Vikan - 21.05.1964, Side 22
sagði Mr. Pimm ákveðinn.
með það.
— Þú kemst til Madrid. Klukk-
an 11,50 frá Nice með Air France.
Klukkan 4,30 frá Madrid. Þú
verður sennilega kominn eitt-
hvað skömmu fyrir 7 í kvöld.
■—- Og núna vantar hana 5 mín-
útur í 10. Carlo, sagði Mr. Pimm,
— inn í bílinn með þig og af
stað. Ég verð búinn að tala við
þá, þegar þú ert kominn á ieið-
arenda. Henri og Eddie verða að
koma strax. Ég hefi passana
þeirra tilbúna ásamt öðru því
sem þeir þurfa, og ég hitti þá
ásamt Julian á flugvellinum.
Julian sagði: — Augnablik,
hvað gengur eiginlega á?
— Svona, svona, þú færð mig
ekki ofan af þessu, ég hlusta ekki
á þig, ég tek alls ekki sönsum.
Við komum ekki nálægt þeim,
við höfum ekkert samband við
iögregluna, engar bannsettar
spurningar. Þá komast þeir að
öllu um okkur.
— Heyrðu mig, ég skil þig
ekki fyllilega.
-— Carlo getur læst Schmidt
inni fyrir okkur. Og svo, drengur
minn, mun allt leika í lyndi fyr-
ir okkur. Hún getur aldrei neit-
að því að giftast okkur. Hugs-
aðu bara um það.
— Danielle, um hvað er hann
að tala?
Mr. Pimm sagði: — Það vorum
við sem urðum til þess að Anna-
belle komst í krumlurnar á þess-
um þorpurum. Og það erum við
sem ætlum að bjarga henni.
Úti heyrðist í nokkrum fugl-
um, sem voru að baða sig í gos-
brunninum.
— Mr. Pimm, sagði Julian,
furðu lostinn, —• ég hefði aldrei
trúað þessu.
—• Jú, það veit sá sem allt veit,
sagði Mr. Pimm. Hann teygði úr
sér, smellti saman hælunum og
sagði rogginn: — Léttið akker-
um, af stað tökum stefnuna beint
á Tangier.
12. KAFLI.
Þegar hersingin var komin til
Tangier, gekk Mr. Pimm um
óþolinmóður meðan verið var að
ná í farangurinn. Hann var í hvít-
um ltéreftsfötum, með slaufu um
hálsinn að vanda og Panamahatt.
Hann hafði ímyndað sér að
Tangier væri hræðilegur staður,
hræðilegur, næstum um leið og
vélin settist á flugvöllinn við
veginn til Rabat. Og nú fékk
hann staðfestingu á ótta sínum.
Hann sveiflaði stafnum sínum í
áttina til nokkurra arabískra
burðarmanna og gekk á undan
þeim inn í flugstöðina. Þeim var
mjög í mun að fá einhvers stað-
ar inni, þar sem sást yfir höfn-
ina, en enn höfðu þeir ekki fund-
ið slíkan stað. Á leiðinni frá
Madrid hafði Mr. Pimm valið
tvö til þrjú gistihús, sem komu
til greina. Hann rétti Eddie far-
angursmiðana, sagði Julian og
Henri að burðarmennirnir hér
væru allir örgustu þjófar og
flýtti sér síðan í síma.
Eddie var búinn að finna fram
töskurnar þeirra tvær, þegar
Pimm kom til baka. Allt var
í lagi; beðið var eftir þeim á
gistihúsi sem hét Alhambra og
var rétt niðri við höfnina á
Avenue d'Espagne. Honum hafði
tekizt að ná í tvö samliggjandi
herbergi á efstu hæð, sjöundu,
en þeir urðu þó að skipta með
sér baðherberginu.
Julian sagði: — Hvernig lítur
þetta út, hefurðu nokkra hug-
mynd um það?
