Vikan


Vikan - 06.09.1962, Blaðsíða 37

Vikan - 06.09.1962, Blaðsíða 37
 fotimvn’s barnapúður notið JONSON'S barnapúður eftir hvert bað og alltaf þegar skipt er um bleyju. barnavörur Barnapúður, Olía, Lotion, Shampoo, Sápa, Eyrnapinnar, Bleyjur, Þvottaefni. Heildsölubirgðir: FRIÐRIK BERTELSEN & CO. H.F. Laugavegi 178. — Sími 36620. aðra leið að velja en leggja hart að mér og gera mitt bezta. Þar að auki hef ég gaman af vinnu“. Þeir fjórmenningarnir kinkuðu kolli og litu hver á annan. Dr. Bur- gundy skrifaði eitthvað i minnisbók sína. „Herra Lucey“, mælti hann. ..Hvert er metnaðartakmark yðar hér hjá Stóra Matvælasambandinu? Stcfnið þér að þvi að verða forseti fyrirtækisins? Eða hvað?“ Guy dró við sig svarið. „Eg veit ekki hvað segja skai. Mér er ljóst: að ég er ekki neinn snillingur, svo ég geri ráð fyrir að ég vcrði nldrei forseti. Kannski gæti ég einhvern tíma náð bví að verða framkvæmda- stjóri sölustofnunarinnar. Annars hef ég lítið brotið heilann um það“. Dr. Burgundy sneri sér að þeim hinum. „Meðaimennskumetnaður.. . öldungis eins og við álitum". Herra Simpson tók tii máls. „Telj- ið þér yður trúan i þjónustu yðar við Stóra Matvælasambandið, Luc- ey?“ „Já, auðvitað, lierra Simpson. Tíg hef mikið álit á fyrirtækinu“. Enn hikuðu j)eir fjórmenningarn- ir o" litu hver á annan. „Hvað leggur ])ú til málanna, Carl?“ spurði herra Millikin dr. Bur- gundy. „Aðeins eina spurningu enn“, sagði dr. Burgundy og virti Guy Lucey mjög nákvæmlega fyrir sér. „Vitið þér til þess að nm nokkra geðveiki sé að ræða í ætt yðar?“ Hann talaði ákaflega hægt og sett og með hnitmiðuðum áherzlum. „Annað hvort í móðurættinni eða föðurættinni? Vitið þér til að nokk- ur frændi yðar eða frændkona hafi verið úrskurðuð til vistar á geð- veikrahæli, eða verið undir læknis- hendi sökum þunglyndis eða hug- sýki?“ Guy Lucey varð ónotalega við. „Geðveiki?“ Enginn beirra fjór- menninganna hreyfði sig eða mælti orð. „Nei, dr. Burgundy. Allt mitt fólk hefur verið ákaflega venjulegt og heilbrigt smáborgarfólk, það er allt og sumt“. „Ég skil“, sagði dr. Burgundy. „Ég skil.... “ „Hvað nú, Carl?“ spurði herra Millikin. Dr. Burgundy ræskti sig. „Ég tel að Lucev sé rétti maðurinn. Niður- stöður hæfnisprófunarinnar benda eindregið til þess og nú hefur þefta stutta samtal okkar sannfært mig alfferlega um að svo sé“. Þeir hinir réttu úr sér. Dr. Burgundy gekk þvert yfir gólf- ið, þanaað sem Guy Lucey sat. Leift- ursnöggt dró hnnn lítinn hamar upp úr vasa sfnum, sveiflaði honum til höggs af furðulegri leikni og laust Guy Lucey hart og snöggt i höfuð- ið. rétt ofanvert við vinstra eyra. Guy fann snarpan sársnuka, allt hringsnerist fyrir augum hans og siðan formyrkvaðist öll vitund hans gersamlega. Þegar Guy raknaði við aftur, lá hann á bólstraða bekknum i viðtals- stofunni. Þegar hann kom ögn bet- ur til sjálfs sín, heyrði hann lágar samræður. Hann opnaði augun og sá hvar þeir fjórmenningarnir stóðu út við gluggann. Hann gerði tilraun til að hreyfa sig, en virtist gersamlega lamaður. Hann gat einungis hreyft höfuðið, og þó ekki nema lítillega. Hann reyndi að tala, en kom ekki upp nema lágri stunu. Þeir fjórmenningarnir úti við gluggann sneru sér að honum. „Hann er vaknaður“, mælti herra Millikin. ,Heyrið þér til okkar, Lucey?