Vikan


Vikan - 15.11.1962, Page 36

Vikan - 15.11.1962, Page 36
Blóðhefnd. Framhald af bls. 27. Malik var reiður, en einungis sjálf- um sér; þetta var fyllilega leyfi- legt samkvæmt hólmgöngulögun- um — lagvopn gegn lagvopni, skot- vopn gegn skotvopni, nánari voru •þau ákvæði ekki, og væri annar aðilinn svo forsjáll og kænn að verða sér úti um vopn sem betur dugði, mátti fjandinn hirða hinn. Nú var það Maliks eina von að komast í var bak við stóran stein innan sæmilegs skammbyssuskot- færis. En sú von hans varð að engu, þegar hann svipaðist um. Landa- mæraverðirnir höfðu rutt svæðið þarna, svo unnt væri að koma vél- byssunum við og enginn gæti vegið að þeim úr launsátri ef til átaka kæmi. Hann hefði átt að muna eft- ir þessu fyrr, en hann hafði ekki heldur vitað það fyrr, að Ahmed Khan var vopnaður riffli. Malik vissi að hann þurfti ekki að óttast að Ahmed hefði rangt við, hann mundi telja dyggilega upp að hundrað, eins og ákveðið hafði verið. Og það var lágur klettur þarna spölkorn frá, en hann var á hlutlausa svæðinu á milli landa- mæralínanna, og Malik átti því á hættu að verða kallaður skræfa, ef hann leitaði þar vars, því að allir Hvar er örkin hans Nóa? llngírú Yndisíríð Síðast þegar dregið var hlaut verðlaunin: Birna Rósantsdóttir, Ási, Þelamörk, EyjafirSi. Nú er það örkin hans Nóa, sem ungfrú Yndisfríð hefur falið í blaðinu. Kannski í einhverri myndinni. Það á ekki að vera mjög erfitt að finna hana og ung- frú Yndisfríð heitir góðum verð- launum: Stórum konfektkassa, sem auðvitað er frá Sælgætis- gerðinni Nói. Nafn Heimilisfang Örkin er á bls. Sími i. vissu að Ahmed mundi ekki beina þangað riffli sínum. Og Malik vissi að samíerðafólkið í bílnum mundi fylgjast vel með viðureign þeirra og frammistaða þeirra, hvors um sig, verða kærkomið umræðuefni heima fyrir. Ef hann flýði inn á hlutlaust svæði, yrði hann aðhlát- ursefni kvenna við hvern einasta þorpsbrunn áður en langt um liði. AHMED KHAN hafði talið upp að fimmtíu. Riffillinn lá við fæt- ur honum, skotbúinn og miðin vandlega stillt. Ahmed var sveittur í lófum, svo hann þurrkaði sér um hendurnar á buxnaskálmunum — því í ósköpunum tók vinurinn ekki til fótanna, heldur drattaðist þetta áfram og kókti í allar áttir, eins og marabústorkurinn, þegar hann var að svipast eftir álum í leðj- unni? Hjá þessu varð ekki komizt. Það hafði Ahmed Khan vitað, allt frá því er hann var smásnáði héima í kofanum, saug á sér putann og heyrði fullorðna fólkið ræða um blóðhefndina, sem hvíldi á fjöl- skyldu hans. í sjötíu ár höfðu þessar tvær fjölskyldur vegizt á — ellefu fallið af fjölskyldu Maliks, en tólf af fjölskyldu Khans, og þar sem þeir voru elztu synirnir, hvíldi blóðhefndin nú á þeim. Khan varð því að fella Malik, hvað sem það kostaði, annars mundi hann sjálfur falla fyrir vopni hans. En í nafni Allah — hvað gat gengið að Malik vini hans? Með þessu áframhaldi kæmist hann ekki svo langt undan að skotið gæti orðið frásagnarvert. Og Ahmed Khan taldi svo hárri röddu að vin- ur hans hlaut að heyra. „Fimmtíu og einn ... hlauptu beinasninn þinn, eða þykist þú ekki vita að ég er með riffil? Fimmtíu og tveir ... eða ætlarðu kannski að gera mér það til bölvunar, að neyða mig til að skjóta þig á skammarfæri, að öllum þessum hópi ásjáandi? Fimmtíu og þrír ... lengdu færið maður. Fimmtíu og fjórir ... skil- urðu ekki, að því lengra sem það verður, verður mér síður láð þótt ég hæfi þig ekki, eins og skuggsýnt er orðið?