Vikan


Vikan - 30.07.1964, Blaðsíða 34

Vikan - 30.07.1964, Blaðsíða 34
BRIDGESTÓNE Það er enginn vafi á því, að BRIDGESTONE hjólbarðarnir eru þeir lang beztu sem hér hafa fengizt Þeir, sem einu sinni hafa reynt BRIDGESTONE kaupa þá aftur og ekkert annað. ÞETTA ER STAÐREYND. Einkaumboð á íslandi fyrir @ BRIDGESTONE TIRE UMBOÐS- & HEILDVERZLUN Laugavegi 1V8 — P.O. Box 338 — Sími 36840. langar leiðir að. Mér finnst það raunar furðulegt ef við getum rekið slíka verksmiðju með hagn- aði hér heima, þegar vitað er að þar sem hrámálmurinn er nægur, t. d. í Afríku, er líka til ótæm- andi og hræódýr orka, sem er hið svokallaða Saharagas. Það virð- ist ótæmandi orkuuppspretta, enda er það nú leitt í leiðslum alla leið til Ruhrhéraðsins í Þýzkalandi. En við höfum svo ótæmandi vatnsorku, sem ekkert er notuð, og gætum hæglega séð af tölu- verðu magni til meginlandsins, — án þess að skerða okkar nýt- ingarmöguleika hérna heima. Og auðvitað mundi vera hægt að gera þannig samninga við raf- magnskaupendur úti, að við ætt- um forgangsrétt á orkunni, ef þess væri þörf. Og svo er það með slíkt fyrirtæki eins og önnur svipuð, að það mundi komast í okkar eigin hendur eftir ákveðin tíma -— kannske 25—50 ár.“ „Þú átt við að þótt lagt yrði í þetta fyrirtæki, þá mundum við eiga næga orku hér heima? Að þetta yrði aðeins lítill hluti vatnsaflsins ... ?“ „Já. Við lauslega áætlun er miðað við ca. fjóra milljarða kílówattstunda á ári, sem er um helmingur þeirrar orku, sem má fá úr Þjórsá einni. En hafðu nú samband við hann Jakob Gísla- son, raforkumálastjóra, sem hef- ur athugað þetta mál, og getur auðvitað sagt þér mikið meira um tæknihliðina en ég ...“ Það kom í ljós að Jakob Gísla- son hafði flutt erindi um þetta mál á ráðstefnu íslenzkra verk- fræðinga árið 1962. í þessu er- indi sagði hann: „Nú orðið leikur enginn vafi á því, að tæknilega er framkvæm- anlegt að flytja raforku frá ís- landi til Skotlands um sæstreng, sem væri rúmlega 800 km langur, og síðan í loftlínu áfram suður um Skotland og England. Fyrir- fram er vitað, að þetta mun ekki svara kostnaði nema um sé að ræða flutning á miklu orkumagni og tæplega gæti verið um minna að ræða en hálfa milljón kw að afli og kringum 4 milljarða kwst á ári. Ef um svona mikið magn er að ræða, er vinnslukostnaður hér á landi sennilega kringum 15 aur- ar á kwst, flutningskostnaður með loftlínum á landi og sæ- streng milli landa og afriðil- og áriðilsstöð á hvorum enda ca. 10 aurar á kwst. eða samtals um 25 aurar. Vinnslukostnaður á raf- orkunni í Bretlandi mun vera 0,6—0,7 pence á hverja kwst. komna í aðalorkuveituna (the grid). Þarna gætu þá orðið 0,1— 0,2 pence afgangs til skipta milli íslands og Bretlands eða 5—10 aurar á hverja kwst. Sé um 4 milljarða kwst. á ári að ræða, er upphæðin, sem til skipta kemur

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.