— Kæri vinur, mig hryllir við
tilhugsuninni, sagði Mr. Pimm.
— En hvað um það, við verðum
að gera okkur allt að góðu. Jæja
þá, af stað með okkur, af stað
með okkur, við þurfum að líta
í kringum okkur á höfninni áður
en dimmir. Henri, hvar er kíkir-
inn, hvað ertu búinn að gera við
— aha, þarna er hann. Komið
þið nú. Julian, þú getur náð í
leigubíl handa okkur.
Á meðan þeir biðu á gangstétt-
inni eftir leigubíl, rambaði múl-
asni, sem dró á eftir sér vagn
fullan af melónum fyrir bíl rétt
við flugstöðina. Bílstjórinn þeytti
hornið, og múlasninn hrein á
móti bílnum, en síðan forðaði
blessuð skepnan sér upp á gang-
stéttina og steig næstum því ofan
á Mr. Pimm. Mr. Pimm baðaði
út höndunum og hrópaði eins
hátt og hann mögulega gat. Eig-
andi asnans barði hann miskunn-
arlaust með priki Eddie og
Henri ýttu á skepnuna, síðan
skárust nokkrir áhorfendur í
leikinn, en asninn hélt áfram að
hrína. Þannig gekk leikurinn
fram og aftur í einni biðu, þar
til asninn og vagninn komust
aftur út á götuna, og melónurnar
dönsuðu í kjölfar vagnsins.
Til allrar hamingju birtist
leigubíl stuttu síðar og Julian
stökk út á götuna til þess að
tryggja sér hann. Eddie henti
töskunum inn í bílinn og tókst
að tosa Mr. Pimm inn á eftir
sér.
Alhambra gistihúsið reyndist
vera skrautleg bygging, sem var
máluð í hryllilegum grænbláum
lit. Þeim leizt sannarlega ekki
á blikuna, en það var ósköp að
sjá móttökuherbergið, þegar þeir
komu inn. Þarna úði allt og
grúði af tághúsgögnum, viftum
og rykugum pálmum í pottum.
Auglýsing var uppi á einum
veggnum, með mynd af nokkr-
um dansmeyjum, mjög fallegum,
mjög vingjarnlegum. Og svo var
afgreiðsluborð úti í einu horninu.
Allt var útatað í flugnaskít. Mr.
Pimm leit í kringum sig, hristi
höfuðið og tautaði, að ef hann
sæist á stað sem þessum, mundi
hann sennilega ekki lifa það af.
Feitur og sóðalegur maður kom
til þeirra, tók við vegabréfum
þeirra og klappaði síðan saman
höndunum. Brátt birtist vdka-
drengur, sem fór með þá upp á
7. hæð. Mr. Pimm leið hræðilega
á leiðinni upp í glamrandi lyft-
unni, sem minnti hann einna
helzt á búr.
Herbergi þeirra voru í fullu
samræmi við móttökusalinn.
Henri benti á brúnan blett á
teppinu á einu járnrimlarúminu.
— Hvað er þetta? sagði hann.
Julian sagði drungalega, eins
og til að þóknast Mr. Pimm: —
Það er sennilega blóð.
Mr. Pimm hvessti á hann aug-
un og fór til þess að líta á bað-
herbergið. Hann hörfaði undan
með lokuð augun og hélt báðum
handelggjum útréttum. — Hvers
vegna, sagði hann, — þurftu þeir
endilega að fara með Annabelle
hingað?
Eina huggunin var útsýnið úr
gluggunum, því að þeir sáu vel
yfir alla höfnina. Julian var sá
eini, sem kannaðist við bláu og
hvítu snekkjuna. Honum var
fenginn kíkirinn og síðan tók
hann að rannsaka höfnina. Þarna
hlutu að vera að minnsta kosti
40 eða 50 smásnekkjur af ólík-
ustu tegundum í aðallæginu,
Embarcadero. Úti við brimgarð-
inn voru álíka mörg skip. Eitt-
hvað hálfa aðra mílu handan
við litla vitann var langferða-
skip við akkeri.
