Vikan


Vikan - 15.11.1962, Blaðsíða 24

Vikan - 15.11.1962, Blaðsíða 24
VIKU klúbburinn Klúbbblað fjTÍr börn og unglinga. Ritstjóri: Jón Pálsson. PRESLEY? Ég gat ekki að því gert, að mér datt Presley í hug, þeg- ar ég rakst á myndina af þess- um unga gítarleikara, sem fer svo ljómandi fagmannlega að þessu öllu saman. Og hver veit nema hér sé einmitt á ferðinni arftaki sjálfs Pres- leys. Kannski stendur allur heimurinn á öndinni eftir svo sem fimmtán ár út af þess- um unga, myndarlega manni og gítarnum hans. Það hefur svo sem margt ótrúlegra skeð. VILTU KOMA í „HUND OG KÖTT“ ? Nú skal ég kenna þér skemmtilegt tveggja manna spil, sem er prýði- leg dægradvöl og spennandi, því leikmenn eru stöðugt i hættu og verða að hugsa vel hvern leik, ef ekki á illa að fara. — Hvor leik- maður notar tölu, annar Ijósa en hinn dökka og þær eru í byrjutn leiks, staðsettar á svörtu horndoppunum K. og H. Hlutkesti ræður, hvor byrjar leikinn. Tölumar má flytja lárétt, lóðrétt eða á ská, eftir lín- unum frá einni doppu til annarrar, en aldrei má hlaupa yfir doppu. Sigur í leiknum er í því fólginn, að þvinga andstæðinginn á reit, sem maður getur sjálfur lent á, í næsta leik, — en það er ekki eins auð- velt og þú heldur. TOMSTUNDAÞÁTTUR VIKUNNAR 15. NÓV. Svörum er skipt í þrjá flokka: 1. Stopp-sagnir eða takmarkaðar sagnir með lágmarkshendi, sem leyfa opnara að segja pass, ef hann álítur það rétt — 6—10 punktar. 2. Könnunar-sagnir eða sagnir í öðrum lit en opnað er á. Þetta eru sagnir, sem kref jast svars. Opnari verður að segja að minnsta kosti einu sinni enn í hvert skipti, sem svarhöndin segir nýjan ]it (ef svar- höndin hefur ekki sagt pass í upphafi og ekki hefur verið strögglað í millihönd). Þessar svarsagnir geta þýtt spil frá 6 punktum upp í jafnvel 18 punkta. 3. Stökk-sagnir í svari krefjast skilyrðislausrar úttektar og má því hvorugur hætta að segja fyrr en úttektarsamningi er náð. Allar stökksagnir hafa að minnsta kosti opnunarstyrkleika (13 punkta) og krefj- ast úttektar nema svarhöndin hafi sagt pass í upphafi. Stoppsagnir eða takmarkaðar sagnir. A. Svar á einu grandi við opnun á einum spaða, einu hjarta eða einum tígli, gefur upp 6—10 háspils- punkta. B. Eitt grand hjá opnara eftir svarsögn hjá makker, gefur upp lágmarksopnun. C. Einföld hækkun á lit opnara hjá svarhendi gefur upp 7—10 punkta með góðum trompstuðningi (háspil + skipting). D. Ef annar hvor tvísegir lit sinn á lægsta sagnstigi. 24 VIKAN Sagt um æskuna: Við höfum áður birt stutta kafla um 10 og 11 ára börn, eftir amcríska lækninn og barnasálfræðinginn Arnold Gesell. Hér er til viðbótar, stuttur úrdráttur úr bók hans. 12 ÁRA BÖRNIN. Hrifnæm, nærgætin og umburðar- lynd — að vissu marki. Deyfðin, sem gerir svo mjög vart við sig hjá 11 ára börnunum, er nú að mestu horfin. Þau eru rösk, táp- mikil og athafnasöm. Fátt er þeim óviðkomandi og áhugi þeirra brenn- andi -j- ýmist með eða móti. Nú lesa þau allt sem þau komast yfir. Heima eru þau viðkunnanleg, nær- gætin og óvenju brjóstgóð og um- burðarlynd. Galla, sem þau finna í fari foreldranna, umbera þau með stökustu þolinmæði og að mestu án gagnrýni. — En í skólanum eru þau ekki eins viðráðanleg og áður. Nú fara þau að efast um hæfileika kennarans, bæði við kennslu og stjórn á nemendum. Tólf ára dreng- ir eru hugkvæmnustu verur jarð- arinnar, ef um það er að ræða, að stríða eða skaprauna ungum, reynslulitlum og taugaóstyrkum kennara. — Á þessum aldri eiga telpurnar oft við að stríða fyrstu ástarsorgirnar, en drengjunum stendur hjartanlega á sama um hitt kynið. Það eina, sem vekur áhuga þeirra, varðandi telpurnar er löng- unin til að rífa af þeim höfuðfötin, eða móðga þær á annan hátt. Tólf ára telpa, er að ná kven- legum þroska og óþægindum sem því fylgir, tekur hún með ró og stillingu, en það hefði hún tæpast gert, árinu yngri. Tólf ára drengir eru enn stór börn, en skoðanir þeirra á lífinu, eru þó harla ólíkar. — Bæði kynin hugsa mjög um mik- illeika Guðs — og smæð þeirra sjálfra. Þau eru sanfærð um, að Guð hjálpi þeim, ef þau t. d. hafa týnt peningum, eða gengur illa í próf- um — bara ef þau biðja hann nógu innilega. ★

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.