Vikan - 27.12.1962, Page 42
una, fulla af fólki, hafði óljósan
grun um að öllum viðstöddum væri
eitthvað órótt innanbrjósts. Hann
renndi augunum hratt yfir hópinn
og skipaði þeim niður í huga sér
í stórum dráttum. Tveir rosknir
menn, þessi hermannlegi, sem hafði
talað áðan, og grannur maður, grá-
hærður, með samanherptar lög-
mannsvarir. Tveir yngri menn —
ákaflega ólíkir að öllu leyti. Annar
hafði yfirvararskegg, örlítið en ekki
áberandi rembilátur, og gat hann
sér til, að það gæti verið systur-
sonur hr. Gervase, sá í riddaralið-
inu. Hinn, með hárið greitt slétt
aftur, snotur útlits, en á full áber-
andi hátt, honum skipaði hann all-
mikið neðar í mannfélagsstiganum.
Svo var það smávaxin miðaldra
kona með nefklemmugler og gáfu-
leg augu og ung stúlka með eldrautt
hár.
Snell birtist nú aftur í dyrunum.
Framkoma hans óaðfinnanleg, en
undir grímu hins ópersónulega
bryta, mátti aftur sjá votta fyrir
mannlegri veru, sem kómizt hafði
úr jafnvægi.
„Afsakið, frú mín, skrifstofudyrn-
ar voru læstar.“
„Læstar?“
Þetta var karlmannsrödd — ung
og röskleg, og vottaði fyrir æsing í
henni. Það var snotri ungi maður-
inn með sléttgreidda hárið, sem
hafði talað. Hann hélt áfram, um
leið og hann gekk fram hröðum
skrefum.
„Á ég að fara og gá ... ?“
En ósköp rólega tók Hercule
Poirot nú að sér stjórnina. Hann
gerði það svo eðlilega, að engum
fannst það neitt einkennilegt, að
þessi ókunni maður, sem var ný-
kominn, skyldi taka þannig forust-
una.
„Komið,“ sagði hann. „Við skulum
fara til skrifstofunnar."
Hann hélt áfram og beindi máli
sínu til Snells:
„Viljið þér gera svo vel og ganga
á undan.“
Snell hlýddi. Poirot gekk fast á
eftir honum og allir hinir fylgdu
þeim eins og fjárhópur.
Snell gekk á undan gegnum stóra
forsalinn, fram hjá stóru stigabugð-
unni, fram hjá geysistórri stand-
klukku og veggskoti, þar sem stór
bjalla stóð og eftir mjóum gangi,
sem lá að skrifstofudyrunum.
Þegar þangað kom, gekk Poirot
fram fyrir Snell og tók lauslega í
handfangið. Það snerist, en dyrnar
opnuðust ekki. Poirot drap á dyrn-
ar, fyrst ósköp létt, síðan fastara
og fastara. Svo hætti hann skyndi-
lega, kraup á kné og lagði augað
að skráargatinu.
Hann reis hægt á fætur og litað-
ist um. Hann var harður á svip.
„Herrar mínir!“ mælti hann. „Það
verður að brjóta upp þessar dyr
þegar í stað!“
Ungu mennirnir tveir, sem báðir
voru háir og þrekvaxnir, réðust á
hurðina eftir fyrirsögn hans. Það
var ekki auðvelt verk. Hurðirnar í
Hamborough Close voru traust-
byggðar.
Að lokum lét þó læsingin undan
og hurðin opnaðist með braki og
brestum.
Andartak stóðu allir kyrrir í
þyrpingu í dyrunum og horfðu á
sjónina, sem við blasti fyrir innan.
Það logaði á ljósunum. Við vegginn
vinstra megin stóð stórt skrifborð,
mikill gripur úr hreinum rauðavið.
42 VIKAN
Allir utan liættu, suður gefur.
