Vikan - 27.12.1962, Side 2
í fullri olvöru
i / n m\
i i i
Han„\e°f . aÞf *earf t*^^aherbergi
niannsins mín^
gamlarskvöld. nir með flugelda fyrir
Vaxtarverkir
borgarinnar
Það er gaman að eiga heima í
ungri og vaxandi borg eins og
Reykjavík. Það er ekki nema rúmt
ár, síðan Reykjavíkurbær varð
Reykjavíkurborg, en samt er þessi
borg orðin svo fullkomin og vel úr
garði gjör, að þegar gefið er fé til
fegrunar borginni, þarf hún ekki
að eyða því til þess að fullgera
sóðalegar götur, hylja moldarflög
eða til sorphreinsunar, heldur getur
kát og glöð varið þessu fé til þess
að kaupa afsteypur af listaverkum,
borgarbúum til augnayndis, þegar
þeir eiga leið um þá afskekktu staði,
sem hafa orðið fegrunarinnar að-
njótandi. Seinna er svo öðru fé var-
ið til þess að færa til aðrar afsteyp-
ur af listaverkum og setja þær þar
sem betur fer um þær.
Hver hefur ekki séð ósamræmið,
sem skapast þegar unglingar þrosk-
azt of brátt? Piltungar um tekt
verða langir og krangalegir, fæt-
urnir standa langt niður úr buxun-
um, hendurnar langt fram úr erm-
unum, jakkinn verður snollaður og
nær ekki nema rétt niður fyrir
mittið, og bólurnar springa út í öll-
um regnbogans litum á andlitunum.
Stúlkur á sama þroskaskeiði sleppa
heldur ekki við þetta ósamræmi, og
fyrst þessu er svona farið með ungl-
ingana, því skyldi þá hið mannlega
samfélag, sem heitir borg, sleppa
við þessa vaxtarverki? Listaverka-
kaupagleðinni má líkja við það, er
unglingsstúlka, sem hefði átt að fá
sér rækilegt þrifabað og leita lækn-
is vegna bóluvaxtar í andliti, verji
því fé, sem til þessa átti að fara,
til þess að kaupa sér skinnhúfu eða
hálsfesti.
Unglingurinn Reykjavíkurborg er
engin undantekning að því leyti,
að hann kýs heldur að kaupa sér
glys til sýndarmennsku en leita
sannleikans og setja hann í önd-
vegi. Þegar honum er gefin gjöf,
sem verja skal til þess að fegra
borgina, kýs hann heldur að kaupa
dýrar afsteypur af stórum lista-
verkum og setja þær upp í þeim
flögum, sem betur hefðu verið
grædd upp fyrir peningana, innan
um þær forargötur, sem betur hefðu
verið fullgerðar fyrir þetta fé, og
þar safna listaverkin því rusli og
þeim óþverra, sem betur hefði ver-
ið eytt fé til að losna við.
Og enn vantar unglinginn Reykja-
vikurborg jafn sjálfsagðar stofnanir
og almennings salerni. Það er að
vísu satt, í Bankastræti eru tvö
salerni, annað fyrir konur og hitt
fyrir karla, í Aðalstræti er hús, þar
sem konur geta skroppið afsíðis,
og í Grófinni er sóðaleg kompa fyr-
ir karlmenn, en hún er svo fráhrind-
andi, að flestir kjósa heldur að ganga
á bak við vörustafla á hafnarbakk-
anum.
Það væri gaman, ef einhver vís
maður vildi vera svo framtakssam-
ur að reikna út, hve gólfflötur al-
menningssalerna er mikill hundr-
aðshluti að flatarmáli Reykjavíkur,
og hve margir komast þar að í einu.
Framhald á bls. 43.