Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 2
Það er fyrir öllu að eignast
VIKAN
©
@
@
VOLKSWAGEN
Árgerð 1963 af
VOLKSWAGEN
1500
er fyrírliggjandi
HVAÐ GERIR YOLKSWAGEN AÐ VOLKSWAGEN ?
Er það lögunin? — Nei,
vissulega ekki. Það sem
gerir Volkswagen að
Volkswagen hefir dýpri
merkingu en útlit og
lögun. Eru það framleiðsluhættir
Volkswagen? Já, að miklu leyti
vegna þess að þeir afráða gæðin.
Volkswagen 1500 er byggður af
sömu nákvæmni og sá Volkswagen
sem þér þekkið.
Er það staðreynd að varahluta-
þjónusta sé allsstaðar fyrir hendi?
Já, það er einmitt það sem Volks-
wagen leggur ríka áherzlu á. Og
eftir á að hyggja, þá er bíllinn jafn-
góður þjónustunni sem fyrir hendi
er.
Eru það undirstöðuatriði smíð-
innar?
Já, er nokkuð vit í öðru en að
fylg'ja þeirri reynslu, sem fengizt
hefur með framleiðslu meira en 5
milljón Volkswagen.
ALLTAF FJÖLGAR
VOLKSWAGEN.
Það er þessvegna sem vélin í
1500 er loftkæld, en ekki vatnskæld.
(Enginn vatnskassi, sem getur soð-
ið í, lekið úr eða frosið á).
Það er þessvegna sem vélin er
staðsett afturí þar sem hún nýtir
aflið betur.
Það er þessvegna sem er sjálf-
stæð fjöðrun á hverju hjóli og bíll-
inn er allur svo undurþýður.
OG HVER ER SVO MISMUNUR-
INN?
Hann er margskcnar. Aflmikil 53
hestafla vél (SAE). Stærri farang-
ursgeymsla, rúmbetri og meiri íburð-
ur í innréttingu.
En komið sjálf og sjáið ... og
þér verðið áreiðanlega með þeim
fyrstu sem eignast VW 1500.
En hvort svo sem þér kjósið
Volkswagen sem allir þekkja eða
VW 1500 — ÞÁ EIGIÐ ÞÉR ÞÓ
ALLTAF VOLKSWAGEN OG ÞAÐ
ER FYRIR ÖLLU.
LITLU BÍLARNIR
EIGA AUKNUM
VINSÆLDUM AÐ
FAGNA OG
FRAMLEIÐENDUR
KEPPAST VIÐ AÐ
GERA ÞÁ SEM
FULLKOMNASTA.
Það spurðist í fyrra, að Ford
liefði á prjónunum áform um að
framleiða lítinn bíl, sem átti að
heita Cardinal. Hann átti að vera
allmikið minni en hinir svonefndu
„Compakt“ útgáfur af amerísku
bilunum og var einkum settur til
höfuðs Volkswagen. Þessi bíll var
tilbúinn á teiknistofunum lijá Ford
í Detroid, en þá urðu breytingar á
ameríska bílamarkaðinum, svo ráð-
legt var talið, að hætta við fram-
leiðslu hans þar vestra. Teikning-
arnar voru sendar til Þýzkalands
og ákveðið að framieið hann i þýzku
Ford-verksmiðjunum, sem hingaðtil
hafa smíðað Taunus. Þessi bíll lief-
ur verið allmikið umtalaður, enda
langt siðan til hans spurðist á teikni-
borðunum. Nú er liann kominn á
markað, en af einhverjum ástæðum
hefur verið hætt við kardínálanafn-
ið og hann kemur út undir merki
Taunus 12M.
Þctta er merkilegur l)íll að mörgu
leyti, ekki sízt er það athyglisvert,
að þarna er eini smábíllinn, sem
Bandaríkjanfenn hafa. teiknað. í
upphafi var áætlað, að hann yrði
nokkuð minni en liann varð og átti
verðið þá að vera lægra en á Volks-
wagen. Þeim hefur þótt æskilegt
að stækka hann aðeins og hafa
hann ögn dýrari en Volkswagen
— hér á landi verður hann um 10
þúsund kr. dýrari. —■
Taunus 12M verður með fram-
hjóladrifi. Það færist frekar í vöxt,
að framlciðendur smærri bila noti
framhjóladrif, enda hefur það ýmsa
kosti: Bíllinn verður stöðugri í
beygjum og mögulegt er að losna við
hrygginn aftur eftir gólfinu, sem
sumum er þyrnir í augum. Eins og
sjá má af myndunum er þessi bill
stilbreinn og laglegur, en fallegri á
hlið en beint framan fyrir að því
Heildverzlunin HEKLA hf
Hverfisgötu 103. -— Sími 11275.