Vikan - 18.01.1962, Blaðsíða 42
Sameinaða Gufuskipafélagið
Kaupmannahöfn
1»
ÁÆTLUN
M.S. ORONNING ALEXANORINE
um ferðir milli
Reykjavíkur, Færeyja og Kaupmannahafnar
janúar-ágúst 1962.
YETRARFERÐIR JANÚAR-MAÍ 1962
Frá Kaupmannahöfn .. 12/1 31/1 19/2 9/3 27/3 13/4 14/5
Frá Þórshöfn 16/1 3/2 23/2 13/3 31/3 17/4 17/5
Frá Klaksvík 16/1 5/2 23/2 13/3 31/3 17/4 18/5
Frá Trangisvaag 17/1 5/2 24/2 14/3 2/4 18/4 18/5
í Reykjavik 19/1 7/2 26/2 16/3 4/4 20/4 20/5
Frá Reykjavík 22/1 10/2 1/3 19/3 6/4 25/4 22/5
Frá Þórshöfn 24/1 12/2 3/3 21/3 8/4 27/4 24/5
1 Kaupmannahöfn .... 27/1 15/2 6/3 24/3 11/4 30/4 27/5
SUMARFERÐIR MAÍ-ÁGÚST 1962
Frá Kaupmannahöfn .. 30/5 15/6 29/6 13/7 27/7 10/8 24/8
Frá Þórshöfn 2/6 18/6 2/7 16/7 30/7 13/8 27/8
Frá Klaksvik 2/6 19/6 3/7 17/7 31/7 14/8 28/8
Frá Trangisvaag 19/6 3/7 17/7 31/7 14/8 28/8
í Reykjavík 4/6 21/6 5/7 19/7 2/8 16/8 30/8
Frá Reykjavík 7/6 22/6 6/7 20/7 3/8 17/8 31/8
Frá Þórshöfn 9/6 24/6 8/7 22/7 5/8 19/8 2/9
f Kaupmannahöfn .... 12/6 26/6 10/7 24/7 7/8 21/8 4/9
SKIPAAFGREIÐSLA JES ZIMSEN
REYKJAVÍK — SÍMI 13025
4 Á-D-8-4-8
V 5-3-2
+ D-10
* D-7-5
A G-5-2
y K-G-9-7-6
♦ 7-5
10-8-4
V
♦
*
9-6
Á-10-8-4
4-3-2
K-G-3-2
A K-10-7
y D
4 Á-K-G-9-8-6
4 Á-9-6
V estur Norður Austur Suður
1 .hjarta(l) pass(2) 1 spaði(3) 2 lauf(4)
pass 3 lauf pass(5) 3 grönd(6)
pass pass dobl(7) 4 lauf(8)
pass pass pass
Flestir bridgesérfræðingar eiga
bágt meS að sitja á sér, hvað blekki-
sagnir snertir. Við og við verða þeir
að bregða sér i „blöffið“, þó það sé
aðeins til þess að skapa smá til-
breytingu í hinum annars kerfis-
bundnu sögnum. Spilið i dag er úr
rúbertubridge og fylgja hér á eftir
sagnskýringar. (1) Venjuleg fyrstu-
handar blekkisögn. (2) Norður spilar
Roth-Stone sagnkerfið og á því ekki
nógu sterk spil til þess að segja einn
spaða. (3). Þetta er ein af algeng-
ustu blekkisögnunum. Styðji maður
opnunarlit félaga vel er litil hætta
á þvi að reyna að stela lit frá and-
stæðingunum.
(4) Þetta er ágæt sögn. Suður er
að reyna að fiska dobl á þremur eða
fjórum tíglum eða að þreifa sig á-
fram í þrjú grönd, geti félagi stoppað
hjartað.
(5) Hann er viss um að fá að
segja aftur.
(6) Suður tekur sjansinn á þvl að
norður stoppi hjartað.
