Vikan


Vikan - 27.01.1966, Blaðsíða 33

Vikan - 27.01.1966, Blaðsíða 33
klútnum sínum. — Það er asnalegt að vera að skæla, tautaði hún. — Hérna, taktu minn klút. Hann lagði handlegginn um axlir hennar og þrýsti henni varlega að sér. — Þú þarft ekki að gróta Antonia. Þú ættir að vera hamingiusöm. Ég elska þig, vissurðu það ekki? — Jú. — Og þú elskar mig, er það ekki? ' — Jú, snökkti Antonia. — En þetta er allt ómögulegt. Við höf- um aðeins þekkzt í þrjá daga, og það í París. Þú veizt hvað sagt er um París. Þú veizt að allt er svo töfrandi í París. — Töfrar eða ekki töfrar, ég elska þig samt. Ég hefði orðið ást- fanginn í þér þótt ég hefði hitt þig úti á miðjum Norðursjónum. Þú sérð það sjálf að það er engin ástæða fyrir þig að gráta. Ég fer á bóka- uppboðin og svo kem ég til London og sæki þig. Vertu nú kát. — Lofarðu því? spurði Antonia. — Ég lofa þv(. Antonia hafði alltaf treyst draum- um sínum, en kunningjar hennar gert gys að henni og Lisa systir hennar hélt því fram að þeir væru beinlínis hættulegir. En Antonia hafði aldrei hlustað á hana og nú vissi hún að Lisa hafði alls ekki á réttu að standa. — Ég elska þig Tom, sagði hún og henni fannst að Ijós Parísarborg- ar lýstu fyrir hana eina . . . Hún vaknaði fyrir allar aldir næsta morgun, og vegna þess að veðrið var svo gott gat hún alls ekki verið innan dyra. Þessvegna klæddi hún sig og ætlaði að fá sér hressandi göngu fyrir morgun- verð. Hún gekk í gegnum Luxen- bourg-garðinn og staldraði aðeins við hjá bekknum, þar sem hún hitti Tom fyrst. Eftir tvo tíma hugsaði hún, sé ég hann aftur? Hún hljóp við fót heim að hótelinu. Hóteleigandinn beið eftir henni, flögrandi vandræðalega um andyr- ið, eins og eggjasjúk hæna. — Skilaboð til yðar, fröken, kallaði hann um leið og hún kom inn úr dyrunum. — Skilaboð, mjög árlð- andi skilaboð, og hér var enginn sem vissi hvert þér höfðuð farið. Það var Ameríkani. — Hann varð að fara, fröken. Hann gat ekki beðið eftir yður. Hann þurfti að fara suður á bóg- inn í morgun. Til að sækja ein- hverjar bækur. Og herra Guidot hristi sig yfir asnaskap þessara Am- eríkana. — Hugsið þér yður, fröken, til að sækja bækur . . . — Já, já, ég skil það, en hvað sagði hann? — Hann sagðist ætla að koma eftir yður. Það var allt og sumt. — En hvenær? — Það veit ég ekki. Hann sagð- ist bara ætla að koma. En hann kom ekki. Hún beið all- an daginn, en það komu engin frekari skilaboð. Hún hringdi á hót- el hans, en þar var henni sagt að herra Bannister hefði farið snemma um morguninn og ekkert sagt hvenær hann kæmi aftur eða skilið eftir neitt heimilisfang. Hún beið allan næsta morgun, en heyrði ekk- ert frá honum. Svo fór hún að hugsa hvort hún ætti að bíða í nokkra daga, en hvarf strax frá því. Heil- brigð skynsemi sagði henni að það gæti hún ekki gert. Það voru bara kvenhetjur í skáldsögum sem gerðu slíkt og þvílíkt, en kvenhetjur í skáldsögum höfðu líka alltaf ótak- markaðan tíma og peninga. Það var eitthvað öðru máli að gegna með hana, Antoniu Harvey. Hún þurfti að vinna fyrir sér og borga húsaleigu á réttum tíma. Hún fór að hugsa um það, í fyrsta sinn á ævinni að það væri kannske ekki einhlýtt að treysta draumum . . . Veturinn hafði setzt snemma að í London. Bitur kuldinn beit hana í fæturna og himinninn var þung- búinn og kuldalegur. Lisa beið eft- ir henni við stöðvarpallinn og faðm- aði hana að sér, ilmandi eftir heim- sókn á snyrtistofu. — Toni, elskan, hvernig hefurðu haft það? Þú sagð- ir ekki neitt um það á póstkortun- um. Hvað átti hún að segja? Ég hitti Ameríkana, varð ástfangin í hon- um og svo yfirgaf hann mig? — Ertu frísk, elskan, þú lítur hálf- ræfilslega út. En það er allt í lagi, þú lagast þegar þú ert búin að hvíla þig eftir ferðina. Þú hefðir heldur átt að fljúga. Komdu nú, bíllinn bíður. Ég skal láta ná í dót- ið þitt. Lisa blaðraði úr einu í annað á leiðinni heim í íbúð hennar. — En segðu mér eitt, sagði hún, — hvað gerðirðu í París, Toni? — Ég fór á Louvre-safnið og skoð- aði Notre-Dame. — Er það allt og sumt? Elskan mín, ég var búin að segja þér það fyrirfram að þú hefðir enga ánægju af því að fara þetta. Þér hlýtur að hafa leiðzt alveg hræðilega allan þennan tíma. — Nei, mér leiddist ekki, '§g skemmti mér alveg prýðilega. — Segðu frá, segðu mér hvað [oú skemmtir þér við. Hana langaði ekkert til að segja Lisu frá neinu, en hún hafði engan annan að trúa fyrir leyndarmáli sínu. Þær töluðu saman allt kvötd- ið'og drukku ósköpin öll af kaffi. Dómur Lisu var ósköp einfaldur: — Ég hefi alltaf sagt að þú værir svefngengill, Toni. Hvernig held- urðu að þú komist áfram ( lífirtu, ef þú ert alltaf svlfandi í skýjum? Þú neyðist til að koma niður á jörð- ina. Elsku vina mln, þú hefur enga hugmynd um raunveruleikann. — Þetta var raunveruleiki, sagði Antonia þrjózkulega. — Hvernig má það vera? Hann fór, gerði hann það ekki? Toni þetta kemur oft fyrir, en þú veizt það ekki, þú hefur aldrei upplifað neitt sllkt áður. Þú hefur alltaf lif- að í draumi. Skínandi riddarar á hvítum fákum eru löngu úr móð. Nútíma kona notar Yardley fegrunarvörur Yardley fegrunarvörur eru fram- leiddar fyrir yður samkvæmt nýjustu tækni og vísindum, eftir margra ára rannsóknir og tjl- raunir í rannsóknarstofum Yardl- ey I London og New York. Yardley veit að þess er vænst af yður, sem nútíma konu, að þér lítið sem bezt út, án tillits til hvar þér eruð eða hvernig yður llður. Þess vegna býður Yardley yður aðeins hin réttu andlitsvötn og krem, hvernig svo sem húð yðar er og Yardley tízkul itirnir I varalitum, augnskuggum og make up, sem fara yður bezt. BIÐJID UM YARDLEY í NÝJUSTU PAKKNINGUNUM. Jnnflytjandi GLÓBUS h.f. VIKAN 4. tbl. tjg

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.