Það var ólíklegt, að þeir
legðust í Embarcadero með
Annabelle um borð, hugsaði
Julian. Hann ætlaði fyrst að líta
í kringum sig annars staðar.
Hann byrjaði hjá vitanum og
renndi síðan augunum meðfram
brimgarðinum og skeytti ekkert
um þau skip, sem voru með segl
uppi. Það voru ekki 5 mínútur
liðnar áður en hann kom auga
á snekkjuna.
■— Mr. Pimm, sagði hann og
benti. Hann rétti Mr. Pimm kík-
inn. — Þarna fyrir handan, hún
liggur þarna næstum ein.
Mr. Pimm pírði í kíkinn og
sagði: — Drengur minn. Þú ert
viss um það, þetta gæti ekki ver-
ið annað skip?
— Ég man eftir mastrinu fyrir
framan brúna, og lagið á snekkj-
unni leynir sér ekki. Svo eru lit-
irnir alveg eins.
Henri og Eddi litu líka í kík-
inn.
Mr. Pimm sagði: — Julian,
hvað mundirðu halda að snekkj-
an lægi langt frá brimgarðinum?
— Það er ekki gott að segja.
Eddie, hvað heldur þú?
-—• Svona 200 metra, eitthvað
svoleiðis.
—■ Það væri auðvelt að synda
þangað, sagði Mr. Pimm. — Þið
gætuð allir þrír gengið út á brim-
garðinn. Hann leit á úrið sitt og
kíkti aftur í kíkinn. — Það verð-
ur kolniðamyrkur þarna úti,
sagði hann ánægður, — eftir að-
eins klukkutíma.
Annabelle náði varla andan-
um niðri í káetunni sinni allan
daginn, og skömmu eftir að nótt-
in var skollin á leyfðu þeir henni
að koma upp á þilfar til þess að
fá sér ferskt loft. Stern fór með
hana upp á efri þiljur, þar sem
hún hefði aldrei getað stokkið út-
byrðis. Hann sagði henni, að ef
hún reyndi að vekja á sér at-
hygli, skyldi hún aldeilis finna
fyrir aganum á skipinu og aldrei
skyldi henni hleypt út aftur.
Hún sat róleg um hríð. Fabio
og Hermann lágu á framdekkinu
og reyktu. Einhvers staðar á
brimgarðinum heyrðist Arabi
syngja vælulegt lag.
Hún þefaði út í loftið og sagði:
— Hvaða lykt er þetta utan af
sjónum?
— Það er lyktin af heimi
Múhameðstrúarmanna, sagði
Stern. — Kið steikt í olíu, úlf-
aldamýkja, döðlur og aldagamalt
ryk. Alls staðar þar sem ara-
biska er töluð er þessi sama lykt.
-—• Hvers vegna fóruð þið endi-
lega til Tangier?
—- Ég kann vel við andrúms-
loftið hér. Hérna má verzla með
allt. Gull, fölsuð vegabréf, lyf, og
auðvitað dansmeyjar á leið til
Suður-Ameríku . . .. Stern stóð
þögull stundarkorn og hlustaði.
-— Auk þess eru bankarnir ein-
staklega samvinnuþýðir, spyrja
engra spurninga og gefa engin
svör. Þetta eru skynsamlegar
verzlunaraðferðir, að gefa ekki
upp neinar upplýsingar um við-
skiptavinina.
Stern lagði við hlustirnar.
Stuttu síðar sagði hann lágt:
— Hermann.
— Já?
— Mér finnst ég tvisvar vera
búinn að heyra svolítið skvamp.
Hvað getur þetta verið?
-— Við heyrum ekkert.
— Hlustaðu.
Ekki heyrðist annað en til-
Framhald á bls. 43.
ERKIHERFOGINN 0G HR.PIMM
út
22 — VIKAN 21. tbl.