“ Það var bænarhreimur í röddinni og tárin streymdu nið- ur vanga hans, án þess að hann skammaðist sín nokkuð fyrir. „Fimmtíu og fimm ... mundu hvað þeir hafa kennt okkur í herþjón- ustunni ... að það sé engin skömm að flýja í var og spara þannig líf sitt svo að maður geti haldið barátt- unni áfram. Fimmtíu og ...“ í sömu svifum gerðist það, að Malik hrasaði um þyrnibrúsk og stakkst á höfuðið ofan í gamlan brunn. Steyptist að minnsta kosti fimmtíu fet, unz hann skall í vatn- ið með skelli og skvettum. Malik var ósyndur eins og yfir- leitt er um þessa fjalllendisbúa, og varð því skelfingu gripinn, þegar hann kom í vatnið; hóstaði og skyrpti og baðaði út öllum öngum, unz hann fann fyrir nægilega djúpa skoru í hringhleðslunni til þess að hann gæti náð þar handfestu, og var þá rétt svo að höfuð hans stóð upp úr. Hann starði upp fyrir sig og brunnopið var sem örlítið gat, þar sem sá rökkvaðan himin yfir og Malik bölvaði og ragnaði í ör- væntingu sinni. Hann vissi það að vísu, að Ahmed vinur hans mundi ekki skjóta hann þarna niðri í brunninum eins og rottu — en um leið bar honum heldur ekki nein skylda til að draga hann upp. Ahmed Khan gat því hæglega sett honum þann kost að gefast upp skil- yrðislaust og kyssa á iljar sér eða hann dræpist þarni niðri. Þar með yrði blóðhefndaskyldan úr sögunni, en eftir það yrði sérhver karlmað- ur af ætt Maliks að líta undan í hvert skipti sem hann mætti karl- manni af ætt Ahmeds, og öll Shahs- ættin mundi sett skör lægra en Khansættin um ár og aldir. Og Malik vissi það líka óslcöp vel, að enginn annar af samferðafólkinu dirfðist koma honum til bjargar, því að þá mundi sá hinn sami kalla yfir sig blóðhefnd Khans og draga ætt sína inn í átökin. NEI, þarna hlaut hann að drukkna og drepast, og það var von hans og bæn, að Akhbar bróðir hans, sem nú var tólf ára, reyndist honum meiri að viti og hreysti, þegar honum ykist aldur til hefnda. Hann stakk lausu hendinni undir kuflinn, og ekki tók þá betra við — hann hafði misst marghleypuna í fallinu, og gat því ekki einu sinni miðað henni á Ahmed, ef hann skyldi gerast sá afglapi að líta ofan í brunninn. Þá heyrði hann rödd berast nið- ur til sín, karlmannsrödd, sem hann bar kennsl á. „Skjóttu ekki, hrausti Pathani .. . það er ég, áætlunarbíl- stjórinn. Fjandmaður þinn býður þér kosti ...“ „Segðu honum að hann geti farið til fjandans með alla sína kosti,“ hvæsti Malik, sem vissi fyrirfram í hverju þeir mundu fólgnir. „Hann býðst til að ná í kaðal og draga þig upp úr brunninum, en þú veizt hvaða reglur gilda, og þú verður fyrst að sverja við skegg föður þíns og nafn móður þinnar og hin helgu bein Pir Ljazat frá Faqiri ...“ Og bílstjórinn bætti við í bænarrómi. „Þetta eru forlög, hrausti Pathani. Og enginn getur öskrað framan í þann, sem hefur örlög hans í hendi sér. Taktu kosti hans eins og skynsamur maður. Fjandmaður þinn er fullur góðvild- ar í þinn garð og grætur óheppni þína, en reglur eru reglur, og hann hlýtur að beygja sig fyrir þeim. Leyfðu honum að draga þig upp úr brunninum og þá getur þú farið leiðar þinnar í friði, til baka yfir landamærin." „Og geta svo aldrei framar litið upp á nokkurn mann af minni ætt?“ öskraði Malik. „Farðu vesæli hjól- böruþræll ... Farðu til þess, er sendi þig með slík smánarboð og leyfðu mér að deyja með fullri sæmd.