(7) Austur er nú viss um að fé-
lagi hans hefur opnað á blekkisögn,
en hann er hræddur um að andstæð-
ingarnir geti grísað þremur grönd-
um, ef ekki komi hjarta út og þess
vegna doblar hann. Doblið þýðir
náttúrulega að félagi eigi að spila
út i hjarta.
(8) Suður reynir enn að fá and-
stæðingana til þess að dobla lauf-
in og ætlar sér síðan að flýja í tigul-
ino fá hann einnig doblaðan.
Það veit enginn hver annan gref-
ur og eitt er víst að fjögur lauf unn-
ust ekki. Það er einnig augljóst að
sex spaðar og sex tiglar eru upp-
lagðir.
Hús og húsbúnaður
Framh. af bls. 8.
lands og ekki óeðlilegt, að fremur
sé reynt að stuðla að þvi með bygg-
ingarlaginu fremur en að hindra
það.
Raðhús eru ekki mjög gamalt
fyrirbrigði í byggingum bæjarins,
en lieldur vel látin það bezt ég veit,
enda hver íbúð algjörlega út af fyr-
ir sig. Það kernur í veg fyrir
árekstra, sem óhjákvæmilega fylgja
fjölbýli. Ekki endilega vegna þess,
að íslendingar séu svo miklir ein-
staklingshyggjumenn — eða réttara
sagt félagslega vanþroska, að þeir
geti ekki búið í fjölbýlishúsum.
Undir þá skoðun mun ég aldrei
taka. En einbýli er einbýli og það
hefur kosti fram yfir fjölbýli, sem
enginn þarf að efast um. Til dæmis
það, að geta sjálfur ræktað sinn
garð og haft eigin hentisemi um
upphitun ibúðarinnar.
Nú hafa verið byggð nokkur rað-
húsahverfi og ætti brátt að fást úr
því skorið, hvort dómur reynslunn-
ar verður þeim hliðhollur. Þáttur-
inn Hús og húsbúnaður bregður
hér upp myndum af ágætu
raðhúsi, sem byggt hefur verið við
Hvassaleiti og er dáfagurt útsýni
yfir golfvöliinn. Gunnar Hansson,
arkitekt, hefur teiknað húsið og tek-
izt vel eins og sjá má. Þetta raðhús
er ekki eins stórt og fjöldi húsa,
sem byggð hafa verið uppá siðkast-
ið, jafnvel svo ekkert hóf virðist
vera á. í þessu húsi er sæmilega
rúmgott eldhús með borðkróti,
mátulega stór borðstofa á sama
gólfi og stofan er guði sé lof mjög
hófleg að stærð, en svalir þeim mun
rúmbetri. Þetta er eiginlega fremur
keðjuhús; þaklínan er mishá og
svalirnar koma inni skarðið, um-
iuktar mannhæðarháum veggjum á
þrjár hliðar. Skrifstofa húsbóndans
er á sama gólfi og forstofan, en úr
forstofunni er gengið niður á svefn-
herbergjagang. Þar eru tvö barna-
herbergi, hjónaherbergi með dyrum
út í garðinn framan við húsið og
svo veglegt baðherbergi, flísalagt
upp að lofti. Úr svefnherbergja-
ganginum er gengið niður í kjallara.
Þar er kyndingin til húsa, þvotta-
hús og strauherbergi ásamt geymslu
og bakdyrainngangi.
Eitt er enn ótalið og það er upp-
hitaður bilskúr, innbyggður. Það er
hlutur sem nú orðið er viðlika
nauðsynlegur hluti af einu húsi og
geymslan og þvottahúsið, en það
ótrúlega á sér stað, að bilaeign er
tæpast viðurkennd, þegar hús eru
byggð. Siðan verður að klastra bíl-
skúr utaní húsið eða við hlið þess
og fer ævinlega illa. En það er önn-
ur saga og verður kannski tekin
uánar fyrir i þessum þætti siðar.
42 viKAJN