Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 17
VETRARTÍZKAN
EFTIR GUÐRÍÐI
GÍSLADÓTTUR
Kápurnar eru aðallega þrenns konar: Þröng-
ar og barnalegar í sniðinu, næstum eins og
þær séu of þrongar yfir brjóstin. Oft eru
þær ekki alveg fullsíðar, þannig að erfitt er
að átta sig á, hvort um 7/8 lengdar jakka
sé að ræða eða næstum fullsíða kápu •—
örfáir cm. af kjólfaldinum koma niður
undan kápunni. Svo eru það bað-
sloppakápurnar, sem eru teknar laus-
lega saman með belti og eru oftast
með sjalkraga, en þriðja gerðin eru
kápur með slá eða gríðarstórum kraga,
sem fellur út á axlirnar. Skinnkrag-
arnir eru mjög háir, ná oft upp á
miðjar kinnar, og treflarnir
aldrei lengri og stærri en nú
og líka látnir standa upp á
andlit. Lausar hettur úr sama
efni og kápurnar, eða í öðr-
um lit, eru mikið not-
aðar og oftast skinn-
fóðraðar. Þessir háu
kragar, stóru treflar
og hettur eru kallað
„the muffled look“
eða dúðað útlit —
eins og verið væri að
leggja í ferðalag til
Norðurpólsins — og
ætti að geta hentað
okkur vel hér á ís-
landi. Dragtirnar eru
allar með síðum
jökkum, sumir þeirra
eru mjög síðir og yf-
irleitt þröngir og
beinir, og pilsin eru
að mestu slétt, en
langvinsælasta pilsið
núna er Bohanpilsið
frá Dior. Það er með
einu djúpu lokufalli
að framan. Pilsbuxur
Tveeddragt með BOHANpilsi frá Dior.
© © ®
VIKAN 17