é K-7-3
V K-9-7-4
4 K-10
4 1 K-G.10-7
N
V A
S
4 A-G-4-2
% * A-8-2
4 > A-D-G-9
* A-D •
SAGNIRNAR:
Suður Vestur Norður Austur
2 grönd pass 6 grönd pass
7 grönd pass pass pass
aðrir en þér og ég.“
Enn datt engum í hug að efast
um myndugleika hans til að skipa
fyrir. Lögmaðurinn smalaði hinu
fólkinu út úr herberginu, og Poirot
og Hugo Trent voru einir eftir.
Hinn síðarnefndi starði á Poirot
og mælti:
„Segið mér annars — hver eruð
þér? Ég á við, að ég hef ekki
minnstu hugmynd um það. Hvaða
erindi eigið þér hingað?"
Poirot tók nafnspjald upp úr vasa
sínum og rétti honum.
Hugo Trent starði á það.
„Einka-leynilögreglumaður — ha?
Já, auðvitað, ég kannast við nafn-
ið ... En ég skil ekki ennþá til
hvers þér eruð kominn hingað.“
„Þér vissuð ekki að frændi yðar
— hann var frændi yðar, er ekki
svo?“
Hugo renndi augunum til dána
mannsins.
„Gamli maðurinn? Jú, jú, hann
var frændi minn.“
„Þér vissuð ekki að hann hafði
beðið mig að koma?“
Hugo hristi höfuðið og sagði sein-
lega:
„Ég hafði enga hugmynd um það.“
Framhald í næsta blaði.
Við skulum enda gamla árið á
því að æfa okkur í úrspilinu og
spilið hér að ofan ætti að vera ágæt
æfing.
Þú ert sagnhafi i sjö gröndum og
vestur spilar út hjartadrottningu.
Austur lætur lágt, eins og blindur,
og þú drepur á ásinn heima. Þú get-
ur talið tólf slagi; fjóra á lauf, fjóra
á tígul, tvo á hjarta og tvo á spaða.
Spaðagosinn skapar möguleika á
þrettánda slaginn. Athugaðu nú,
hvort þú sérð aðra möguleika á því
að ná þrettánda slagnum. Það getur
varla skaðað að taka lauf- og tígul-
I '
í stól hjá borðinu, ekki beint fyrir
framan það, heldur hliðhallt við
það, þannig að hann sneri baki fram
að dyrunum, sat stór maður. Hann
var hniginn út af í stólnum, svo
að höfuð og herðar héngu út af
hægri stólbríkinni og hægri hand-
leggur og hönd löfðu máttlaus nið-
ur. Á gólfteppinu beint fyrir neðan
lá lítil glansandi skammbyssa . ..
Öll heilbrot voru hér óþörf.
Myndin var skýr og ótvíræð. Hr.
Gervase Chevenix-Gore hafði skot-
ið sig.
ÞRIÐJI KAFLI.
Örfá andartök stóð hópurinn í
dyrunum hreyfingarlaus og starði á
þessa sjón. Þá gekk Poirot inn.
í sömu andrá mælti Hugo Trent
hásri röddu:
„Guð minn góður, gamli maður-
inn hefur skotið sig!“
Frá frú Chevenix-Gore heyrðist
eins og löng titrandi' stuna:
„Ó, Gervase-Gervase!"
Poirot leit yfir öxl sér og sagði
hvasst:
„Farið burt með frú Chevenix-
Gore. Hún getur ekkert gert hér.“
Roskni maðurinn hermannlegi
hlýddi.
„Komdu Vanda,“ sagði hann.
„Komdu vina mín. Þú getur ekkert
gert. Því er öllu lokið. Rut, komdu
og vertu hjá henni móður þinni.“
En Rut Chevenix-Gore hafði
troðizt inn í stofuna og stóð þétt
við hlið Poirots, þar sem hann
slagina, því spaðanum má alltaf
svína seinna.
Þegar þú tekur laufslagina, kem-
ur í ljós að vestur hefur ekki átt
nema tvö lauf og hann kastar tveim-
ur lághjörtum í tvo laufaslagina.
Þegar þú svo tekur tígulslagina,
kastar vestur spaða í þriðja tígul-
slaginn. Hvernig telur þú rétt að
spila spilið, að fengnum þessum
upplýsingum?
