Vikan


Vikan - 15.11.1962, Side 42

Vikan - 15.11.1962, Side 42
ÚTGERÐARMENN — SKIPSTJÓRAR TAITO fiskinet og kaðlar eru framleidd af TAITO FISHERY CO. í Japan, sem er stærsta útgerðarfélag í heimi. Afkoma þess er eins og yðar er ekki hvað sízt undir veiðarfærum komin. — Það er því víst að framleiðsla þeirra á þessu sviði er hin fullkomnasta sem völ er á —einmitt byggt á reynslu og eftir kröfu sjálfra fiski- mannanna. ÞEGAR SLÍKAR VÖRUR ERU í BOÐI Á SAMKEPPNISVERÐI ÆTTI VALIÐ AÐ VERA EINFALT. og í næstu andrá herptust innyfli hans saman og hann seldi upp, tvisvar til þrisvar sinnum með stuttu millibili, fann smeðjubragðið í munni sér, andstyggilegra en nokkru sinni fyrr, en þó var eins og honum létti nokkuð og hugsanir hans og skynj- anir skýrðust. Og þó hann væri orð- inn nægilega hress til að halda aftur inn í kofann, dokaði hann við enn um stund. Sjö mánuðir, hugsaði hann ósjálf- rátt. Kannski var Burd Það lán, þeg- ar á allt var litið, að baráttu hans skyldi ljúka svo fljótt. Sjö mánuði höfðu þau öll barizt og nú voru þau að uppgjöf komin. Hvaða tilgangur var það líka að vera að reyna að 'draga fram lífið í landi, sem var eins nakið og dautt og tunglið sjálft. Hann var þess fullviss, að þessi skýra hugsun og hlutlausa mat á aðstæðunum, væru merki þess, að baráttu hans væri í þann veginn að Ijúka. Hann vissi að Surrey mundi taka þeim úrslitum með rólegum, ó- bifandi sjálfsaga, hvernig svo sem honum væri innanbrjósts, að Grea- torex og Prowse mundu hins vegar missa alla stjórn á sjálfum sér og ásaka þau hin, á milli þess sem þeir lægju í eins konar dvala. Og Alison ... Dahl hristi höfuðið. Það var óþol- andi hugsun, að Alison ætti eftir að þola allar þær þjáningar og niður- lægingu, sem ósigri þeirra hlaut að íylgja. Krapahrönglið marraði undir fót- um hans, þegar hann opnaði kofa- dyrnar og gekk inn, skjálfandi af kuldahrolli. „Allt f lagi með þig, Lincoln?" spurði Gratorex gamli uppi á bálki sinum. „Auðvitað," svaraði Dahl fálega. „Því ekki það?“ Prowse hló illkvittnislega. „Því ekki það, spyr hann ...“ Alison virti Dahl fyrir sér, og það brá fyrir hrukku yfir nefinu, þar sem brúnirnar mættust. „Viltu furu- nálaseyði?" spurði hún lágt. „Nei, þakka þér fyrir,“ svaraði Dahl. „Vertu ekki með þessa matvendni," sagði Prowse í sama tón og áður. „Þetta ilmandi furunálaseyði ... það eina, sem við höfum meir en nóg af. Raunar verð ég að játa, að heitt kjöt- seyði mundi kærkomin tilbreyting ti „Hvað mig sjálfan snertir," sagði Surrey áhugalaust, „þá er það hugs- unin um glóðarbakaðar kökur með hlynberjamauki, sem sækir fastast á mig ...“ „Notið þið hlynberjamauk á Bret- landi?“' spurði Alison. „Nei,“ svaraði hann. „Það var ekki fyrr eh að ég kom til Kanada, sem ég lærði að meta það hnossgæti. Helzt til seint, að mér fannst. Svipað þvi og þegar menn hafa ekki efni á þvi fyrr en á efri árum að gæða sér á ostrum.“ „Ég hef hvorugt bragðað," varð Alison að orði. Hún hafði gerzt fölari í vöngum síðustu dagana, og að sama skapi bar meir á freknunum. Það var eins og þær sætu utan á húðinni. „Hefurðu hvorki bragðað ostrur né hlyberjamauk?" spurði Surrey undrandi. Hún hristi höfuðið. Og Það var eins og einrauðir lokkarnir hefðu einnig glatað einhverju af sínu sér- stæða lífi. „Það væri nú víst annars ekki svo sérlega ljúffengt að éta Það hvað með öðru,“ varð Surrey að orði. „Ekki skyldi mér verða mikið fyrir því,“ tók Greatorex gamli til máls uppi á bálki sínum. „Ég gæti étið hvað sem væri. Allt nema þessi andskotans fjallagrös, skófir og hreindýramosa. Ég vildi óska að þessar neyðarbirgðir hefðu enzt, þótt ekki væri nema nokkrum dögum lengur." „Það er Alison að þakka, að þær þrutu ekki fyrir mánuðum síðan," sagði Surrey. „Þær eru þrotnar, og hvaða mun gerir það þá?“ spurði Prowse og var enn við sama heygarðshornið. Dahl mundi það ekki í svipinn, hvor þeirra það hafði verið, Prowse eða Grea- torex gamli, sem vildi éta neyðar- birgðirnar upp sem fyrst. Einkenni- legt hve hann var orðinn minnis- laus og átti erfitt með að átta sig á hlutunum. Hann varp þungt öndinni. „Mun- urinn er meðal annars sá,“ sagði hann og vó hvert orð af ótta við að hann gæti ekki tjáð hugsun sína nógu skýrt, „að okkur mundi líða mun verr nú, ef við hefðum etið upp neyðarbirgðirnar síðastliðinn mánuð, þegar við höfðum þó annað fyrir okkur að leggja, í stað þess að við lukum þeim ekki fyrr en í vik- unni sem leið, þegar við vorum mat- arlaus annars." Prowse lét undan síga. „Það er kannski eitthvað til í því,“ viður- kenndi hann. Dahl fann enn til krampaherpings- ins. Hann tók að jóðla á mjúku furu- limi; það var eins og það drægi á stundum nokkuð úr hungurkvölinni, en þó ekki nema í bili. Hann hafði þegar hert að sér beltið eins og hann frekast þoldi. Það veitti ekki heldur nema stundargrið. Eldurinn var brunninn að glóð. Dahl teygði út höndina eftir brenni- kubb, en varð að bregða hinni hend- inni undir hann, til að geta iyft honum. Og um leið veitti hann því athygli, að þetta var í fyrsta skiptið, sem hann varð að beita báðum hönd- um við það arna. Þetta olli honum þungum áhyggj- um. Með þessu áframhaldi, gat hæg- lega farið svo að hann yrði of mátt- farinn til að fara á veiðar. Þess yrði varla langt að bíða, að hann hefði ekki krafta til að halda byssunni stöðugri. Á morgun, hugsaði hann; ég verð að ná í kjöt á morgun. Kannski lika að maður finni loks eitthvað í snör- unni, héra, þó ekki væri annað. Svo- litla ögn af kjöti, sem nægja mundi til að hressa dálítið upp á kraftana. 1 tíu daga samfleytt hafði hann farið á veiðar, án þess að verða nokkurrar skepnu var; í tíu daga samíleytt hafði Prowse vitjað snaranna og ekkert í þeim fundið. Hann fann augu Alison hvila á sér, og það var eins og hún læsi hugs- anir hans. „Ég hef skafið allt hár af hrein- stökunni," sagði hún. „Ég steiki 42 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.