Vikan - 12.04.1962, Side 41
Bandarikin?" sagði Aníta. „En eng-
inn ykkar er fær um það. Og í þessu
landi eru stúlkur ekki siður frjálsar
að því en piltar að skemmta sér. 1
Bandaríkjunum er þeim leyfilegt að
dansa við hvern þann, sem þær
vilja.“
„Einmitt það,“ mælti BernEu:do og
laut henni. „Þú virðist ekki taka
það með I reikninginn, að Porterikó
er líka hluti af Ameríku."
,,Ekki hvað þig snertir. Þú ert kom-
inn hingað sem innflytjandi," mælti
hún kaldranalega. „Og þú skalt spara
þér það ómak að fara að ávarpa mig
með öllum mínum mörgu nöfnum.
Síðan ég kom til Bandaríkjanna ber
ég ekki nema eitt nafn. Og ef þér
fellur það ekki .... “
Bernardo kastaði frá sér sígarett-
unni, greip annarri hendi í hár henni
við hnakkagróf, föstu taki og sveigði
höfuð hennar aftur, svo hún gat ekki
varizt vörum hans.
„Fellur þér þetta?" spurði hann,
þegar kossinum lauk.
„Mér fellur það vel,“ svaraði hún
og stóð á öndinni.
„Hagaðu þér þá eins og manneskja,"
sagði Bernardo, hratt Anítu til hliðar
og sneri sér að Chino. „Chino,“ mælti
hann, „hvernig var systir mín á leið-
inni heim?“
Chino varð vandræðalegur. „Það
var allt i lagi með hana. Hún var
dálítið óró, það var allt og sumt ....
En þau höfðu ekki gert annað en að
dansa saman i sakleysi.“
Aníta reiddist Bernardo fyrir yfir-
heyrslu hans. Hún hratt honum frá
sér með báðum höndum.
Framhald í næsta blaði.
Að verða fyrirsæta.
Framhald af bls. 22.
þau pössuðu við augnhár Michele,
og svo bætti ég á þau svörtum lit.
Fölsk augnár gera mikið fyrir falleg
augu. Það tekur dálítinn tíma að fá
þau til að passa alveg við augnhár
einstaklingsins, og síðan tekur það
annað eins að venjast þeim. Rak-
vélarblað er notað til að tálga hvert
hár, þangað til hvert hár fellur sam-
an við þau sem eru á augnalokinu.
Síðan verður að festa þau varlega á
þann stað, sem hin eðlilegu augnhár
vaxa frá, eða réttara sagt beint ofan
á þau.
Að lokum var Michele orðin meist-
ari í að gera augun algjörlega full-
komin, hvar sem myndavélinni datt
í hug að líta á þau. Langáhrifaríkasta
leiðin til að breyta útlitinu er augn-
málning. Augu sem eru of nálægt
hvort öðru, er auðveldlega hægt að
færa fjær hvort öðru með því að
setja hvítt „make“ næst nefinu og
breiða það út eftir hálfu augnalokinu.
Siðan er augnlínan dregin frá þeim
punkti og dregin út fyrir augað.
Augnskugginn er aðeins settur á ytri
helming augnloksins og strokinn upp
á við.
Aftur á móti eru augu sem eru of
nálægt hvort öðru færð saman með
því að draga augnlínuna eftir öllu
augnlokinu að þeim punkti sem er
næst nefinu. Augnskuggi er borinn
á allt augnalokið, en í staðinn fyrir
að strjúka hann aðeins út á við, er
hann látinn enda við enda augabrún-
arinnar.
Augabrúnunum er auðvelt að
breyta með því að plokka Þær og
mála. Ef mér finnst að breyta þurfi
augnabrúnum einhverrar stúlku gjör-
samlega, hyl ég hennar eigin augna-
brúnir algjörlega með fljótandi púðri
og teikna siðan mismunandi augpia-
brúnir á púðrið, þangað til ég finn
út, hvað fer stúlkunni bezt.
Augnskugga er hægt að nota með
miklum áhrifum með því að breyta
litnum þannig, að hann sé í blæ-
brigðum við eða eigi við fötin. Svo-
lítið gullt eða silfurlitað á enda augn-
háranna getur gert hvaða augu sem
er ævintýraleg á kvöldin. En hver
og einn verður að gera tilraunir og
æfa sig í augnmálningu. Tilbrigðin
eru óteljandi.
Hvað veiztu um varalit?
Eftir að hafa gert það bezta úr aug-
um Michele, sem hægt var, snerum
við okkur að algengasta og misnot-
aðasta fegurðarmeðalinu, varalitnum.
Michele hafði góðan, en ekki fullkom-
inn munn. Hann var aðeins of lítill.
Til allrar hamingju er auðvelt að
laga það.
Lítinn munn verður að lengja með
því að fylla út efri vörina í endunum
og fara aðeins út fyrir eðlilegu lín-
una í hornunum. Við þetta er not-
iður góður varablýantur, eitt áhrifa-
mesta tæki, sem fyrirsætur nota. Oft
verður svo líka að stækka neðri vör-
ina aðeins til að vega upp á móti
hinni vörinni.
Of þykkar varir má þynna með
því að draga þessar línur aðeins
fyrir innan eðlilegu takmörkin áður
en varaliturinn er notaður. Munið
að púðra á varirnar, áður en vara-
litur og varablýantur er notaður, því
það kemur í veg fyrir að nokkuð fari
út fyrir eða myndun lítilla lóðréttra
lína. Ef neðri vörin er of útstand-
andi, dragið þá línu með dökkum blý-
anti og fyllið upp með dekkri vara-
lit, en notaður er á efri vörina. Notið
nákvæmlega sömu aðferð, ef neðri
vörin er of lítil, en öfugt. Varalitur
krefst margra tilrauna og mikillar
æfingar. En engin þarf að halda,
að hún þurfi að sætta sig við munn,
sem ekki á við annað í andlitinu. Tveir
varablýantar og tveir varalitir geta
gert allan mismuninn.
Ný hárgreiðsla.
Hárið á Michele var eitt af því síð-
asta sem við tókum fyrir. Því eins og
þú kaupir hatt, þegar þú hefur keypt
allt annað, þá verður að velja hár-
greiðsluna eftir að andlitið hefur ver-
ið tekið fyrir. Allir eru tilbúnir að
taka við ráðleggingum mínum um
málningu og megrunarkúr. Bn af ein-
hverjum ástæðum eru allar konur á
verði gagnvart hári sínu, eins og
lifið standi og faili með því. Michele
hafði fallegt hár sem náði niður á
axlir. Það varð að klippa það í fimm
mismunandi siddir og liún var hik-
andi allan tímann.
Ég veit ekki af hverju stúlkur sjá
eftir hverjum einasta hárlokk. Ég
veit aftur á móti að til að vera full-
komið model verður stúlka að hafa
hár, sem ekki snertir axlirnar og
það verður að vera hægt að greiða
það í hvaða greiðslu sem er, því nota
verður hárið í fjöldann allan af mis-
munandi aðstæðum.
Við ákváðum að klippa hár Michele
og hafa það um það bil átta sm
fyrir neðan eyrun. Þessi hárgreiðsla
gerði henni mögulegt að greiða sér
á margan hátt og allt undir þvi kom-
VIKAN 41
8