Vikan - 18.10.1962, Page 4
Sindrastóllinn
er
óskastóllinn,
heimilisprýði,
þægindi.
£ii?drasimðjan
Gert upp á milli kóra ...
Heill og ssell, Póstur minn!
Geturðu sagt mér eitt: Hvernig
stendur á því, að Ríkisútvarpið
spilar svo að segja alltaf hljóm-
plötu með söng Karlakórs Reykja-
víkur, þó að aðrir íslenzkir kórar
hafi sungið sama lagið ipn á hljóm-
plötu? Eru það einhver sérréttindi
eða hlunnindi, sem Karlakór Reykja-
víkur nýtur hjá Ríkisútvarpinu? Ég
tek sem dæmi þrjú lög: „Brennið
þið vitar,“ „Sefur sól hjá ægi“ og
„Búðarvísur“. Þessi lög mun karla-
kórinn Fóstbræður einníg hafa
sungið inn á hljómplötu og vafa-
laust fleiri íslenzkir kórar. Karla-
kór Reykjavíkur er að vísu góður
kór, en hann má ekki misvirða það
við mig, þótt ég telji Fóstbræður
honum fremri. Fóstbræður munu
sennilega vera bezti karlakór á
Norðurlöndum og þótt víðar væri
leitað. Því má Karlakór Reykjavík-
ur vel við una, þó að hann verði að
láta í minni pokann við samanburð-
inn. Ríkisútvarpið á að meta Karla-
kór Reykjavíkur að verðleikum, en
ekki veita honum nein forréttindi
né hlunnindi. Þetta fer ég hér með
fram á sem útvarpsgjaldsgreiðandi.
Söngvari
Samskot ...
Kæri Póstur.
Gætir þú ekki bent starfsfólki hjá
stórum og mannmörgum stofnunum
á, að það er ákaflega hvimleitt fyrir
sum arstarfsfólk að þurfa sífellt að
vera að taka þátt í samskotum í
gjafir handa samstarfsfólkinu. Ég
vann hjá stórri stofnun í sumar, og
ég veit ekki hvað oft ég varð að taka
þátt í að borga afmælisgjafir, brúð-
argjafir og ég-veit-ekki-hvaða-gjafir
handa alls konar fólki, sem ég kann-
aðist ekki einu sinni við í sjón, hvað
þá meira.
Mér finnst eiginlega dálítið atriði,
að maður þekki þann, sem maður er
að spandera peningum í. Og frum-
skilyrði finnst mér, að þeir, sem
starfa aðeins yfir sumartímann þurfi
ekki að taka þátt í slíkum samskot-
um fyrir þrábeiðni samstarfsfólksins,
heldur leggi í „púkkið“ ef þeim sýn-
ist svp — annars ekki, takk.
Tínsey.
Hvimleiðir kossar ...
Elsku Vika mín.
Ég heiti Anna og ég les alltaf
Vikuna og finnst hún ægilega
skemmtileg. Ég er tíu ára. Mér
finnst ægilega gaman að Skugga og
öllu. Og svo langar mig til að segja
þér soldið. Alltaf þegar koma ein-
hverjir í heimsókn og svoleiðis eða
það er afmæli eða eitthvað svoleiðis,
þá koma allir og kyssa mann. Sum-
ar kerlingarnar hafa svo ægilega
gaman af að kyssa mann alltaf og
eru bara alltaf að kyssa mann. Þá
verður maður kannski allur blaut-
ur í framan, og mér finnst svona
kossar ægilega leiðinlegir. En ef
maður grettir sig eða eitthvað, þá
verða allir gasalega fúlir.
Mér finnst svo ergilegt að allir
eru að kyssa mann. Það má kannski
kyssa allt fólkið í fjölskyldunni,
sko mömmu og pabba og systkin
og svoleiðs. Viltu, Vika mín, segja
fullorðna fólkinu, hvað sona koss-
ar eru asnalegir. Af hverju er full-
orðna fólkið alltaf að kyssa krakk-
ana, þegar krakkarnir bara vilja
það ekki? Er þetta eitthvað kossa-
brjálæði, eða hvað?
Anna Kjartansdóttir 10 ára.
Fótanóta ...
Kæra Vika.
Ég varð dálítið undrandi, þegar
ég las „fótar“-klausuna í Póstinum.
Sjálf hef ég aldrei heyrt talað um,
að fóturinn næði lengra en upp að
hné, en kannski þið séuð allir með
lærin í skónum?!!
Hulda Jónsdóttir.
... og önnur ...
Kæri Póstur.
Okkur langar til að spyrja þig,
hvort ekki tíðkist að stelpur sparki
í bolta eins og strákar. Ef svo er,
þá langar okkur að biðja þig.að
birta fyrir okkur þetta bréf. Okk-
ur langar til að biðja einhverjar
stelpur á aldrinum 12—14 ára, sem
hafa áhuga á fótbolta og vilja stofna
með okkur félag, að skrifa undir-
rituðum stelpum nafn, heimilisfang
og símanúmer. Við munum þá hafa
samband við þær og segja þeim
nánar frá þessu. Með fyrirfram
þökk fyrir birtinguna.
Edda Bára Pálsdóttir,
Breiðholtsveg c-10, Rvk,
eða:
Sóley Björk Ólafsdóttir,
Breiðholtsveg c-5, Rvk.
--------í rauninni erum við liér
með við birta AUGLÝSINGU,
sem er auðvitað alls ekki hlut-
verk okkar, en VIKAN vill sízt
verða til þess að drepa í fæð-
ingu jafnmerkilegt menningar-
fyrirbæri og knattspyrnulið
kvenna. — VIKAN óskar ykkur
semsagt góðs gengis. Það er trú
okkar, að ef þið náið saman
ellefu sparkfúsum stelpum og
æfið í svosem tvö ár, komizt þið
upp í fyrstu deild. — Svo ráða
fyrstu deildar menn, hvort þeir
taka þetta sem sneið eða ekki.
Eldhússtækja ...
Virðulegi Póstur.
Matarlykt er að drepa mig, Póst-
ur. — Ég er fínn maður og sit í
reykingaklæðum framarlega í sal í
Þjóðleikhúsinu á frumsýningum við
hliðina á forstjórafrú. Venjulega
leiðist mér — á frumsýningum er
ekkert talað um lax. — Ég er tölu-
verður matmaður, og hef oft borð-
að ágætan mat hjá Tolla niðri í
Leikhússkjallara, en samt finnst
mér algjör óþarfi, að eldhúslyktina
leggi upp í sal eins og hvern ann-
an gosmökk.
Ef þú ert á sama máli, þá biddu
þá um að loka öllum gáttum frá
4 VIKAN