í næsta þætti munum við birta
allar hendur spilsins og athuga hver
sé réttasta spilamennskan.
beygði sig yfir hinn hræðilega á sig
komna mann í stólnum — þennan
risavaxna mann með víkinga-
skeggið.
„Eruð þér alveg viss um, að hann
sé dáinn?“ sagði hún lágri, spenntri
röddu, einkennilega þvingaðri og
óskýrri.
Poirot leit upp. Út úr andliti
stúlkunnar skein einhver geðshrær-
ing — sem hann gat ekki fyllilega
gert sér grein fyrir. Það var ekki
sorg — virtist fremur líkjast sam-
blandi af ótta og æsingi.
Litla konan með nefklemmugler-
in muldraði:
„Móðir yðar, góða mín — haldið
þér ekki að
Stúlkan með rauða hárið hrópaði
hárri, skrækri röddu:
„Svo það var þá ekki bíll eða
tappi úr kampavínsflösku! Það var
skot, sem við heyrðum ...“
Poirot sneri sér að þeim öllum.
„Einhver ykkar verður að ná sam-
bandi við lögregluna ...“ sagði
hann.
„Nei!“ hrópaði Rut Chevenix-
Gore ofsalega.
Roskni maðurinn með lögmanns-
andlitið sagði:
„Óhjákvæmilegt, er ég hræddur
um. Viljið þér sjá um það, Burr-
ows? Hugo.“
„Þér eruð Hugo Trent?“ mælti
Poirot við unga manninn með yfir-
skeggið. „Ég held, að það væri bezt,
að allir færu út úr þessu herbergi,
PÉTUR GAUTUR
Framhald af bls. 15.
inn upp á ný og sýndur þá 11 sinn-
um. Sýningar Leikfélagsins urðu
því alls 31. Jafnvel í Reykjavík og
við þau skilyrði, sem Iðnó hafði
upp á að bjóða kom það í ljós, að
Pétur Gautur átti greiðari aðgang
að hjörtum manna, en almennt
hafði verið vænzt.
Leikstjóri var Gerd Grieg. Mað-
ur hennar, skáldið Nordal Grieg,
dvaldist á fslandi um þessar mund-
ir og munu þeir Lárus Pálsson leik-
ari og hann hafa átt að því frum-
kvæði, að frúin kæmi til íslands og
tækist á hendur eitthvert verk í
þágu íslenzkrar leiklistar. Leik-
stjórn Gerd Grieg á verkinu var
frumleg og sjálfstæð. Hún braut
gamla rómantíska hefð og leiddi í
ljós hið innra „aktualitet" sem í
verkinu býr. Lárus Pálsson, sem
lék Pétur Gaut, skapaði þar eitt
eftirminnilegasta verk sitt á leik-
sviði. Gunnþórunn Halldórsdóttir
var og mjög eftirminnileg í hlut-
verki Ásu. Margir léku þarna stór-
vel aðrir, þó að hér skuli eigi rakið.
PÉTUR GAUTUR.
Leikstjóri Gerd Grieg.
Hlutverkaskrá á frumsýningu
31. marz 1944.
Pétur Gautur ..... Lárus Pálsson
Ása . . Gunnþórunn Halldórsdóttir
Grænklædda konan . Alda Möller
Dofrinn . . Brynjólfur Jóhannesson
Sólveig ....... Edda Bjarnadóttir
Hirðþurs . Haraldur Björnsson
Ingunn ........ Inga Þórðardóttir
Bóndinn á Heggstað . . Valur Gíslas.
Áslákur srrfiður /Kvar Kvaran
Móðir brúðgumans Auróra Halld.
Móðir Sólveigar Emilía Borg
Helga ..... Helga Brynjólfsdóttir
Vorbýlingur ........ Jón Aðils
Brúðguminn Lárus Ingólfsson
Beygurinn Tómas Hallgrímsson
Valdimar Helgason — Vilhelm
Norðfjörð — Anna Guðmundsdóttir
— Baldvin Halldórsson — Emilía
Jónasdóttir — Helga Möller —
Þóra Borg — Ingibjörg Steinsdóttir.