Vikan - 31.05.1962, Blaðsíða 10
:.
mmmm
María GuSmundsdóttir, fegurðardrottning frá i
fyrra, hefur verið erlendis siðan i haust og starfað
sem ljósmyndafyrirsæta og sýnt tízkufatnað. Hún
fór í tangt ferðalag lil Suður-Ameriku á vegum
fyrirtækis í París, en seinnipartinn i vetur og vor
hefur hún dvalizt í borg ljósanna, Paris, og vakið
har mikla athygli fyrir fegurð og yndisþokka. Hún
hefur verið þar á vegum konu einnar, sem umboð
hefur fyrir fótómódel og nú er svo komið, að
Maria er komin i röð hinna allra eftirsóttustu á
þvi sviði. Kaupið fer að sjálfsögðu eftir bvi og
nú fær Maria 4.500 krónur fyrir eina myndatöku.
Það þæHu einhvers staðar sæmileg daglaun, en til
þess að vera i þessum „gæðaflokki" verður hún
að búa á einn dýrasta hóteli borgarinnar. Maria
hefur fengið tilboð um að koma til New York og
starfa hiá tizkukónginum Oleg Cassini, sem teiknar
föt fyrir frú Kennedy og ýmsar aðrar frægar frúr
í Bandaríkjunum. En Mariu fannst ekki ráðlegt
að segja skilið við París of fljótt og hafnaði boð-
inu í bili. Vikunni bafa borizt nokkrar myndir af
Maríu í París og bér sjáið þið þær.
fíWM
m
Tízkublaðið Jardin des Modes
í Parts er eitt stærsta og þekkt-
asta blað sinnar tcgundar i
tízkuborginni. Okkur hefur bor-
izt eintak af ])vi, þar sem Maria
er hvorki meira né minna en á
forsíðunni og það mundi þvkja
sæmilegt takmark i sjálfu sér.
Myndin er tekin í gegnum þunnt
sílkiefni eða eitthvað því líkt og
titirnir eru einkum gulir og gul-
brúnir. Inni í blaðinu voru þrjár
myndir af henni og ein þeirra
fyllti heila opnu.
Til hægri: Seinni partinn í
vetur fór María á vegum Coca
Cola í frönsku Alpana lil þess
að sitja fyrir á auglýsingamynd-
um. Það var einkum i sambandi
við skiðasport
myndanna,
þeirri ferð
voru
HP
ip? i
Til vinstri: Það mætti halda
að ]>essi mynd væri tekin ein-
hvers staðar á norðiægum breidd-
argráðum, en svo er þó ekki,
enda getur hann verið napur í
Frakklandi að vetrarlagi ekki
síður en hér. Kjóllinn cr ein-
hvers konar „sekkur“ úr svörtu
og hvítu.
10 VIKAN