Vikan


Vikan - 18.10.1962, Qupperneq 39

Vikan - 18.10.1962, Qupperneq 39
hræring mín hundraðföld við það, sem endranær, t.d. augliti til auglits við vini eða góða menn. Þú veist að stóiska ró vantar ævinlega í orð- bragð mitt, veist ennfremur hvað ég er sangvinskur — vona að þú nem- ir mér ekki „stóryrðin“ ubel er þú gætir þessa. . . . “ Halldór Kiljan Laxness var grann- ur piltur, bjartur í andliti, langleit- ur, hökustór, ljóshærður, liðlegur maður og fjörmikill. Hann var til- gerðarmaður í klæðaburði og það hefur farið í vöxt með auknum efn- um. Hann virðist hégómlegur, en er það ekki, hann er aðeins listamað- ur af guðs náð. Hann er því skraut- gjarn, enda í samræmi við hinn hár- fína fegurðarsmekk hans. Hann gengur á rauðum og grænum skóm, marglitum skyrtum og á víst mikið safn hálsknýta. Hann hafði geysistór hornspangargleraugu á nefi, en lagði þau svo niður með öllu og kvað nóg að láta augun dansa til að halda góðri sjón, leikfimi augnanna, kall- aði hann það. Han tók mikið í nef- ið á yngri árum, en hætti því, neyt- ir ekki tóbaks. Hann er ekki eins ímyndunarveikur og Þórbergur Þórðarson, sem segja má að hangi ekki saman af öðru en kompleks- um, en samt sem áður þorir HKL ekki að fljúga, hann fer alltaf á milli landa með skipum. Þegar hann fór til Indlands, tók hann sér far með stórskipi frá Ameríku. Hann varð þess var, að fugl fylgdi skip- inu frá ströndum vesturheims — alla leiðina, og furðaði sig mjög á þessu ferðalagi. „Hvaða ferðalag var þetta á fuglinum, ha?“ — Bros í augum, furða — og geifla á vör ... Þessi fugl á eftir að koma í bók. Hann er hreinn í huga og hreinn í allri gerð. Margir rithöfundar halda því fram, að þeir skrifi bækur sín- ar margsinnis. HKL er engin undan- tekning hvað þetta snertir. Hann hefur alltaf farið vel með fé, er einn- ig reglumaður hvað það áhrærir, að vísu hefur hann eytt miklu, en að- eins til þess að afla sér reynslu. Honum þótti gaman að því að stað- setja bækur sínar: Kolviðarhóll og París, Sikiley og Flatey. . . . Hann reisti sér hús við lækinn í gljúfrinu. Það er hvítt, ekki íburð- armikið en stilhreint. Hann hefur látið hlaða þar mikinn og rammger- an grjótgarð og plantað trjám. Móskarðshnúkar gnæfa við himin í landnorðri. Þeir eru bjartir, eilíf gullin birta hnúkanna mætir aug- um skáldsins hvert sinn, sem hann lítur þá, sama draumþýða birtan og mætti augum hins spyrjandi sveins í æsku. HKL hefur víða farið og leitað langt yfir skammt eins og Steinar í Hlíðum undir Steinahlíð- um. Sannleikurinn og hreinleikinn eru heima, í jörð næturinnar og dögg morgunsins, á vitum fjalla- hringsins heima í sveitinni, sem gaf allt. Og þar er hægt að hvílast — og finna uppruna sinn. Þetta nemur maður í síðustu tveimur bókum Halldórs frá Lax- nesi.... Samt hefur hann nú keypt sér pjáturhlemma með rafmagnsperum, „gróðursett“ þá í brekkuná fyrir framan húsið. Hann kveikir á flóðljósunum og uppljómar hús sitt á kvöldum! ★ Þvoið hár yðar úr Sunsilk og sjáið mismuninn. Hár yðar fær nýjan glans og fegurð, sem endist í marga daga. Hár yðar verður