Vikan


Vikan - 15.11.1962, Side 39

Vikan - 15.11.1962, Side 39
Þér njótið vaxandi álits_ þegar þér notið Blá Gillette Extra rakblöð l5ér'getið verið vissir um óaðfinnanlegt útlit yðar, þegar þér notið Blá Gillette Extra blöð, undrablöðin, sem þér finnið ekki fyrir. Pó skeggrótin sé hörð eða húðin viðkvæm, þá finnið þér ekki fyrir blaðinu ef notuð eru Blá Gillette Extra. 5 blöð aðeins Kr. 20,50. Gillette er eina leiðin til sómasamlegs raksturs Gillette er skrásett vörumorkl. lengd á mettíma án nokkurra vopna eða verja, og er mælt, að honum hafi orðið lítið fyrir því. — Hvað er að segja um dýralífið í landi? — Á Hawaii er lítið um stærri dýr og alls engin óargadýr, en aft- ur á móti alveg urmull af skorkvik- indum og alls kyns pöddum, sem vaða uppi og valda óhemju miklum vandræðum og eyðileggingu. Það þarf sífellt að vera að eitra fyrir þessi kvikindi og láist manni það, þá er voðinn vís. Brauð, kökur og yfirleitt hvers kyns matvæli verður að geyma í geymsluhólfum eða ís- skápum, svo að skaðvaldarnir leggi þau ekki alveg undir sig og svo rammt kveður að ágangi þessara kvikinda, að jafnvel lokaðar niður- suðudósir eru ekki óhultar fyrir þeim. Sérstaklega fyrirferðarmikil er pöddutegimd, sem er nefnd „cock-roach“ og er stór og ógeðs- leg með afbrigðum. Þessi „cock- roach“ kemur fram úr skúmaskot- um, þegar tekur að rökkva, veður þá yfir allt, sem fyrir verður, og komist hún inn í hús stafar af henni mikil eyðilegging, hún skemmir og spillir matvælum og vílar ekki fyrir sér að leggja imdir sig húsin og húsbúnaðinn, fer til dæmis óhikað inn í stoppuð hús- gögn. Það kvikindi, sem veldur Hawaii- búum þó sennilega hvað mestu tjóni, er viðarpaddan víðfræga. Pöddur þessar éta heilu húsin, þeg- ar svo ber undir, þær bora sig inn í viiðnn, loka sig þar inni og grafa og grafa og geta jafnvel verið lengi við þessa þokkalegu iðju án þess nokkurn gruni neitt. Örlítið sag, sem þær skilja eftir sig, get- ur þó komið manni á sporið og bent á, að ekki sé allt með felldu. Til marks um ágang viðarpöddunnar má kannski segja frá konu nokkurri á Hawaii, sem einn góðan veðurdag var að þurrka af sjónvarpinu sínu í mesta grandaleysi, en vissi ekki fyrri til en höndin á henni gekk inn úr viðinum og var komin á bólakaf inn í sjónvarpstækið. Kom þá í ljós við nánari athugun, að viðarpöddur höfðu hreiðrað um sig inn í sjónvarpstæki konunnar og grafið það allt að innan, án þess að hún yrði þess vör og var tækið nú gjörsamlega ónýtt. Þrátt fyrir það, að pöddur þessar valda hinu mesta fjárhagstjóni hafa þær sér það til ágætis að leggjast ekki á fólk. Þó að þær kunni að bíta lítið eitt frá sér eða stinga, stafar yfirleitt lítil hætta af því og fáum verður meint af stung- um þeirra eða biti. ■—- Er ekki hægt að koma hér einhverjum vörnum við? — Jú, það er hægt að draga nokkuð úr tjóni því, sem af skor- dýrunum hlýzt með því að eitra vel fyrir þau. Viður er líka úðaður með einhvers konar eitri og húsin eru skoðuð alltaf reglulega einu sinni á ári, bönkuð í hólf og gólf til að hlera éftir því, hvort viður- inn sé holur að innan af völdum viðarpaddanna o. s. frv. Á síðustu árum hafa menn farið að byggja meira úr múrsteini en áður, og er mikil vörn í því í hinni stöðugu baráttu við skorkvikindin. — Það fara miklar sögur af hinu dásamlega gróðurríki á Hawaii. Hvað viljið þér segja okkur um það? ^ — Á Hawaii er allur gróður nátt- úrlega í samræmi við hið heita loftslag, sem þar ríkir. Skógar eru miklir og fallegir, og ber þar mest á hinum tígulegu pálmatrjám, sem eru sérstaklega áberandi meðfram ströndunum og eins meðfram göt- unum, en það er afar einkennileg sjón að sjá þau gnæfa þar upp úr mannhafinu og bera við nýtízku- leg húsin. Blómskrúð er geysimikið á Hawaii og mikil stund lögð þar á blómarækt. íbúar eyjanna eru alveg sérstaklega elskir að blómum og alls konar jurtum og hefur það verið svo frá fornu fari. Við flug- vellina og víðar eru til dæmis stór- ir blómamarkaðir, þar sem sölu- kerlingar bjóða skrautleg blóm og jurtir til sölu og er þar mikið verzl- að einkum af ferðafólki, sem heill- ast af litadýrðinni. Það eina, sem skyggir á ánægjuna af blómunum á Hawaii er sú kynlega staðreynd, að þau eru öll ilmvana og finnst alls engin angan af þeim, svo und- arlegt sem það nú er. — Hvernig í ósköpunum ætli standi á því? — Ég veit það ekki gjörla, en gæti trúað, að það stafaði af hinum mikla og stöðugt hita. — Hverjar eru helztu nytjajurtir eyjaskeggja? — Segja má, að rísinn og sykur- reyrinn séu mest áberandi. Sykur- reyrinn er mér einkum minnisstæð- ur sökum þess, að mér fundust að- farirnar við uppskeru hans svo ó- hemju skrítnar. Svo er nefnilega mál með vexti, að kveikt er í syk- urakrinum og hann brenndur, áður en sykrinum er safnað saman. Þeg- ar sykurreyrinn stendur svo í ljós- um loga og líður til jarðar eins og þétt drífa segja Hawaii-búar að ,,snjói“. Fyrst í stað koni mér þetta afar spánskt fyrir sjónir, en smám saman lærðist mér að líta á þetta sem sjálfsagðan hlut. •— Og leyfist mér þá að spyrja, hvers vegna þetta er svo „sjálfsagð- ur hlutur“? — Ja, þetta er fyrst og fremst nauðsynlegt til þess að eyða þeirri býsn af skordýrum, sem tekur sér bólfestu á sykurreyrnum, áður en sykurinn er unninn úr honum til manneldis. — Skemmist sykurinn ekki við þessar aðfarir? — Nei, hann er vel og örugglega geymdur inni í leggjunum og á ekki að þurfa að spillast við eldinn. -— Ur því að við erum komin út í þessa sálma, væri ekki úr vegi, að þér frædduð okkur lítið eitt um mataræði á Hawaii. Var það ekki frábrugðið því, sem þér höfðuð átt að venjast? — Jú, mataræðið og matseldin er með talsvert sérkennilegum hætti á Hawaii. Hrísgrjón og fisk- ur eru aðalfæðutegundir eyja- skeggja, og á hátíða- og tyllidög- um borða menn gjarnan svínakjöt. Til drykkjar er auðvitað mest not- VIKAN 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.