Vikan


Vikan - 30.07.1964, Blaðsíða 41

Vikan - 30.07.1964, Blaðsíða 41
lítil kjaftaskjóða, og áður en ég vissi af fékk ég að heyra alla sólarsöguna og þegar ég skildi við hana var hún farin að gráta úr sér vímuna fram á borðið og spilin voru út um allt...“ Einnig ég hafði numið staðar og hlustaði á hana tortíma ótta mínum með kaldhæðinni vizku sinni. En mér létti ekki: það reis i mér önnur tilfinning, æðis- gengin og hömlulaus heift, sem enga fyrirgefningu þekkti, meðan hún talaði. Hún hlýtur að hafa séð hvernig mér leið, því hún tók allt í einu fram í fyrir sjálfri sér og sagði: „Maður skyldi ætla að þú værir fegin að fá að vita þetta, sem þú hafðir áhyggjur af, er ekkert annað en gamlar kerlingabækur.“ En það er ekki það; ég var að hugsa um Sheelu. Það var Sheela, sem var dáin vegna þess að hún hafði trúað á sannleik orða, sem voru ekki annað en marklaust raus í drukkinni og illfúsri kerl- ingu. Það sem við báðar höfðum trúað á, hvíldi enn yfir okkur eins og ský myrkra örlaga. „En þá hefur hún drepið hana!“ æpti ég af ástríðufullri heift. „Hún drap hana saklausa — að ástæðulausu —“ „O, stilltu þig stúlka,“ sagði Florrie af kaldri ró. „Ef einhver drap einhvern, þá var það Sheela, úr því hún var svo vitlaus að trúa á annað eins kjaftæði.“ Hún tók undir handlegg mér. „Þú hef- ur gengið úr skorðum við að sjá líkið,“ sagði hún, „það er það sem gengur að þér, telpa mín. Nú kemur þú með mér heim og við fáum okkur eina refskák.“ Ég reif mig lausa. Á þessu andartaki hefði ég helzt kosið að þeyta öllum þessum ódýra og þægilega vísdómi hennar beint framan í hana. Hún hlýtur að hafa séð hvað ég var reið, því hún yppti öxlum og gekk frá mér niður eftir götunni. Það var kyrrt og kalt og dimmt á götunni eftir að hún hafði yfir- gefið mig; það grillti í stjörnurn- ar á dökkbláum himninum. Sem snöggvast varð ég gripin skelf- ingu og datt í hug að kalla í Florrie, en gerði mér svo ljóst að það gerði ég ekki. Ég gekk ein niðureftir götunni og fór mér hægt; og vofa Sheelu tók í hönd mér til fylgdar við ljós óvilhallra stjadna. ENDIR. VALDA VÍRUSAR KRABBAMEINI? Framhald af bls. 21. maímánuði 1961, var gefið út bann við að nota bóluefni, sem mengað væri SV-40. Öll bóiusetning með varnar- lyfjum, sem þessi áhætta gat ver- ið samfara, var þar með stöðvuð, en lok sögunnar af SV-40 eru

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.