Vikan - 30.07.1964, Blaðsíða 22
í einni leiguíbúðinni í Blekinggötu
32 fæddist Greta Garbo, og þar ólst
hún upp. Húsið er skammt frá hin-
um illræmda Fyllbacken.
Hver er Garbo? Hún er
eins og skuggi, sem líður
framhjá á síðum dag-
blaðanna, ár eftir ár sama
skuggamyndin. Oft er
ekkert annað að sjá en
ógreitt hár, dökk sólgler-
augu, þreytulegt andlit,
hönd, sem bandar frá
sér. En öðru hverju birt-
ist fögur hálslína, háu
enni bregður fyrir, og
blóð okkar rennur hrað-
ar. í tuttugu ár var hún
fegursta kona heimsins,
og andlit hennar bótti
bera af öðrum mannleg-
um andlitum.
Greta Garbo er annað af tveim-
ur ævintýrum kvikmynda-
heimsins, hitt er Chaplin.
Það eru liðin 23 ár síðan
hún lék í síðustu myndinni..
Þá var hún 36 ára og dró
„ig af frjálsum vilja til baka frá
glæsilegasta frægðarferli, sem um
getur í sögu kvikmyndanna. Eng-
inn veit hvers vegna. Hin hlédræga
og leyndardómsfulla Garbo hefur
aldrei sagt neinum frá því.
En kvikmyndir hennar lifa og eru
sýndar fyrir fullu húsi um víða
veröld. Áhorfendur eru jafntöfrað-
ir af fegurð hennar og áður fyrr.
Ef til vill finna þeir svar við þeirri
ósvöruðu spurningu, hvað það hafi
verið sem gerði hana að slíku ævin-
týri?
Margir hafa árangurslaust reynt
að verjast áhrifum hennar og undar-
legum töfrum. Það hefur verið sagt
um hana, að hún vekji þrá og blíðu
karlmanna, en láti konurnar verða
sér meðvitandi um kvenleika sinn.
22 — VIKAN 31. tbl.
jólin hátíðleg heima það árið, eftir að hafa verið erlendis tvö undanfarin jól og kvalizt af heimþrá.
Greta var ekki jafnhlédræg á þessum árum og hún er nú.
VEvintýrið um