Vikan - 18.10.1962, Page 22
Verðlaunagetraun
VIKUNNAR
Getraunin er hálfnuð, aðeins fimm hlutar eftir, og þá
má senda getraunaseðlana til Vikunnar. Getrauninni
lýkur í blaðinu 22. nóvember, en dregið verður mánuði
síðar, 23. desember, það er á Þorláksmessu.
Það verður sem sagt bærileg jólagjöf, sem einn ies-
andi Vikunnar fær að þessu sinni. Splunkunýr bíli, 1963
módel af NSU Prinz 4, einum bezta fimm manna bíl,
sem fáanlegur er.
Það er Fálkinn h.f., Laugavegi 24, sem hefur umboð
fyrir NSU Prinz. Bíllinn er smíðaður í Neckarsulm í
Vestur-Þýzkalandi og verksmiðjurnar eru meðal hinna
elztu í smíði vélknúinna farartækja.
Smábílarnir ná stöðugt auknum vinsældum og þegar
við berum eyðslu þeirra saman við eyðsiu stóru bílanna,
undrast maður, að nokkur skuli eiga stóran bíl, nema sá
sem ekki veit aura sinna tal. Smábílarnir hafa marga
aðra kosti. Vinnsla er mjög góð, því þeir eru léttir og auð-
velt er að aka þeim í þrengslum og mikilli umferð. NSU
Prinz sameinar alla kost'i smábíla, er lipur, kröftugur og
ótrúlega rúmgóður.
NSU PRINZ 4
ÞaS fer hvergi hnefastór blettur til ónýtis í Prinzinum. Vél-
in er mjög fyrirferðarlítil aftur í bílnum og þess vegna er
ekkert drifskaft. Öxlarnir ganga beint út frá vélinni. Á mynd-
inni hér að ofan sést bezt, hversu frábærlega vel allt rými
nýtist. Maður getur teygt úr fótunum, bæði í fram- og aftur-
sætum og bökin á framsætunum eru með stillanlegum halla.
Aftan við aftursætið er pláss fyrir töskur og annan farangur og
myndin sýnir hvað farangursplássið að framan rúmar.
22 VIKAN
ÓSKADRAUMUR
Á HJÓLUM