“ spurði dr. Burgundy. „Megið þér mæla?“ „Já“, stundi Lucey svo lágt að varla heyrðist, „Það hefur verið dælt f yður lyfi“, mælti dr. Burgundy. „Vægri blöndu af slöngueitri. Þér eruð þvi mikið til lamaður, en eigið að geta talað eitt- hvað, en þó með nokkrum erfiðis- miinum". Þeir fjórmenningarnir tóku sér sæti. Herra McQuinn leit á úrið sitt. „Við skulum hraða þessu“, sagði hann. „Ég hef ákveðið fund með forstjóra Vesturfylkjaumdæmisins klukkan hálf fjögur“. Herra Millikin ræskti sig. „Lucey .... eins og yður mun hafa skilizt, hafið þér orðið fyrir valinu til að gegna þessu.... eh.... sérstæða hlut- verki“. Hann snerri sér að herra McQuinn. „Jimmy, þú ættir að skýra honum frá því i stórum dráttum, i hverju mikilvægi þess hlutverks er fyrst og fremst fólgið“. McQuinn tróð tóbaki í pípu sína. „Sjálfsagt, Sam“. Hann kveikti á eldspýtu og bar að pípunni. „Jú, Lucey, það verður bezt skýrt þann- ig. ...púff, púff....að öðru hverju ber nauðsyn til þess.... púff, púff ....“ Hann sveiflaði eldspýtunni unz loginn slokknaði á henni. „Ber, sem sagt, natiðsyn til þess að ein- hver maður deyi fyrir Stóra Mat- vælasambandið....“ Enn saug hann pipuna og púaði frá sér reyknum. „Og nú vill svo til. að þér hafið orð- •ið fyrir valinu....“ Guy Lucey fann innyflin taka kipp í búknum. Hann reyndi eftir megni að stvnja upp orði. „Hvað?“ „Ég tek það fram, að þetta er ekki af neinuni persónulegum ástæðum, Lucey. Og það er ekki eins og það sé nokkurt grín fyrir okkur, það veit sá sem allt veit“. „ATitanlega ckki“, e'-eip herra Simpson fram í nuð sbóbikennara- cinlægni i svip. „En fyrirtælija- stjórnun fylgir og ábyrgð, eins og þér vitið. Og ef við gerum okkur það ekki ljóst og högum okkur sam- kvæmt því, stöndum við ekki heldur í stöðu okkar“. „Það er rétt“, sagði lierra Mc- Quinn. „Það er einmitt mergurinn málsins. Þér hafið verið valinn til að deyja —• og cins og þér skiljið, verður það látið lita út eins og sjálfsmorð — deyja, til þess að við hinir megum lifa. Lifum betra, rík- ara og árangursmcira lífi fyrir Stóra Matvælasambandið, frómt frá sagt“. Guy stundi cnn: „Ilvers vegna?“ „Rökrétt spurning, Lucey“ sagði Millikin. „Eins og þér hljótið að skilja, komumst við ekki hjá þvi að ala starfsfólk okkar upp með ýmsum ráðum.... sölukeppni, framleiðslu- keppni, þér kannizt við það allt. Við gerum allt, sem í okkar valdi stend- ur til þess að þið hinir leggið hart að ykkur við starfið. En nú liafa athuganir okkar leitt í ljós, að marg- ir — einkum af ykkur ungu inonn- unum — leggja ol' hart að sér. Slíta sér út að ástæðulausu og bera allar áhyggjur heimsins á sinum herðum WKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.