Vikan


Vikan - 15.11.1962, Qupperneq 43

Vikan - 15.11.1962, Qupperneq 43
hana á glóðinni í fyrramálið. Þú verður að fá einhverja næringu, áður en þú ferð á veiðar." „Áttu við að við eigum að leggja hreinstökuna okkur til munns?" spurði Greatorex. Alison hafði ekki augun af Dahl. „Já,“ svaraði hún rólega. „Og það verður ekki í fyrsta skiptið, sem það er gert í Þessu landi.“ „Skinnskækla í hádegisverð, gerið svo vel.“ Illkvittni Prowse leyhdi sér ekki frekar en fyrri daginn. „Það er næring i þvi,“ svaraði Alison stillilega. „Og það veitir fylli. En ef þú ert ekki svangur ...“ Þetta var i fyrsta skiptið, sem Dahl heyrði hana bregða fyrir sig háði. Það voru djúpir, dökkir baugar undir augum hennar. „En hvers vegna að steikja það á glóð?“ maldaði Prowse í móinn og lézt ekki heyra háð hennar. „Hvers vegna ekki að steikja það á pönnu?“ „Þú gerist fyndinn, Carl,“ mælti Dahl þurrlega. „Þetta er ekki nein fyndni. Ég held bara að mér fyndist Það öllu lystugra, ef það væri steikt á pönnu,“ sagði Prowse. Greatorex stundi. „Skófnamauk, beinamauk, hreinstaka og furunála- seyði .. . Hvern langar eiginlega til að svelta þannig í hel smám saman? Eg er ekki í neinum vafa um, að það yrði mun minni þjáning að bragða ekki neitt Svelta heilu hungri. Ein- hvers staðar hef ég lesið, að kvölin hverfi smám saman, ef maður sveltir sig algerlega. Maður missir smám saman allan mátt, sofnar og sefur, og veit ekki meir af sér. Það er þetta hálfa hungur, sem veldur mestum þjáningum." „Dásamleg tilhugsun," mælti Prowse meið beizkju. „Það vantar ekki, að þú elur með þér dásamlegar hugsanir, Hugh ...“ „Sofna, og vita ekki meir af sér,“ stundi Greatorex gamli. Framhald í næsta blaði. SNIÐAÞJÓNUSTA VIKUNNAR Það er alltaf gott að hafa tímann fyrir sér og vera ekki á síðustu stundu, þess vegna komum við með þessa fallegu barnakjóla og ball- kjóla núna. Þeir eru úr fallegu silki og bómullarefni með bróderuðum röndum með sama lit, bera sig mjög vel og eru mjög skemmtilegir í þvotti. Sniðið er einfalt og fallegt, í blússunni 2 stykki aftan og hneppt og þrjú stykki að framan, miðstykkið liggur þvert við hin, það er lítill rúnnaður kragi í tveim stykkjum og ermar sem koma sléttar í pilsið rykkt og slaufa að framan. Litir 1. gult, 2. blágrænt, 3. laxableikt, allt skærir litir. Þú getur auðveldlega saumað þá sjálf, því Sníðaþjónusta Vikunnar sníður þá fyrir þig, merkir fyrir saumum og sendir til þín í póstkröfu ásamt saumatilsögn. Verð kr. 190 á 3 og 5 ára, kr. 206 á 7 og 9 ára. Kr. 7.75 fyrir tvinna og tölur. Útfyllið pöntunarseðilinn með upplýsingum um stærð og lit og sendið Sníðaþjónustu Vikunnar ásamt kr. 100,00. Efnisprufur eru heimsendar gegn frímerktu umslagi með nafninu þínu og heimilisfangi. Allar frek- ari upplýsingar eru gefnar í síma 37503 á þriðjudögum og föstudögum milli 2 og 5. Kjólarnir eru til sýnis í Kjörgarði. Pöntunarseðillinn er á bls. 38. ' I ÍpSplilwp Gerð 4403-4 fáanlegar með 3 eða 4 hellum, glópípu eða steyptum (heilum), klukku og Ijósi, glóðarrist og hitaskúffu. Verð frá kr. 4.750.00 H. F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN Hufnarfirfíi - Stmur: r»0022, 00023 og 50322. - Rcykjitvík - Simi 10322 - Vcsturvcv VIKAN 43

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.