Vikan


Vikan - 15.11.1962, Qupperneq 7

Vikan - 15.11.1962, Qupperneq 7
FETSÞYKK SNEIÐ ÞVERT YFIR AF VÆNUM HVAL VEGUR EINA SMÁLEST ... OG MIKIL ER ÞVÍ SKEPNAN ÖLL! LOFTUR GUÐMUNDSSON SKRAPP NORÐUR UND- IR ÍSRÖND MEÐ HVALVEIÐIBÁT I SUMAR SÉR TIL HRESSINGAR, OG HEFUR NU ORÐIÐ VIÐ ÞEIRRI BEIÐNI OKKAR AÐ SEGJA LESENDUM VIKUNNAR SITTHVAÐ ÚR ÞEIRRI FERÐ, OG AF HVALVEIÐUM HÉR VIÐ LAND Á LIÐNUM ÖLD- UM OG ÁRATUGUM. ÞJÓÐ OG HVALUR. Kannski verður. einhvern tíma skrifuð sú bók sem nefnist „Hval- veiði við ísland“, eða eitthvað því svipað, verður mér hugsað, þar sem ég stend úli við borðstokk á „Hval 7“, á siglingu út með ströndinni móts við Ferstiklu, að kvöldi þess 7. júlí. Það var hlæjalogn og bjart aftanskin, og við erum á leið á lival- veiðimiðin. Og það ætti að geta orðið bæði fróðleg bók og skemmtileg aflestr- ar, svo mjög sem hvalurinn Iiefur komið við sögu þjóðarinnar og sög- ur þær, sem með henni gerðust, ýmist bókstaflega sannar eða í tákn- rænum ski’ningi, og svo rík ítök hefur sú mikla skepna átt i þjóð- trúnni og jafnvel trú þjóðarinnar á iiðnum öldum. í sjálfu sér er þetta ekki neitt furðulegt. Landið liggur um það bil miðbiks á nyrðri hvalaslóðum, og hafið umhverfis það var krökt af hvölum, alft fram yfir aldamótin siðustu. I augum útlendra var þessi hvalagengd svo nátengd landinu, að spurning er, livort þeim kom fyrr í hug, Hekla eða hvalurinn, þegar á það var minnzt. Ein hvaltegundin dró meira að segja nafn af þvi, ís- lands sléttbakur - nú talinn aldauða, eins og geirfuglinn. Og varla sér maður svo gamlan uppdrátt af land- inu, hve vitlaus, sem hann kann að vera, að ekki geti að líta þar úti fyrir ströndum ferlíki nokkurt, sem hval skal tákna. Er hann þar oft á stærð við Reykjanes — hafi teiknaranum þótt ómaksins vert að taka Reykjanesið ineð á landa- bréfið — en þetta skipli ekki svo miklu máli, þar eð stærðarhlutföll Friðbert Elí Gíslason, skipstjóri og skytta á „Hval 7“, svipast um á búrhvalamiðum. Friðbert er vest- firðingur, alinn upp við sjó, fisk — og hval. Skrokkmikill er búrinn, og ganga boðaföllin út frá honum þótt dauð- ur sé, þegar hann er dreginn upp að súð hvalveiðibátsins. voru ekki svo þýðingarmikið atriði í kortagerð í þann tíð, og hvalur- inn var þarna fyrst og fremst tákn þess hve mjög hann setti svip sinn á hafið, úti fyrir ströndum lands- ins. Þá óð hvalurinn inn alla firði, ednkum á Vestfjörðum og norðan- lands. Löngum mun og Hvalfjörð- urinn hafa borið nafn með rentu hvað það snerti. Þegar Jón móður- afi minn fluttist frá Snorrastöðum í Laugardal og setti bú að Brekku á Hvalfjarðarströnd, var á stundum slík hvalavaða í firðinum, að menn þorðu ekki að róa til fiskjar svo dögum, og jafnvel vikum skipti. Ekki heyrði ég gamalt fólk þó geta þess í mínu ungdæmi, að hvalir yrðu þar valdir að sjóslysum — og ekki heldur að þeir hefðu verið veiddir. En ekki var laust við að enn eimdi þá eftir af þeirri trú, að sumir hvalir væru svo illa