Vikan


Vikan - 18.01.1962, Síða 33

Vikan - 18.01.1962, Síða 33
sem í baki'ð var. Streymdi þá úr honum vatnið, svo hann vó ekki móti hinum og komst Eiríkur i vand- ræði, unz prestur sá hvað um var að vera og skýrði honum frá því, en veitti drengjunum þungar átölur. Um orðheppni Eiríks verSa, rúms- ins vegna, tilfærS aSeins tvö dæmi. Eitt sinn „skrapp“ hann vestur i Stykkishólm fyrir Jón sýslumann á Meium eftir tólf fjórSungum af smjöri, sem hann bar á öxl sér aS vestan. „HafSu sæll gert, Eiríkur minn“, sagSi sýslumaSur, þegar Eiríkur færSi honum smjöriS. Ei- riki mun hafa þótt þakklætið þunnt, miðað við erfiSið: „Og ekki er þetta þakkarvert, elsku vinurinn", svaraði hann. „En það er ekki þar fyrir, að litið er það, sem hundstungan finnur ekki!“ í annað skipti, er Eiríkur gisti að Melum, mælti sýslumaSur við hann um morguninn, er þeir höfðu matazt: „ÆtlarSu ekki bráðum af stað, Eiríkur sæll?“ „Ó-nei“, svarar Eiríkur. „Konan þín vill jafnt og andskotinn, að ég fari á undan miðdegismatnum." Eitt sinn kom Eiríkur að Víkurá í Hrútafirði um haust, í svo miklum vexti, að hún var ekki talin væð. Eirikur ætlaði út í samt, en bóndi af næsta bæ kom að vaSinu og bauð honum hest yfir. „Það er hreina óþarfi, elsku vinur, og snúningar verða úr því“, svaraði Eiríkur. Bóndi vildi ekki fyrir nokkurn mun að Eiríkur færi að drepa sig í ánni, sækir hestinn og lét þá Eiríkur und- an. Riður hann hestinum yfir ána, en veður síðan yfir aftur, teymir hestinn og þakkar bónda ástúðlega greiðann. „Nú ertu ekki með öllum mjalla, Eiríkur minn, að koma vað- andi með hestinn“, sagði þá bóndi. „Ó-jú, elsku hjartað mitt!“ svarar Eiríkur. „Heldurðu að ég sé sá bölv- aður fantur, að skila ekki þvi, sem mér er léð? . . .“ Átök Eiríks við Guðmund nokk- urn „Godda“ sýna þó, að skaprikur gat hann verið og harðleikinn, ef illa var að honum farið, en Goddi þessi var klækjóttur og illmenni; átti það til að ráðast á menn og vildi ræna þá. Eitt sinn er Eiríkur var að sækja byrðar af hákarli á Holtsfjörur í Saurbæ, sat Goddi fyr- ir honum og vildi að hann léti eitt- hvað af hákarlinum af hendi við sig. „Ekki verður það, elsku vin- urinn, að ég láti það af hendi við nokkurn mann, sem minn sannkrist- inn náungi hefur trúað mér fyrir“, sagði Eiríkur. Og þegar Goddi brá hnifi og hugðist skera niður hákarls- lykkjur af baki Eiríks, snaraði hann af sér býrðinni, þreif Godda á öxl sér, hljóp með hann ofan að sjávar- máli og tvíhenti honum út í sjóinn: „Hér skalt þú nú drekkjast og deyð- ast, Guðmundur, eins og hann Faraó i hafinu rauða,“ sagði Eirík- ur og skildi þar með þeim. Eitthvað átti Eiríkur vingott við dóttur Godda, en þegar Goddi krafði hann skaðabóta fyrri spillt mann- orð hennar, svaraði hann: „Ekki verður nú af því, hjartans lífið, að ég tvíborgi sama hlutinn. Ég lét hana fá silkiklút og hangikjötskrof, og það var nóg!