Vikan - 27.12.1962, Síða 23
v ,vi
'
: ||
: . • •' .
' j
: x:x x:::::::
\ . Á
* \
' ■
lll
ARAMOTAGETRAUN VIKUNNAR- VERÐLAUN:
Að þessu sinni leggjum við all nýstárlega getraun fyrir lesend ur í tilefni af áramótunum, og vonum við að allir hafi einhverja
ánægju af því að glíma við hana, þótt hún sé ekki erfið úrlausn ar. Getraunin er aðeins í þessu eina blaði, og lesendur eru beðn-
ir að fylla út svarseðilinn þegar í stað og senda til: Vikan, box 149 — og merkja umslagið „Hljómsveit.“
Á stóru myndinni hér að ofan sjáum við hljómsveit Svavars Gests, íklædda búningum úr þekktu leikriti. Þótt þeir séu að reyna
að „djamma“ sig upp í „húmor“, þá eru sveinarnir yfirleitt nokkuð skuggalegir, — en kann&ke eru þeir bara fæddir svona.
Fyrsta spurningin er: Úr hvaða leikriti eru búningamir?
Til hægri sjást þeir betur, blessaðir, og í sömu búningum, og nú er um að gera að sjá hvaða PERSÓNUR I LEIKNUM þeir
þykjast vera.
Nr. 1 sýnir Gunnar Pálsson bas&aleikara í gervi . . . ? Nr. 4 sýnir Magnús Ingimarsson píanóleikara og útsetjara í
Nr. 2 sýnir Ragnar Bjarnason söngvara í gervi . . . ? gervi . . . ?
Nr. 3 sýnir Reyni Jónasson harmoniku- og saxófónleikara Nr. 5 sýnir hljómsveitarstjórann, Svavar Gests í gervi . . . ?
í gervi . . . ? Nr. 6 sýnir Garðar Karlsson gítarleikara í gervi . . . ?
Og vinnnigurinn er allra hluta beztur: Sá, sem vinnur, fær alla hljómsveitina til umráða í heilt kvöld, — auðvitað endurgjalds-
Jaust, og getur látið hana leika fyrir sig hvar sem er og hvenær sem er (þó með samkomulagi við Svavar). En Svavar vill endi-
lega að við tökum það fram, að þeir vilji helzt fá að vinna með hljóðfærin, en verði ekki settir í að gera hreint eða grafa skurð.
Lausnir þurfa að hafa borizt Vikunni fyrir 15. janúar 1963.
HLJÓMSVEIT SVAVARS GESTS