myndirnar, sýna greinilega að það er útsala í verzluninni, og viðskiptavinirnir rítast um að ná i vörurnar. 1 rauninni eru allar útsölur nauðalíkar, svo var1; má á milli sjá, og ef þið gætið betur að, þá er sýnilegt að annað hvort eru þess- ar tvær myndir ekki frá sama stað, eða að teiknaranum hefur mistokizt dálítið. Það eru nefnilega átta atriði á mynd- unum, sem eru alls ekki eins, og nú er að vita hvort þið getið fundið Þau. Lausnina er að finna annars staðar á þessri síðu — og Þið verðið líka að leita að henni. Litamynd Og svo er hér ein mynd handa ykkur til að lita. Hann virðist vera eitthvað bilaður, bílgarm- urinn á myndinni, og viðgerðarmaðurinn hef- ur svo mikið að gera að hann má ekki vera að því að hjálpa okkur. En kannske þið kunnið að gera við bíla? Það er einna bezt að byrja á því að lita alla reiti, sem eru merktir með X. Það er alveg sama hvaða lit þið notið, þið megið jafnvel nota til þess blýant. En reitina, sem merktir eru með O, skulið þið endilega mála rauða, ef Þið eigið til rauðan lit. Þegar þetta er búið, hafið þið gert við bil- fnn, en þá er eftir að mála hann. Það getið þið svo auðveldlega gprt með litunum ykkar. Fyrir yngstu börnin Það lítur ekki út fyrir annað en að þau skemmti sér vel, Péiur og Anna. Þau eru bæði með blöðru og ís hafa þau líka bæði fengið. Anna á sinn ís ennþá, en Pétur virðist hafa lokið sínum. En aætli það sé nú alveg víst? Hvað skyldi hafa orðið af ísnum lians? Nú skuðuð þið vita hvað þið finnið meira á myndinni. Fáið ykkur blýant og dragið strik á milli tölustafanna, og byrjið á punktinum við númer eitt. — Góða skemmtun. Okkur er sagt að það séu hvorki meira né minna en tíu íkornar á myndinni að tarna, en við getum ómögulega fundið þá alla, hvernig sem við reynum. Þess vegna verðum við að snúa okkur til ykkar, til að vita hvort Þið getið nú ekki hjálpað okkur. En við skulum kenna ykkur ráð til þess að þið verðið fljótari, því svo aumir eru við ekki, að við getum ekki sagt ykkur eitt- hvað til. Þið skuluð nefnilega lita alla þá íkorna, sem þið finnið, sinn með hverjum lit, og þá ruglizt þið ekki á þeim. Þegar þið eruð svo búin að finna Þá alla, skuluð þið telja þá og vita hvort þeir eru ekki tiu, — eins og okkur var sagt. LAUSN Á ÚTSÖLUGÁTU: — 1. Stóllinn fremst. 2. EfniO, sem er fyrir framctn afgreiöslumanninn efst. 3. SokTmr fremst til vinstri. !h Hattur konu til vinstri. 5. Taska konu til vinstri. 6. Fótur á konu fremst. 7. Vegvísir. 8. Handfang á regnhlíf efst til heegri. 24 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.