“ Vildi Goddi þá taka poka Eiríks, en Eiríkur snerist til varnar; urðu með þeim harðar og miklar sviptingar, sem lauk á því, að Eirikur hafði Godda undir, þreif steinhnullung og rak fast í munn honum, svo hann skrapp inn fyrir tanngarðana, og leyfði honum svo upp að standa. „Svona er nú ÁBYRGÐARTRYGGINGARS IGINGAR KEIMILISTRYGI INNBUSTRYGGINGAR RYGGfNGARINNBROTSÞJOFNAÐARTRYGGINGAI LÍFTRYGGINGAR IGLERTRYGGINGARJARiSIJi HEIMILISTRYGGINGARI SJOTRYGGINGARlYiATRYGGINGÁRBIFREII ALMENNAR TRYGGINGAR PÓSTHÚSSTRÆTI 9 mm SÍMI 17700 farið með nautin, þegar búið er að drepa þau,“ varð Eiriki að orði um leið og hann greip poka sinn og hélt á brott. Af Godda er það að segja, að hann komst til bæja og varð steininum loks náð út úr honum með þeim til- færingum, að glenntur var upp munnurinn með tréfleyg, eftir að heitir bakstrar hðfðu verið lagðir við kjálkana til að mýkja vöðvana. Það sem hér hefur verið sagt af Eiriki atómskáldi Ólsen, ætti ekki einungis að duga til þess að menn geti gert sér noklcra hugmynd um hann, eins og hann var á sinni tíð, heldur og hvernig hann mundi hafa orðið, væri hann uppi nú, og er sú mynd í sjálfu sér að minnsta kosti eins forvitnisleg. Síðustu atriði frá- sagnarinnar benda til dæmis ótvi- rætt í þá áttina, að harðsnúinn klikuforingi mundi hann hafa gerzt, og óvæginn og óeirinn í blöðum og timaritum, svo margur andstæðing- urinn hefði fengið stein í xnunn sér i óeiginlegri merkingu. Trúmennska hans við þá, sem hann réðist erinda fyrir, og dugnaður hans og harð- fylgi í þeirra þágu, veita og nokkra hugmynd um það, að ekki mundi hann hafa orðið ónýtur þeim stjórn- málaflokki, er hann réðist hjá, sér og list sinni til brautargengis — og sú staðreynd, að hann varð hvergi mosagróinn i vist, talar lika sinu máli. Loks bendir orðsnilld hans i tilsvörum ótvírætt til þess, að vin- sæll mundi Eirikur Ólsen verða i sínum hópi í veitingahúsum á sið- kvöldum, og ekki óliklegt að fyndni hans yrði landsfleyg og kæmist viða á þi'ykk í blöðunx og tímaritum. Áreiðanlegt er og það, að sér- kennileg framkoma hans mundi hvarvetna vekja mikið umtal og at- hygli, og færu því af honum margar sögur, sem yrðu list hans og snilli þýðingarmikil auglýsing — og kannski freistaðist hann jafnvel til, eins og títt er um marga listamenn, að draga að minnsta kosti ekki úr sérkennilegheitum sínum og fárán- legum tiltektum. Er víst um það, að spurning hlýtur að teljast, hvort það hafi verið okkur, eða Eiríki Ólsen sjálfum meira tjón, að hann fæddist fyrir eitt hundrað og átta- tiu árum en ekki tuttugu og fimm eða þrjátiu ... Og að endingu; þið, sem til þekkið •—- reynið að gera ykkur Eirilt Ólsen atómskáld í hugarlund stikandi um Austurstrætið; reynið að gera ykkur hann í hugarlund sitjandi inni i jeppa hjá velkunnum útgefanda ... inni á Laugaveg ellefu í hópi klíku- bræðra sinna yfir molakaffi eða kóka ... eða á Borginni við horð forystumanna okkar í menntamál- um og listum. Reynið — og þið mun- uð komast að raun um, að það ómak borgar sig. (Heimildir: P. Fr. Eggerz: Frá E’iríki Ólsen“. — Sögusafn Isafoldar, 1. bindi). VIKAN 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.