Vikan - 27.12.1962, Page 6
Skegg eða ekki skegg,
það er spumingin
Það er hverjum manni sívaxandi áhyggjuefni,
hvort hann eigi að láta skegg sitt vaxa eða ekki.
Vikan vill leggja lið sitt til að auðvelda
mönnum ákvörðun um þetta, og G. K. skýrir málið.
Það er kunnara en írá þurfi að segja, að sumir íslendingar eru algerlega skegg-
lausir, hvernig sem á því kann að standa. Maður freistast til að halda að þaið
sé svipað ástand hjá þeim í skeggmálum eins og Njáli forðum, sem aldrei gat
ræktað á sér stingandi strá, hvað sem hann bar á kjammana á sér, og hlaut
fyrir það háð og spott allra hugsandi manna og kvenna.
Það er illa gert að gera grín að karlmönnum, sem ekki geta safnað framan
í sig virðulegum gróðri, því það skapar hörmungarástand hjá viðkomandi, bæði
andlega og líkamlega. Ég get vel borið um þetta sjálfur, því ég er einn þeirra
ólánsömu manna, sem vita’ að það er tilgangslaust fyrir þá að reyna að Ýela
á sér andlitið með pelsverki. Ég hefi reynt þetta ótal sinnum, því mér er brýn
andleg nauðsyn á að hylja eins.mikið af andlitinu og hægt er. Mér hefur aldrei
tekizt að framkalla meira en 14 hár, og þau misjafnlega löng og mislit, allt
frá sólarlagsrauðu til últra-fjólublás með golsóttu ívafi. Einu sinni þraukaði
ég samt þar til fjögur lengstu hárin fóru að strjúkast ofan í súpuskeiðina, —
og þegar Creme de Marie Louise fer að kitla mann í nefinu, þá er ekki nema
um tvennt að velja, að raka aftur af sér þræðina —- eða borða með gafli og
greiðu.
Ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir víkingum, sem hafa svo gróðursælt
niðurandlit, að þeir týna tannburstanum sinum hvað eftir annað ef þeir
flækjast með hann nálægt kjálkanum. Það eru líka ótal kostir, sem fylgja
slíku háralagi, enda skapaði Guð manninn þannig útbúinn, og við skulum
ætla að hann hafi vitað hvað var manninum fyrir beztu. Líklega hefur enginn
einn maður þau ósköp á samvizkunni sem King sálugi C. Gillette, sem fann
upp rakvélina, það árans tól, og breytti þar með ásjónu milljóna manna um
víða veröld, græddi sjálfur milljónir á milljónir ofan - en lét samt sjálfum
sér vaxa hið fegursta skegg, sem er auglýst á hverjum einasta rakvélablaðs-
pakka frá fyrirtækinu.
Skegg hefur ótal kosti fram yfir ekkert skegg, eins og áður er tekið fram.
Aðalkosturinn fyrir nútímamanninn er fyrst og fremst fegurðarauki, því hvað
er fegurra en gróðursæll skeggvöxtur, sem blaktir fyrir vindi, og dillar sér
■fram og aftur í hvert sinn er eigandinn smellir tönnum utan um skrobitann?
Mustacho-araoh N-1 O-J Products Mustacho-araoh W-IO O-JFVoducts
jni1l|l-iaiíM HniB
Mustacho-qraph N-2 Q-J Products Mustacho-oraoh W-ll Q-JProducts
Mustacho-qraph N-3 Q-J Products Mustacho-graph W-12 Q-JProducts
Muslocho-qraph M-4 0»JProduet8
Mustacho-qroph N-5 Q-JProduct»
Mustocho-qraph N-6 Q-J Products