Vikan - 15.11.1962, Page 25
ii
4
'bUlPlOQP
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
____ Hrútsmerkiö (21. marz—21. apr.): Þessi vika
verður fremur tíðindalítil, en þó er naumast
hægt að segja, að hún verði leiðinleg — þvert
_______ á móti: þú munt njóta margra ánægjustunda,
einkum á kvöldin. Kona nokkur kemur tals-
vert við sögu þina í vikunni, en hún hverfur þó fljótt af
sjónarsviðinu. Talan 6 skiptir konur afar miklu.
Ncvutsmerkiö (22. apr.—21. maí); Þetta verð-
ur afar skemmtileg vika, ef þú reynir eitt-
hvað sjálfur til að gera hana skemmtilega. Þú
virðist þó nokkuð of sérhlífinn þessa dagana,
og gæti þessi sérhlífni þín bitnað dálítið illi-
lega á þér, og væri það vel, því að þú átt skilið að fá
smáskell. Föstudagurinn er dálítið varasamur.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Maður, sem
vill þér vel, verður til að koma þér í klipu óaf-
vitandi, en þú skalt ekki taka Það illa upp, þvi
að allt var þetta vel meint, og þótt ekki sé neitt
skemmtilegt að verða fyrir þessu, þá á eftir-
leikurinn eftir að verða skemmtilegur og þér mjög í hag.
Helgin verður óvenjuskemmtileg fyrir unga fólkið.
___; ) KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Þú verður
mikið á ferðinni í vikunni, og bendir margt til
þess að þú fáir upp i hendurnar verkefni, sem
þú ræður alls ekki við. Þú veizt eflaust sjálfur,
að þetta er þér ofviða, en reyndu strax að gera
þér ljóst, að það er allt annað en lítilmannlegt að viður-
kenna það. Heillatala 11.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú munt sinna
einu hugðarefni þín i rikum mæli í vikunni, en
líklega mun það bitna eitthvað á þínum nánustu.
Þú virðist vera einum of tillitslaus við þá, sem
vilja þér einmitt allt vel, og verður þú að reyna
að breyta til batnaðar, ef þú vilt ekki hafa verra af. Líkur
á óvæntum fjárgróða.
Meyjamnerkiö (24. ág.—23. sept.): Þessi vika
verður mikil happavika fyrir þig, og ekki sizt
ef þú ert milli tvítugs og þrítugs. Þú munt fara
á opinberan stað í vikunni, og Þótt lítið muni
bera á þér á þeim stað, mun þér allt annað en
gleymt, og líklega muntu ekki hafa neitt nema gott af
þeirri heimsókn. Heillalitur bláleitt.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Llklega verð-
ur einhver breyting á heimilishögum þínum í
vikunni. Þú munt verða potturinn og pannan i
öllum þessum breytingum. Kastaðu nú ekki til
þess höndunum. Þú munt lenda í miklum vanda
í vikunni, en þá verður þú að velja milli tveggja kosta, og
lízt þér á hvorugan í fyrstu.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.i: Þú hefur ekki
verið allt of hamingjusamur undanfarið, en nú
gerist eitthvað, sem verður til þess, að þú ferð að
líta bjartari augum á tilveruna, og er sannarlega
timi til kominn, því að þú átt sjálfur enga sök á
þínu mótlæti. Þú munt vinna talsvert á kvöldin, en nú átt
þú orðið skæðan keppinaut.
______ BogmannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.): Þú hefur
verið með eitthvert áform á prjónunum undan-
farið, en ekki látið verða af þvi að hrinda því í
framkvæmd, en ef þú ætlar þér að gera það,
verður það að gerast i vikunni, annars yrði það
um seinan. Það sem virðist saklaus lygi eins félaga þíns á
eftir að koma þér í nokkurn vanda.
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Þú virðist vera
orðinn allt of staðnaður í skoðunum undanfarið,
og það er eins og þú lokir eyrunum fyrir skoðun-
um annarra. Þegar þú lendir í samræðum eða
deilum, hlustar þú ekki á það sem náunginn
segir, heldur situr og mótar næstu setningu þína í hugan-
um. Vendu þig af þessu strax.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. febr.) Maður,
sem þú hefur lítil samskipti haft við til þessa,
þótt þú þekkir hann mæ.tavel af afspurn, kemur
ti} Þín og ber undir þig vandamál, sem þú gætir
ráðið fram úr fyrir hann, og það skaltu gera,
ef þú hefur nokkurn tíma til þess. Heillatala 5.
Fiskamerkiö (20. febr.—20. marz): Þessi vika
verður mjög svipuð síðustu viku, nema hvað
föstudagurinn verður að öllu leyti mjög frá-
brugðinn síðasta föstudegi. Þú færð mikinn á-
huga á einhverju, en sá áhugi dvínar fyrr en
búast mætti við. Láttu þetta nýja áhugamál þitt ekki kosta
nein peningaútgjöld. Heillatala 7.
3+
Slankbelti eða brjóstahaldari er undir-
fatnaður, sem þér kaupið ekki nema að
vel athuguðu máli. Lífstykkjavörur eru
það þýðingarmikill þáttur í klæðaburði
yðar, að nauðsynlegt er að velja þær
með fyllstu nákvæmni.
BiðjiÖ um
Kaníe^'s
og þér fáið það bezta.