innrættir að þeir veitttust vísvitandi að bát- um og vildu granda þeim. Voru þeir nefndir einu nafni illhveli, en teg- und ekki nánar tilgreind; aftur á móti mun því hafa verið trúað, að langreyðurin væri svo hjartagóð og vinveitt manninum, að hún verði báta fyrir ásókn illhvelisins, ef hún var nærstödd og mátti því við koma. Annars þótti það helzta vörn- in, sem mönnum var tiltæk, að hafa öskukvartél í bátnum og varpa því að illhvelinu. Réðist það þá að kvartélinu og var ekki lengi að brjóta það í stafi — en lagði á flótta jafnskjótt og askan brákaði sjóinn, og var talið að það liræddist að askan settist í blástursholurnar og kæfði það. Þótt þetta kunni að þykja brosleg lijátrú nú, kemur það ein- kennilega heim við þá trú hinna fornu, fífldjörfu, grænlenzku veiði- manna, að þeir yrðu að lauga sig vandlega áður en þeir skriðu i sjó- belgi sina og svömluðu til atlögu við stórhvelin, þar eð þau flýðu öll óhreinindi. Það er ein sönnun þess hve hval- urinn var þjóðinni mikil kunnleika- skepna, að hún skipaði honum orð- fræðilega — eins og raunar fleiri lijóðir, sem lönd byggðu i Norður- höfum — í flokk með húsdýri, sem lienni var þarfast til lifsviðurværis. Ilelzt það enn í málinu, þótt ekki sé það eins a’gengt og fyrr, að talað sé urn hvalkýr, hvaltarfa, hvalkvíg- ur og hvalkálfa. Hins vegar hefur nauthvelið, sem ærði kýr með bauli sínu, svo að þær gengu í sjóinn, orðið að víkja fyrir aukinni þekk- ingu. Það var og ekki að undra þótt hvalurinn væri þjóðinni að vissu leyti kær. Þess eru mörg dæmi úr sögu hennar á liðnum öldum •— og sum ekki ýkja gömul — að hvalreki bjargaði fólki, jafnvel í heiium byggðar'ögum, frá hungurkvöl og dauða; Var þar að vísu um skiljan- leg orsakatengsl að ræða, því að bölvaldur sá er hungrinu olli, haf- ísinn, gerðist þá um leið sá bjarg- vættur, sem rak hvalinn upp í fjör- una eða króaði hann í vök. En senni- lega liafa menn ekki kært sig um að þakka þeim „forna fjanda“ eitt eða neitt, og fengu þvi hvalurinn og guðleg forsjón að skipta með sér þakklætinu. Kannski var það þess vegna, að á hann lagðist eins konar átrúnaður; að liann léti öðrum skepnum fremur stjórnast af guð- 'egri forsjón, að minnsta kosti hétu „kraftaskáldin" á hana að senda hval á fjörur þegar björg þvarr, og þóttu fá áheyrn. Það þótti og öruggt gæfumerki, ef formaður fann dauð- an hval í róðri, sér i lagi ef hann var nýtekinn við formennsku. Kem- ur þetta ljóst fram í sögu Snæbjarn- ar i Hergilsey, þar sein hann segir frá ]iví, að bæði langafi hans, Eggert Ólafsson, og sjálfur hann urðu fyrir þeirri lieppni, og reyndust báðir gæfumenn. Sama var og að segja um búanda, ef hval rak á fjörur hans — væri það eklci á fyrsta bú- Framhald á næstu síðu. Sigursveinn Þórðarson, stýrimaður á „Hval 7“ og' gamall hvalveiði- skipstjóri, sker blöðkuna af sporði búrans. Sigursveinn gengur frá skutlin- um í lilaupi fallbyssunnar. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.