Vikan


Vikan - 15.11.1962, Blaðsíða 3

Vikan - 15.11.1962, Blaðsíða 3
VIKAN „Corvetta Sting Ray“ — yfirbyggingin úr trefjagleri. Glæsilegur sportbíll, þar sem „nýja línan“ kemur hvað greinilegast í Ijós. Bandoríshír tiílir draerð 196) Nýrra árgerða af bílum er hvarvetna beðið með mikilli eftirvæntingu, en þó hvergi eins og í Bandaríkjunum — þar er bílatízkan mönn- um eitthvað svipað og Parísartízkan konum í Evrópu. Þar eru nýjar línur í yfirbyggingu ræddar af sömu ákefð og fagmennsku og nýjar línur í kjólum og kápum hér, og bílablöðin lesin og skoðuð af ekki minni gaumgæfni en tízkublöðin í evrópskum löndum. Mörgu hefur að sjálfsögðu verið spáð um það, hvaða stefn- ur myndu helzt segja til sín í árgerðunum 1963, en nú þurfa menn ekki að spá lengur, því að sjón er sögu ríkari. Það fullyrða þeir fróðu bíltízkusérfræðingar að meginstefnan, sem fram kemur í þessari nýju árgerð, sé fólgin í hreinni og skarpari línum, og séu hinir margumræddu og mjög umdeildu krómlistar, sem mjög hafa einkennt bandaríska bíla og ekki alltaf á sem smekklegastan hátt frá evrópsku sjónarmiði, nú eingöngu notaðir til að undirstrika þetta, þannig að bílarnir Framhald á bls. 40. „Dodge Dart“ og „Valiant“, árgerð 1963, eru með sama hreyfli, en á útlitinu er meiri mun- ur en var 1962. Og þó báðir rennilegri. „Comet“ — velja má um 85 og 101 hestafla hreyfla, sex strokka. Öxullengdin er nú 114 þumlungar. . „Chevrolet" — stílhrein yfirbygging með skörp- um línum. Bíllinn virðist rennilegri en nokkru sinni fyrr. „Olds F-85“. — Grindin söm og í árgerð 1962, en dyrum, ljósaumbúnaði og höggslám breytt. „Oldsmobile Super 88“ — ef til vill lcemur nýja línan hvergi betur í ljós en í þessari ein- földu og stílhreinu yfirbyggingu. „Plymouth" — nýtt þak breytir mjög svipnum. Yfirbyggingin fyrirferðarmeiri, enda lengist hún um þrjá þumlunga. „Ramblers“ hefur og tekið talsverðum breyt- ingum. Gluggarnir eru bognir, línurnar hreinni. Útgefamli: Hilmir h.f. Ritstjóri: Gísli Sigurðssoji (ábm.). I’ranikviemdastjóri: Hilmár A. Kristjánsson. Ritstjórn og auglýsíngar: Skipholt 33. Simar: 35320, 35321, 35322, 35323. Pósthóif M9. Afgreiðsla og dreifíng: Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 36720. Dreífingarstjóri Óskar Karls- son. Verð í lausasölu kr. 20. Áskxift- arverð er 250 kr. ársþriðjungslega, greíðist fyrirfram. Prentun: Hiimir h.f.' Myndamót: Rafgraf h.t: Stúlkan á forsíðumyndinni heitir Guðrún Björns- dóttir og bíllinn heitir NSU Prinz, eins og þið vitið náttúrlega, þar sem þið hafið fylgzt með keppninni um hann. Við tókum myndina við dálítið óvenjulegt tækifæri — það er veriS að láta benzín á hann — en það þarf ekki að gera nema mjög sjaldan, eftir því sem hamingjusamir Prinz-eigendur segja okkur. 1 þessu blaði er síðasti hluti keppninnar. Fylgizt með — þér getið verið heppinn ekki síður en aðrir. í næsta blaði verður m.a.: 0 Hvernig búa piparsveinar? — VIKAN bregður sér í heim- sókn til ókvæntra karlmanna. — Grein og myndir. 0 Síðasta flug fuglmannsins. — Spennandi smásaga um mann, sem kastaði sér út úr ílugvél með vængi spennta á bakið. 0 Maður fær vont bragð í munninn af því að nefna þá. — Rætt við Sigurð frá Brún um ýmislegt í þjóðlífinu. 0 Frá saumavélum til bifreiða. — Opel-verksmiðjurnar eiga aldar afmæli á þessu ári og VIKAN rekur söguna frá upphafi. 0 79 af stöðinni. — Rabbað um kvikmyndina og þá gagnrýni, sem hún hefur fengið. 0 Lokaþáttur getraunarinnar um NSU Prinz. — Dregið verður á Þorláksmessu. 0 Framhaldssagan: Á eyðihjarni. 0 Kvennaopna, allt fyrir unga fólkið, plötur og dansmúsík o. fl. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.