Vikan - 30.07.1964, Síða 8
Bílaprófun
VIKUNNAR
Naturana er vörumerki yfir heimsfræga lífstykkjavöru. Þessi gæða-
varaernúkomin á íslenzkan markað. Naturana-fyrirtækin eru stærst
sinnar tegundar í Evrópu, og er nú hafin framleiðsla hér á Islandi. Til
merkis um gæði Naturana-framleiðslu má geta þess, að hin vinsælu
Catarina-teyjubelti eru einnig framleidd hjá Naturana.
NATURANA-UMBOÐIÐ, LAUFÁSVEGI 16, SÍMI 18970
Leignflug um land ailt
Notiö fullkomnar vélar -
örugga og reynda flugmenn elzta
starfandi flugskóla landsins
SÍMI 10880 PÓSTHÓLF 4
Fiat
1100D
'mmg
■ iM®
Fiat-verksmiðjurnar í Torino á ftalíu eru með hinum stærstu
sinnar tegundar í heiminum og framleiða jöfnum höndum orrustu-
þotur og skip sem bíla. Hinar minni gerðir þeirra, svo sem Fiat
500 og Fiat 1100 eru hversmannsbílar á ítalíu og raunar vinsælir
um allan heim. Þar að auki eru svo milligerðirnar 1300 og 1500,
dýru gerðirnar 1800 og 2300 og nokkrar mismunandi sportútgáfur.
Hér á landi eru til færri eintök en efni standa til af gerðum
eins og 1100 og 1500, sem hvort um sig eru ágætir bílar, en hljóta
að hafa verið minna auglýstir en aðrar tegundir. Fiat 1100 D er með
sama útliti og verið hefur árum saman; bíllinn er fremur hár og
kantaður, gerður með það fyrir augum að rúma sem mest. Hann
er löglegur fyrir fimm, en þar sem breiddin er aðeins 145 cm,
þá leiðir af sjálfu sér, að ekki fer vel um fleiri en tvo í aftur-
sætinu. Aftur á móti er fótarými þar sæmilegt og eitthvað betra
en í Volkswagen, sem oft er miðað við, þegar rætt er um bíla
af þessari stærð.
Framsætin eru góð, færanleg langt fram og aftur og auk þess
verða bökin lögð alveg aftur, ef nauðsynlegt reynist að gista í
bílnum. Og þá fæst prýðilegt rúm fyrir tvo. Aftursætin eru mjög
mjúk en bakið fannst mér full bratt sem farþegasæti. Ökustaðan
er góð, stýrið fremur fyrirferðarlítið, en gersamlega laust við
slátt eða titring í holum. Handbremsan er á góðum stað á milli
framsætanna, bremsurnar léttar en þó prýðilega áhrifagóðar. Það
eru venjulegar borðabremsur. Mælaborðið er eins og við er að
búast í bíl, sem kostar 161 þúsund, það þykir nú ekki neitt til að
fjargviðrast útaf nú á dögum, þegar sæmilegur fimm manna bíll
er annarsvegar. Mælarnir eru í ávölum kassa, beint fram af stýr-
inu, ílangur hraðamælir, sem gott er að lesa af, en ljós fyrir
smurning og hleðslu. Ofan á mælaborðinu er nálega engin hilla,
en sæmilegt lokað hólf hægra megin og hilla undir öllu mæla-
borðinu.
Það eru fjórir gírar áfram á Fíat 1100 D. Þrír þeirra eru sam-
stilltir en í fyrsta gír verður að tvíkúpla eða stanza, til þess að
málin fái farsælan endi. Fyrsti gír er ef til vill full hægfara, en