Vikan - 06.09.1962, Blaðsíða 3
—■mm
ERMARSUNDSGÖNGIN.
Mííííl.c*.-
Árið 1750 hét háskólinn í Amiens
miklum verðlaunum fyrir beztu til-
lögurnar og teikningarnar að bygg-
ingu neðansjávarganga undir Ermar-
sund. Árið 1802 hafði Napoleon keis-|(||
ari mikinn áhuga á byggingu sliks 1
mannvirkis — meðal annars í því
skyni að koma frönskum hersveit-
um yfir sundið til að leggja undir
sig Bretland. 1857 lagði de Gamond
fram teikningar að slíkum göngum
og skozki verkfræðingurinn Lowe
áratug síðar. Árið 1868 gerði franski
verkfræðingurinn Boutet teikningar
að mikilli brú yfir sundið, og árið
1872 var stofnað hrezkt-franskt
hlutafélag, sem hugðist hrinda hug-
myndinni um göngin i framkvæmd.
Árið 1879 hófust svo reynslufram-
kvæmdir, Frakkar gerðu 1500 m löng
göng sín megin og Bretar 200 m
löng sln meginn — og við það sat.
1882 samþykkti brezka parlamentið
ályktun, þar sem segir, að Bretland
skuli vera eyland um allan aldur,
en þó voru umræður um göngin
hafnar þar aftur 1929. Árið 1940
lagði franski verkfræðingurinn
André Basdevant fram nýjar tillög-
ur og teikningar að göngunum, sem
vöktu mikla athygli báðum megin
sundsins. Árið 1955 lýsti brezki sam-
göngumálaráðherrann yfir því, að
Bretar hefðu ekki neinar hernaðar-
legar áhyggjur lengur í garð þessa
mannvirkis. Skömmu seinna var
stofnað mikið hlutafélag í New York
til að gera hugmyndina að veruleika,
og gengu gömlu félögin, það brezka
og franska, í samsteypuna. Síðan hef-
ur látlaust verið unnið að undirbún-
Framhald á bls. 40.
Megineinkenni á Cons il 315 er afturhallandi afturrrúða, fáir krómList-
ar og „hraði“ í öllum línum. Þetta er í alla staði hentugur og fallegur
fjölskyldubíll.
Bílapróíun F í B
og VIKUNNAR
Skoðnina framkvæmdi
Páll Friðriksson,
bílaeftirlitsmaður.
FORD CONSUL 315
Séreinkenni.
Nýtízkulegur 2. eða 4. dyra, ensk-
ur 5 manna fólksbíll, með hinni
sérkennilegu og hentugu afturrúðu
sem hallar inn að neðan og veitir
með því aukið öryggi við akstur
aftur á bak þar sem ökumaður sér
niður á götuna fast við bílinn og
snjór og bleyta setjast ekki á hana.
Að innari er bíllinn bjartur og
rúmgóður og útsýni gott. A hurðum
eru armhvílipúðar og neðan í þeim
eru hurðarhúnarnir þægilega stað-
settir. Geymsluhiila fyrir smádót er
neðan við mæiaborðið, og einnig
er læst smáhólf farþegamegin í
mælaborðinu. Tvö bólstruð sól-
skyggni eru og þau ei'u færanleg
til hliðar. Mælaborðið er látlaust
með hita-, benzín- og hraðamæli,
en aðvörunarljósum fyrir rafhieðslu
og olíuþrýsting í vélinni. Hraða-
mælisskífa mætti vera stærri og
greinilegri. Framsætin eru tveir að-
skildir stólar færanlegir fram og
aftur. Mjög óþægilegt er að bak
þeirra er ekki á hjörum, því að
sætið allt verður að lyftast þeg-
ar fólk fer i aftursæti þannig að
ef setið er í framsætum og hleypa
þarf fólki aftur í verður að fara
ut úr bílnum til þess. Þetta gildir
að sjálfsögðu einungis um bilinn
tveggja dyra; annars kemur þetta
ekki að sök,
Sæta- og fótrými er gott í
bæði aítur- og framsætum. Mið-
stöð er góð og stillingar margar
bæði á heitu og köldu lofti.
Farangursrýmið er stórt og
rúmgott og nægilegt fyrir far-
angur 5 manna imdir venjulegum
kringumstæðinn. Varahjólbarði
er á góðum stað í vinstri hlið
farangursgeymslunnar.
Fjöðrunin er gormar að fram-
an og fjaðrir að aftan. Demparar
taka bæði slög. Aksturseiginleik-
ar eru góðir, liggur vel á vegi
Framhald á bls. 41.
Mælaborðið er nýtízkulegt og
stjórntækin þægileg.
'yrtiV
WIKA'RI
Útgefandi: Hílmir h.f. Bítstjúrn ug augiýsiiigur: Sldphott; 33. Siinar: 35320. 35321, 35322, 25323. Fósthólf 149. Áfgreiðsía ug dreifing:
Kitstjórí: Gísli Sigurðsspn <ábm.) Blaðailreifing, l.augavegi 133, sírni 36720. Dreifingarstjóri Óskar KarJs- sun. Verð í lausasöhi kr. 15. Askrift-
arverð er 200 kr. ársþriðjungslega,
Framkvæmdastjóri: greiðist fyrirfram. Frentun: Hilmir
' Hilmar A. Kristjánsson. h.f. Myndainul: Bafgraf h.f.
FORSIÐAN
Pétur Kidson, sá ágæti Breti, sem nú er reyndar orð-
inn Islendingur og talar tungu norrænna víkinga með
ágætum, hefur tekið þessa mynd af einu þessara
stórkostlegu og umdeildu atvinnutækja, sem liggja eina stundina bundin við
bryggjur og ryðga í friði og spekt, en ausa hina stundina upp milljónum,
þjóðarbúinu til blessunar. Þá stundina, sem Pétur tók myndina, hefur allt
gengið að óskum; gulstakkaðir sjómenn moka þeim gula upp á haustvertíðinni.
í næsta blaði verður m.a.
9 Mývatnssveit ég vænsta veit. Grein um Mývatnssveit, viðtöl
við fólk í sveitinni og fjöldi mynda þaðan. Forsíðumynd:
bræðurnir á Geiteyjarströnd við Mývatn.
® Bankahólfið. Smásaga eftir Gerald Kersh.
• Englandsbréf frá Kristmanni Guðmundssyni: „Björninn
dreymandi", kínverskur konungur í Evrópu.
• Hljóð næturinnar. Smásaga eftir Irwin Shaw.
• Fyrirmynd frá Stavanger. Þátturinn hús og húsbúnaður ræð-
ir um einbýlishús með skjólgarði.
• Allt fyrir unga fólkið. Nýr þáttur úr ýmsum áttum, sem eink-
um er ætlaður ungu fólki frá fermingu til áttræðs.
• Kynnt ný og glæsileg verðlaunagetraun. Verðlaun: Fimm
manna bifreið af árgerð 1963: NSU Prinz 4. Verðmæti 117
þúsund krónur.
• Fimm síður með uppskriftum fyrir mat og bakstur. Bryndís
Steinþórsdóttir, húsmæðrakennari, tók saman.
VIKAN 3