“ KLUKKUSTUNDUM síðar, þeg- ar almyrkt var orðið af nótt, voru enn uppi ráðagerðir og háværar deilur inni í bílnum um hvað gera skyldi. Einhver stakk upp á því að gengið yrði frá kaðli í öruggri festingu við brunnbrúnina, og hon- um síðan rennt niður þegjandi og hljóðalaust; þá hefði Malik ekki hugmynd um hver stæði að björgun hans, og væri á valdi Allah hvort hann hagnýtti sér hana eða ekki. En þá var það — það var enginn kaðallinn. Bílstjórinn gerðist jafn- vel svo djarfur að ögra hættunni og lýsa með vasaljósi ofan í brunn- inn. Fékk hann ekki betur séð en að Malik væri nærri meðvitundar- laus, þar sem hann hékk á fingr- um annarrar handar í skorunni, með vitin ein upp úr vatninu. „Ef við gætum látið kaðal síga niður til hans og bundið hann undir hendur honum, þá gætum við dreg- ið hann upp án þess hann vissi einu sinni af því,“ sagði bílstjórinn. „Ef við bara hefðum kaðal ...“ „Og hver ætti að láta sig síga niður í brunninn til hans og binda kaaðlinn?“ spurði einn af farþeg- unum. „Þú?“ „Ég er bláfátækur maður, og verð að þræla fyrir brauði mínu,“ svar- aði bílstjórinn kuldalega. „Og þeg- ar allt kemur til alls, er þetta ekki annað en heimskulegt þvaður. Við getum ekki fengið kaðal fyrr en í næsta þorpi. Og þangað eru tutt- ugu mílur, svo hann yrði dauður áður.“ En þá var það að gömul og tann- laus kerling af kynþætti hinna ó- hreinu, sem fengið hafði að sitja uppi á þaki bílsins frá Mich Landi Khana, þorpinu þar sem svínun- um var slátrað, kom allt í einu til skjalanna. „Heimskingjar," þusaði hún. „Ætli það dygði ekki á við kaðal, ef þið rektuð vefjarhetti ykk- ar og sneruð úr þeim reipi, og hnýtt- uð við farangursböndin." Það var ekki svo vitlaust að mönnum fannst — en þá var bara þetta, hver ætti að láta sig síga niður ... Og þegar farið var að ræða það, hurfu margir af farþegunum út í myrkrið. „Þú,“ sagði bílstjórinn og sneri sér að kerlingunni. „Þar sem þú ert ekki einungis kvenmaður, heldur og af kynþætti hinna óhreinu, svo að þú mátt ekki einu sinni ferðast í bíl með rétttrúuðum, mundi eng- inn geta talið að þú kallaðir blóð- hefnd yfir þig eða þína.“ En þá varð kerling hin æfasta og skrækti eins og reiður api. „Hvaða þrek skyldi ég hafa til þess, eftir að ég hef orðið að hanga uppi á þakinu á þessum bölvuðum bíl- skrjóð þínum í öllu rykinu, klukku- stundum saman, og hef ekki einu sinni mátt fá mér hressingu á við- komustöðunum, svo að ég saurgaði ekki einhvern af þeim kynhreinu með skugga mínum ... Og hvers vegna skyldi ég fara að leggja mig í hættu? Hvað á ég þessum kyn- hreinu drottnurum upp að unna?“ „Maðurinn er að drukkna," mald- aði bílstjórinn í móinn. „Þá er það heimskingjans, sem á sök á því, að bjarga honum,“ skrækti kerling. „Já, en reglurnar ...“ sagði bíl- stjórinn, gersamlega ráðþrota. „Og fjandinn hafi allar ykkar reglur,“ hvæsti sú tannlausa, þrútin í framan af vonzku. „Og hvaða þýð- ingu mundi það hafa að bjarga mannræflinum? Hann yrði drepinn um leið og honum hefði verið bjarg- að ... samkvæmt reglunum ...“ Ahmed Kahn færði sig nær bíl- stjóranum. „Ég skal síga niður,“ sagði hann. „Og ég heiti því, að veita honum grið í tvær klukku- stundir, eftir að honum hefur ver- ið bjargað, en það er líka það al- lengsta, sem ég get gengið, án þess að flekka heiður ættar minnar.“ „Ekki spyr ég svo að því,“ hvæsti kerling. „Jú, það verður að halda honum hreinum, hvað sem það kost- ar. Og eftir tvær klukkustundir á svo að vökva jörðina blóði hans vegna, og mæðurnar að gráta ykk- ur, heimskingjana, sem þær ólu til einskis í kvöl sinni ... heimskingj- 36 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.