Vikan


Vikan - 18.01.1962, Qupperneq 25

Vikan - 18.01.1962, Qupperneq 25
HVAÐ ER DULVITUMD? DJÚPT í HUGARINS LEYNUM. Ungur kennari varð fyrir sérkennilegri reynslu. í miðri kennslustund, þegar honum fannst starfið altaka sig, gat allt í einu skotið upp í huga hans grófum og óviðeigandi orðnm, sem óðar voru komin fram á varir hans, svo að hann fékk naumast liindrað, að þau blönduðust inn í ræðu hans. Þetta fékk lionum mikillar skeifingar, þvi fremur sem hann stundaði kennsi- una af djúpri alvöru og samvizkusemi. Eftir að þetta hafði endurtekið sig nokkrum sinnum, fór óttinn að larca sjálfstraust hans; að lokum kveið hann fyrir hverri kennslustund. En þessar andstæður liugans voru honum alger ráðgáta. Svo iangt sem hann mundi, hafði hann ástundað hreint líferni, og saurugar hugsanir voru lionum andstyggð. Hvaðan hrutust þá þessir óboðnu gestir inn i vitund hans? Við þessari spurningu kunnu menn lengi ekkert svar. En um leið og Freud kom fram með það, bylti hann vitundarhugtakinu algerlega við. Fram á hans daga litu menn svo á, að vitundin væri sjálfs sin meðvitandi. Sálarfræði þeirra tíma gíimdi því einkum við hið meðvitaða sálarlif; öðrum sálrænum fyrirbærum var að mestu stjakað til hliðar. Freud aftur á móti uppgötvar annað vitundarsvið, dulvitundina. Dulvitundin geymir samkvæmt kenningu hans margvíslega reynslu, sem er ekki meðvituð, þótt hún kunni einhvern tíma að hafa gripið djúpt inn í tilfinningar okkar og viljalíf. Vökuvitund okkar nær því ekki yfir allt vitundarsviðið. Djúpt i fylgsnum sálarinnar geymist ómeðvitað margt það,_ sem einu sinni altók hugann og vakti sterkar tilfinningar í brjósti okkar. É'g á ekki við það, sem fjarlægist blikfeld vit- undarinnar og fellur í gleymsku, af þvi að hún hefir gegnt að fullu hlutverki sínu við það, t. d. að halda jafnvægi eða þekkja stafina. Við hæfilega æfingu verður það vélrænt og ósjálfrátt. Það eru miklu fremur sársaukafull atvik, sem vökuvitundin gerir útlæg, bælir niður; en dulvitundin geymir þann geðblæ, sem þau vöktu, þá tilfinningalífsröskun, sem þau ollu.' Þannig hverfur hið bælda ekki með öllu, þótt það gleymist, né heldur liggur það lífvana og óvirkt i dulvitundinni, eins og sekkur i geymslu. Það er iifandi, Framhald á blas. 28. DJúpt í fylgfsnum liugans geymist o- meðvituð lífsreynsla, sem einu sinní gragrntók liugrann. Þessi ástríðu- þrnngna tilfinning reynir að smjúga út úr dýflissu (liilvitundarinnar og velilur stnndum sálrænum kvillum. Dr. Matthías Jónasson: Sálkreppur og sálgreining Freud var ekki bú- inn að uppgötva dul- vitundina, þegar skáldið Tolstoy skrif- aði Önnu Kareninu, en þar gerir hann á meistaralegan hátt grein fyrir áhrifum dulvitaðrar lífs- reynslu, sem sýnir að hann hafði með skáldlegu næmi skil- ið þau sálaröfl. VIKAN 25

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.