Vikan


Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 12

Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 12
ÞJÓУACA VIKUNNAR ** L.A.NGAFÖSTU veturinn 1844 skeði sá tilburður á Núpi í Axarfirði, þeg- ar kvölda tók, þá var farið að kasta því sem lauslegt var í kringum fólk- ið, hvort heldur voru bækur eða lepp- ar eða það, sem kvenfólkið hafði á prjónum, sem ekki var annað en plögg á hendur og fætur. Þessi hendingaleikur fór síðan smám saman í vöxt, þar til einu sinni, að bóndinn (bóndinn á Núpi hét Þorvaldur Hákonarson, í sálmaregistri Skinnastaða 1843 sagður 33 ára, talinn „vel lesandi, all- vel kunnandi, mesti ráðvendnismaður) þar, sem var álitinn karlmenni fór eitt kvöld á fund nágranna síns og dvaldi hjá honum, þar til í vökulok, að hann fór heimleiðis aftur, því honum var ekki gjarnt að vera langdvöl- um frá konu og börnum. Annað fólk var ekki á bænum utan systir konunnar, mesta ráð- vendisstúlka, og vinnumaður, heldur ódugn- aðarmaður, en frómur og hrekkjalaus. Bónd- inn kom heim um kvöldið, þegar kominn var háttatími. Þá stóðu systur báðar á pallstokkn- um með sinn vöndinn hver í hendinni og hrópandi um hjálp til guðs síns. Bóndinn, sem þaggað hafði niður þennan kvitt, sem ekki hafði borið á nema þegar hann var ekki viðstaddur, spyr nú hvað um sé að vera. Þær svara honum, að djöfullinn sé kominn í bæinn. Hann biður þær að> tala gætilega og svo er farið að hátta og ber þessa nóttina ekki á neinu. Kvöldið eftir, þegar rökkva fór, var svo að kalla allt á lofti, sem lauslegt var, og gat bóndi nú ekki borið á móti, að eitthvað væri undarlegt í þessu. Þegar hann var háttaður um kvöldið og búinn að breiða upp yfir sig, þá kom tréskór, sem var á loftinu rétt á mcti ljósinu, og hitti augabrúnina á bónda og sprengdi hana sundur. Eftir það var tilburða- lítið þá nótt, en um sólsetur daginn eftir mátti sækja bónda út í hús, því hann var að þjóna skepnum sínum. Þá kastaði tólfunum og var brothljóð í hverjum rafti. Hann kem- ur síðan inn og var ekkert hnugginn, heyrir eitthvað þrusk í baðstofudyrunum og segir: „Hver þú ert heldur, djöfull eða maður, þá komdu og reyndu við mig‘. En á augabragði er brothljóð í rúmgafli, sem var rétt við bað- stofudyrnar og þar sviptist í sundur þuml- ungsþykkt borð án þess að heyrðist nokkuð högg eða mönnum væri sjónarlegt að brúk- aö hefði verið nokkuð verkfæri; borðið fór í þrjá parta og var ég sjónarvottur að því, hvað borðið var þykkt og lítið farið að feyskj- ast. Bónda hugsaðist þá að fá menn sér til skemmtunar um nóttina og urðu til þess t eir af nágrönnum hans, sem báru sig mik- ið hreystilega og vildu, þegár farið var að hátta, láta slökkva ljósið, sem bónda og heimilisfólkinu var heldur móti skapi. Undir eins og búið var að slökkva ljósið gekk svo rnikill moldaraustur í baðstofunni, að fólk- inu lá við köfnun. Þá buðust aðkomumenn til að kveikja, en þegar til þeirra heyrðist framan göngin með ljósið, hætti moldbylur þessi. Ljósið var svo látið lifa það eftir var nætur og bar ekki á neinu. Eftir þessa hviðu fór konan með börnin burtu og ekki var eftir nema bóndi og vinnumaður til að þjóna gripunum. Ég, sem rita söguna (Ámi Árnason bóndi í Skógum í Axarfirði (40 ára í manntali 1860)) var fenginn til að vera næstu nótt hjá þeim. Ég gjörði það að sönnu með hálfum huga, en með því ég var ungur og ekki áræðislaus, bjó ég mig út með byssu og skot- færi og um kvöldið bað ég þá að sýna mér á- verka þann, sem orðið hafði á öllum hlutum -—• en hverki menn né skepnur fengu nokkur meiðsli, utan það, sem áður er getið um auga- brún bónda. — Ég sá síðan marga hluti brotna og með mörgu móti skemmda, en furðaði mig mest á því, að kvöldskór vinnumannsins voru allir sundurskornir og neðan á botninn á öðr- um þeirra var rispað Á; maðurinn hét Árni, það var svo laglega gjört, að hver maður, sem þekkti skrift hans, gat gengið úr skugga um, að það var ekki eftir hann. Um nóttina bar ekki á neinu. Ég var þar svo, en ekki nema á daginn, í hálf- an mánuð til að umbreyta í baðstofunni og gjöra nú allt sterkara og hlaðaupp í moldarskot, sem ausið var úr yfir fólkið. Þegar búið var (að) gjöra við í baðstofunni, einnig að setja ný rúmstæði, flutti fólkið sig heim aftur og konan líka, sem komin var að falli og allir voru hræddir um að kynni að hafa illt af þessu. Svo bar ekki neitt á neinu í hálf- an mánuð, en upp frá því fór hundur, sem á bænum var, að gelta, mikið alvarlegur, helzt á kvöldum, og menn vissu ekki að hverju. Nú var komið fram yfir sumarmál og nóttin stutt, en dagurinn langur. Þá tók til um hádegisbil grjót- kast, torfkast og yfir höfuð að tala var allt á ferð og flugi. Steinn kom í baðstofugluggann uppi yfir rúminu hjónanna; hann braut eftir vonum gluggann og part af gluggakistunni og kom inn á lpftið; svo kom annar á eftir og þriðji, sem álitið var að vægi tíu fjórðunga; hann huldi gluggann, en gekk ekki inn um hann. Þá sendi bóndinn eftir mönnum á næstu bæi til að sjá hvað á gengi og ráða sér ráð. Alltaf fór þessi ógangur versnandi og vaxandi um daginn. Allur nýr fatnaður, sem komizt hafði upp um veturinn, var saxaður í sundur eða tugg- inn, svo ómögulegt var að fá gómblett heilan á milli. Eitt sinn, þegar konan var að búa upp í rúmi sínu, hún hafði fjöl fyrir framan rúmfötin, eins og siður er víða til, en þegar hún ætiaði að taka rúmfj ölina og láta hana á sinn stað, þá var hald- ið í hana á móti henni svo fast, að hún náði henni engan veginn. Þá tekur hún það ráð, að hún þreifar eða sveiflar hendinni eftir fjölinni til hins endans og þá losnar fjölin. Þetta var í ljósbirtunni og allt á stjái á loftinu. Nú var hjónunum ráðlagt að flytja burt og svö farið að taka til og byrjað í baðstofunni. Þá segir konan: „Mér þykir vænt um, að glasið mitt er óbrotið", og flytur það fram í skemmu og lætur það á botninn á opnum stokk, sem stóð fram við þilið undir glugganum, sem enn var óbrotinn. En þegar lítil stund var liðin, kom glasið inn um baðstofugluggann ofan í steinana; gat þá konuskepnan ekki lengur fagnað yfir, að Framhald á bls. 30. 12 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.