Vikan


Vikan - 18.01.1962, Side 38

Vikan - 18.01.1962, Side 38
Úrval í iiý.jiiin Ruiiiins'i Tímaritið ÚRVAL flytur ÚRVALS- greinar í samanþjöppuðu formi úr tíma- ritum og blöðum í öllum heimsálfum, þar á meðal íslenzkar greinar - einvörð- ungu ÚRVALS-lestrarefni, fróðleik og skemmtan fyrir alla. í hverjum mánuði er ágrip af ÚRVALS-bók. ÚRVALSTlMARIT eru um heim allan vin- sælustu tímaritin. T. d. er Reader‘s Digest vinsælasta tímarit heims, selt á hverjum mánuði í 21 milljón eintaka. ÚRVAL verður yfir 200 síður í hverjum einasta mánuði fyrir aðeins 200 krónur Beztu og ódýrustu bókakaup, sem ,ol er á hérlendis Til þess að fylgjast með því, sem er að ger- 3500 síðnr fyrir aðeins kr. 300 » ári Ég undirr... gerist áskrifandi að ÚRVALI og óska eftir að mér verði sent blaðið mánaðarlega. Nafn: ............................. Heimilisfang: ................... □ Greiðsla fylgir. Q Vinsamlegast sendið póstkröfu sem greidd verður við móttöku. Elskar mig — elskar mig ekki — Framh. af bls. 15. mér ekki, ég kem. Svo hafði hann hiegið, en hún stóð við gluggann og horfði á eftir honum, tárin höfðu brotizt fram i augum og runnið nið- ur í gluggakistuna. Síðan voru tvö ár, tvö löng ár. Hún hafði kynnzt mörgum strák- um þennan tíma, og jafnvel kysst nokkra en hún hafði aldrei fundið neitt líkt kossum þeirra Ándrés- ar. Dísa hrökk upp úr hugsunum sínum við að mamma hennar kall- aði á hana i síma. „Halló, Dísa, sæl elskan,“ þetta var Stína Jóa vinkona hennar, „viltu koma með mér á bíó i kvöld, það er ný mynd, sem heitir Þegar ástin er annars vegar. Dísa þagði augnáblik, svo svaraði hún: „Allt í lagi, Stlna, ég kem með.“ „Fínt ég kem kl. 7 að sækja þig, bless á meðan.“ „Bless,“ sagði Dísa og hengdi simtólið á simann. Dyrabjallan hringdi, klukkan var 7. Disa hljóp niður stigann til að opna fyrir Stinu, hún snérí smekk- lásnum og opnaði hurðina, lágt undrunaróp leið frá vðrum hennar, þrek hennar lamaðist, hún var mátt- laus i hnjáliðunum og hjartað barðist ákaft i brjósti hennar. Henni sortnaði fyrir augum um leið og ungi maðurinn dró hana að sér og hvíslaði: „Dísa, Disa, ég er kom- inn aftur, ástin mín“. Þannig stóðu þau dálitla stund og horfðu hvort á annað, svo sagði hann: „Dísa, veiztu að stundum áð- ur en ég fór til Ameríku efaðist ég um að ég elskaði þig i raun og veru, þú skilur Dísa, við karlmenn- irnir erum stundum lengi að átta okkur, en nú er ég viss, ég elska þig, Dísa, ástin mín“. „Komdu inn vinur minn,“ sagði hún, „ekki getum við staðið hér,“ og áttaði sig nú loks. „Já, en heyrðu Disa, nú skulum við fara í bíó eins og í gamla daga.“ Fjóla. Motur 09 brauð SOÐIÐ GRÆNMETI í MÁLMPAPPÍR. Þar sem matreiðsla grænmertis er einna vandamesti þátturinn i dag- legri matargerð vegna efnainni- halds, bragðs og litar þá er áslæða til að minna á að sjóða það 1 sem allra minnstu vatni, helzt á gufurist og eins litið sundurskorið og mögu- legt er. Á sama hátt og kjöt og fiskur er soðið og steikt i málmpappír er einnig gott að sjóða grænmeti þann- ig, þó sérstaklega ef um minni skammta er að ræða. Nýtt, niðursoðið eða frosið græn- meti er soðið eða hitað með þvi að leggja það í aluminiumpappír, strá á það salti og vefja pappírnum þétt utan um, svo að sem allra minnst gufa komist að. Látið í pott með litlu vatni og er þá ágætt að hafa t, d. gulrætur, sem þurfa langan suðutima neðst i pott- inum. Suðutiminn verður 4—5 min. lengri en venjulega. Grænmetið verður heillegt og mátulega soðið ef rétt er að farið. Soðna grænmet- isafganga er þægilegt að hita á þenhan hátt, þó að æskilegast sé að sjóða aldrei nema til einnar mál- tiCar i einu. Málmpappir er dýr en með góðri meðhöndlun er auðvelt að nota hann oftar en einu sinni. KARTÖFLUSALÖT. Eru þægileg og fljótleg með heit- um, eða köldum, kjöt, fisk eða græn- metisréttum. Þau má l)úa til á marga og mismunandi vegu. HEITT KARTÖFLUSALAT. % kg soðnar kaldar kartöflur, 1% dl vatn, 50 gr smjörliki, 1 stór laukur, IV2 msk. edik, ÍV2 msk. sykur, •% tesk. salt, pipar á hnifsoddi. Kartöflurnar eru skornar i frem- ur þunnar sneiðar. Laukurinn er einnig skorinn i sneiðar og soðinn með smjörliki, vatni og ediki, þar til hann er meyr. Þá er kryddið látið saman við og að siðustu kart- öflurnar. Borið fram vel heitt. KALT KARTÖFLUSALAT. OLÍUSÓSA (Mayonesse). 2 eggjarauður, % tesk. salt, % msk. sitrónusafi eða 1 tesk. edik, ca. 3 dl matarolia, pipar, sinnep. Eggjarauðurnar eru hrærðar með salti og sitrónusafa. Olían hrærð saman við. fyrst í dropatali, en þeg- ar sósan fer að þykkna er hellt í smá skömmtum og hrært vel á milli. Ef sósan þynnist (mærnar) er henni hellt i annað ilát, nokkrum dropum af köldu vatni hellt i skálina og sósunni þeytt þar út i smátt og smátt. Siðan er hún bragðbætt með kryddi og þeyttum rjóma ásamt kartöflusneiðum, eplum, banönum og gúrkum (sem skorið er i bita). Einnig er gott að hafa saxaðan lauk i þetta salat. Borið fram, vel kalt, með fiski eða kjötréttum, einnig gott með heitum pylsum. FLJÓTLEGT HEITT BRAUÐ. Snittubrauð er bezt, einnig má nota pylsubrauð (löng brauð) og er þá reiknað með einu brauði á mánn. Djúp rifa er slcorin eftir brauð- inu endilöngu, dálítið af brauðinu er tekið innanúr (það má nota i brauðmylsnu). Þar er smurt sterk- 38 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.