Vikan - 27.01.1966, Qupperneq 6
^ANGASTER
CREAM TISSULAIR: Er næturkrem sem allar konur hafa beðið eftir.
CREAM TISSULAIR: Hefur alla eiginleika sem krafizt er af fyrsta flokks
næturkremi.
CREAM TISSULAIR: Mýkir húðina og minnkar hrukkur og drætti.
CREAM TISSULAIR: Gerir húðina matta og er ósýnilegt eftir að það
er borið á hörundið.
CREAM TISSULAIR: Gefur yndislega ferskan og frískandl ilm.
CREAM TISSULAIR: Smltar ekki og kemur ekki I veg fyrir að þir
kyssið barnið yðar góða nótt.
CREAM TISSULAIR: Er naturkrem sem eiginmenn mæla með.
Útsölustaðir í Reykjavík:
Tibrá, Gjafa- eg snyrtivörubúðin,
Mirra, Orion, Skenunuglugrfinn,
Holts Apotek, Tjarnarhárgrreiðslustofan.
gttt i
Útsölustaðir úti á landi:
Drífa, Akureyri. Verzlunin Asa, Keflavík.
Verzl. Ó. Jóhannsson, Patreksfirði.
Skúlagötu 26, Reykjavík. Sími 2167*.
FIÐLARINN.
Kaera Vika!
Þegar ég las um Ingimund
fiðlu, datt mér í hug að spyrja
þig. Hver var Ingimundur? Ég
var á síld á Siglufirði og það var
eftir 1920, ég man ekki hvaða
ár, þá var hann að vinna þar
eins og fleiri og hann átti bæði
fiðlu og harmoniku og hann spil-
aði á böllunum, svo voru dans-
leikir þá kallaðir en enginn spil-
aði eins og Ingimundur. Ég held
að hann hafi getað látið fólk
hlæja og gráta á víxl, bara eftir
því hvernig hann spilaði. Ein-
hver sagði að Ingimundur ætti
jörð austur á landi og einu sinni
þegar við vorum að vinna saman
spurði ég: „Er það satt l'ngi-
mundur að þú eigir jörð fyrir
austan“? Þá svaraði hann: ,,Ég
á allt ísland og allt ísland á
mig“. Svona voru svörin hans
Ingimundar, enginn sem vann
með okkur kynntist honum að
ráði. Hann vann stundum á við
tvo en stundum varla snerti hann
á verki nema til málamynda og
oft var hann eins og hann væri í
leiðslu og hvorki sá né heyrði
og þegar hann tók fiðluna eftir
þessi fálætisköst spilaði hann lög-
sem enginn kunni en þau lög
voru dásamleg. Ingimundur fór
um haustið eins og aðrir og síð-
an veit ég ekkert um hann, nema
einhver sagði mér að hann hefði
dáið 1926 að mig minnir, en oft
hef ég hugsað til Ingimundar
þegar þeir eru með músikina í
útvarpinu, enginn spilar eins vel
og hann spilaði. Viltu Vika mín
segja mér eitthvað um Ingimund.
Guð blessi hann, hann veitti
mörgum ánægjustund fyrir lítinn
eða engan pening og margt af
því fólki sem heyrði hann aldrei
spila hafði hann að háði og spotti.
Gamall síldarkarl af Sigló.
Kæra Vika!
Þökk fyrir alla skemmtun sem
þú færir mér.
Viltu nú gera svo vel að segja
mér hver var Ingimundur fiðla?
Amma sagði alltaf þegar við vor-
um að tala um góða tónlist: „Þið
hefðuð átt að heyra hann Ingi-
mund fiðlu spila, hann gat feng-
ið mann til þess að gleyma öllu
nema því sem hann spilaði. Aldr-
ei hefi ég heyrt slíka tónlist“.
Þetta sagði amma. Hún heyrði
Ingimund spila þegar hún var í
síld á Sigló þegar hún vav ung.
Amma vissi ekkert um Ingimund.
Nú er hún dáin og hann víst líka.
Hún amma heyrir hann kannske
spila í Himnaríki.
Hvernig er skriftin?
Rúna, 15 ára.
Ingimundur fiðla var bróðir
meistarans Jóhannesar Kjarvals.
Hann er löngu Iiðinn, en meðan
hann var og hét, ferðaðist hann
um landið og skemmti örugglega
fleirum en henni ömmu þinni
með fiðluleik sínum. Svo hélt
hann líka skemmtanir, meðal
annars í Reykjavík og hermdi
þá eftir söng fugla og ýmsum
náttúruhljóðum á fiðluna.
Við skulum vona að amma þín
njóti tónlistar hans, þar sem þau
eru núna.
Skriftin er sæmileg.
S-MÆLI ENN.
Póstur minn góður, veiztu ekki
hvað S-mæli er eiginlega?
Fyrst þú veizt það ekki þá er
bezt að ég segi þér það, en það
er þegar maður segir S, þá kem-
ur út th eða þ hljóð svo að þetta
kemur svolítið afkáralega út, en
ég þakka þér nú samt fyrir að
hafa svarað bréfinu og vonast nú
eftir betra svari.
SX.
Síðast, þegar ég vissi, hét þetta
að vera blestur á s-inu. En hvað
um það, snúðu þér til skólastjóra
Heyrnleysingjaskólans, Brands
Jónssonar, liann kvað vera lag-
inn að hjálpa fólki með mál-
galla.
ANGELIQUE.
Góði Póstur!
Nú þarf ég að skamma þig. Ég
skrifaði þér í haust og bað þig
að segja mér hvort nýja Angel-
iquemyndin sé betri eða verri
en sú gamla, og þú sagðir að sú
nýja væri betri. Nú er ég búin
að fara og ég verð að segja það,
að þó gamla myndin væri ekki
nógu góð þá var þó þessi hálfu
verri. Þama var varla heil brú í
nokkru eftir sögunni heldur öllu
brenglað til. Til að byrja með
vantaði svo margt úr bókinni en
í staðinn var allt fullt af atburð-
um sem ekki eru í sögunni sjálfri.
g VIKAN 4. tbl.