Vikan - 21.05.1964, Síða 5
TEDDY FERÐAJAKKINN
ORLON - ULL
vin. Það er oftast, að hjónabönd
eiga erfitt uppdráttar fyrstu tvö
— þrjú árin, vegna þeirra breyt-
inga, sem orðið hefur á lífi hjón-
anna, og vegna þess að ávallt
þarf töluverðan tíma til að sam-
lagast hvort öðru. Þetta gætu að-
eins verið slíkir byrjunarörðug-
leikar, sem aukast vegna áhuga
mannnsins þíns á vinnunni og
ýmissa erfiðleika, sem ávallt
fylgja upphafi hjónabands. Vittu
fyrst hvort þið komizt ekki yfir
þetta millibilsástand, áður en þú
gerir eitthvað, sem þú kannt að
sjá eftir síðar.
Réttast væri fyrir þig, að ræða
þetta hreinskilnislega við mann-
inn þinn, reyna að útskýra
þetta fyrir honum, og vita hvort
hann getur og vill ekki breyta
eitthvað til, svo að þú verðir
ánægðari.
Þess vegna verður mitt ráð í
þrem atriðum: 1) Hafðu engar
áhyggjur af baminu. 2) Bíddu
svolítið lengur, og vittu hvort
ekki lagast, og 3) Ræddu þetta
við góðan vin eða manninn þinn
sjálfan.
Gáfnaprófið...
Til póstsins í Vikunni!
Mig verkjar enn í hausinn eft-
ir þetta gáfnapróf. Þetta er ein-
ég hef komizt yfir. Eru ekki
fleiri tegundir af svona prófum?
Ef svo er þá vildi ég gjarna fá
að spreyta mig á fleirum.
J. H. S.
.... þetta er eitt af þessum
ómerkilegheitum, sem flætt hafa
I yfir heiminn frá Kananum. Þeir
eru vísir með að velja forstjóra
í fyrirtæki eftir svona prófi eins
og segir í greininni, en látum þá
bara um það. Svona próf gefur
ekki nokkra hugmynd um hæfi-
leika eða getu.
Kjartan.
Kæra Vika!
Því miður, ég reyndist tæplega
í meðallagi (og þó hélt ég að ég
væri svolítið betur). En mér
finnst við nánari umhugsun, að
þetta sé tóm stærðfræði, að þetta
sé bara fyrir reiknishausa og all-
ir vita að reikningshausar geta
verið nautheimskir á öðrum svið-
um.
Karítas B.
---------Gáðu betur að, Karítas.
Allar þær spurningar, sem bygg'j-
ast á notkun og kunnáttu í ís-
lenzku máli og sömuleiðis flest-
ar myndanna, hafa ekkert með
stærðfræði að gera.
Kæra Vika!
Nú hætti ég að kaupa Vikuna.
Þannig var mál með vexti, að
konan heimtaði, að ég tæki gáfna-
prófið og ekki nóg með það,
heldur stóð hún yfir mér með
klukkuna í hendinni og kom mér
alveg út úr stuði. Þið vitið, hvað
það er vont að láta standa svona
yfir sér og lesa allt jafnóðum,
sem maður skrifar. Það var eins
og lokaðist fyrir alla heilbrigða
hugsun og ég gat aðeins svarað
átta spurningum rétt. Það er víst
ansi lítilfjörleg greindarvísitala,
er það ekki? Að minnsta kosti
fannst konunni minni það og nú
er þetta látið klingja á mér í
tíma og ótíma. Sem sagt, mér
finnst nóg komið og ég kaupi
ekki þetta blað framar.
R.
Angelique
Angelique, hver er Angelique? Hún lifSi ó tímum Lúðvíks 14 og
ótti einkum heimci í Frakklandi, fegurri en nokkur önnur kona
samtíðarinnar, slungin og víðsjál í aðra röndina og lifði óendan-
leg ævintýri. Sagan af henni er metsölubók í Evrópu, næstum
sama hvar hún hefur komið út og nú getum við glatt ykkur með
því, lesendur góðir, að Vikan hefur fengið einkarétt fyrir ísland
á þessari frábæru sögu, sem að mörgu leyti hefur þótt minna á
sögurnar „Á hverfanda hveli" og „Sagan af Amber". Angelique
byrjar í Vikunni eftir örfáar vikur.
LÉTTUR - ÞÆGILEGUR
FALLEGT SNIÐ
TÍZKULITIR
Framleiddur úr svampklæddu efni (foam),
sem má auöveldlega þvo.
Tilvalin flík í bílinn.
Fæst í verzlunum um allt land.
Heildsölubirgðir
SOLIDO
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Bolholti 4 - Símar 18950 & 38280
ÁHUGAMÁL OKKAR HJÁ HVERFITÓNUM
ER VÖNDUÐ TÓNTÆKNI, SÍGILD TÓNLIST
0G GÓÐUR JAZZ.
HJÁ OKKUR FAIÐ ÞIÐ HINAR BEZTU
HLJÖMPLÖTUR.
HLJÖMPLÖTUVINIR ÚTI Á LANDI! SENDIÐ
OKKUR KORT OG LÁTIÐ OKKUR SENDA
YKKUR ÖKEYPIS LISTA YFIR HLJÖMPLÖT-
UR.
LÁTIÐ OKKUR VITA ÓSKIRNAR. VIÐ REYN-
UM AÐ FINNA PLÖTURNAR EÐA PANTA
ÞÆR SÉRSTAKLEGA.
huerritónar
HVERVISGÖTU 50, REYKJAVÍK,
SÍMI 22940.
’ran
VIKAN 21. tbl. — g