svo við- ráðanlegt eftir Sunsilk hárþvott, svo heilbrigt, svo silkimjúkt. Það er staðreynd, að þér getiO haft svona fallegt hár, og það eftir aðeins einn hárþvott með Sunsilk. Sunsilk er framleitt fyrir yðuri Er hár yðar náttúrulegt? Sunsilk fegurðar- hárþvottur gefur hári yðar varanleg- an þokka — gerir það heilbrigt, glansandi, fallegt. Eða er hár yðar líflaust? Sunsilk eggja- og sítrónuhárþvottur mýkir hárið og gef- ur þvi varanlega fegurð. X-RfiH AtNc-ðlM Eða er það f jör- laust? Látið Sunsilk Tonic hleypa lífi i hár yðar, gera Það mjúkt og glans- andi. Sjáið hve viðráðanlegt hár yðar verður íijót- lega. Hafið þér flösu? Þér þurfið engin önnur flösumeðul. Sunsilk hárþvottur hreinsar hár yðar algjörlega og fjar- lægir flösuna. TIL AÐ FÁ MJÚKT, GLANSANDI, VIÐRÁÐANLEGT HÁR — NOTIÐ SUNSILK. Auga í heitu myrkri. Framhald af bls. 15. annað inn í hana, hitt inn í mig. Þá sneri hún sér að mér greip hina hönd mína, kreisti báðar og sagði: — Nú eru augun komin inn í okkur. Nú hættum við að sjá hvort annað. — Ég vaknaði, eins og af martröð, þaut fram úr rúminu og opnaði út á svalarnir. Þvoði mér vandlega úr köldu vatni. Það er gott, að fólk sér ekki á manni, hvað mann hefur dreymt, hugsaði ég á meðan ég var að þurrka mér fyrir framan speg- ilinn. Síðan settist ég út á svalirnar til þess að láta morgunloftið og skógarilminn hafa úr mér ónotin. Þetta var yndislegur morgunn. Sól- in skein á víkur og voga, blá glamp- andi sundin og eyjarnar. Ég ákvað að róa út í einhverja eyjuna síðar um daginn. Þá heyrði ég allt í einu kvenrödd á svölunum við hliðina á mér: — Ó, unðaslegt! Komdu, ástin, og bjóddu mér góðan daginn úti í sól- inni! Á sama andartaki veit ég, að það er hún. Ég hef heyrt þessa rödd áður. Það var í draumnum í nótt. Það eru hliðartjöld á svölunum og ógerningur að sjá á milli, en samt veit ég, að þetta er hún. Hann kem- ur og býður henni góðan dag. Þau tala þýzku. Ekkert tjald getur leynt því fyrir mér að þessi morgun- kveðja er veitt og þegin í ástríðu- þrungnum kossi. Svo hlær hún mjúkum, kurrandi hlátri í lágrödd: — Ó, ég hélt aldrei að lífið gæti verið svona yndislegt. Hélztu það? — Nei, ástin. — Ég elska, — undursamlegt! Ég er sú hin sæla, sem elskar... Meira heyrði ég ekki. Ég spratt á fætur með óþarflega miklu harki. Þetta var óþolandi. Ég gat ekki setið hér og hlustað eins og þjófur á innilegustu einkamál ókunnugs fólks. Ég var sama sem rekinn hér út af mínum eigin svöl- um! Skárri var það nú bölvuð fyrir- mununin! Mér fannst koldimmt inni í herberginu eftir sólskinið á svöl- unum, dimmt og óhugnanlegt. Ég lauk í snatri við að klæða mig. Ég verð hér ekki lengi, hugsaði ég á leiðinni niður stigana, geri senni- lega réttast í að fara strax á morg- un! Fann um leið, hvað þetta var hlægilega afglapalegt og snaraði lyklinum í Elias Saarinen með tals- verðum snúð. — Vona að þér hafið sofið vel, herra minn, sagði hann með ljúf- mannlegri hægð. — Óviðjafnanlega! Þetta er dá- samlegur staður! Perlan meðal ynd- VIKAN 89

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.