Vikan


Vikan - 10.03.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 10.03.1966, Blaðsíða 32
Nútíma kona notar Yardley fegrunarvörur Yardley fegrunarvörur eru fram- leiddar fyrir yður samkvaemt nýiustu tækni og vísindum, eftir margra ára rannsóknir og til- raunir i rannsóknarstofum Yardl- ey í London og New York. Yardley veit að þess er vænst af yður, sem nútíma konu, að þér lítið sem bezt út, án tillits til hvar þér eruð eða hvernig yður líður. Þess vegna býður Yardley yður aðeins hin réttu andlitsvötn og krem, hvernig svo sem húð yðar er og Yardley tízkulitirnir í varalitum, augnskuggum og make up, sem fara yður bezt. BIÐJIÐ UM YARDLEY í NÝJUSTU PAKKNINGUNUM. Innflytjandi GLÓBUS h.f. ■ ■ ■ _ STJD IRNÖSPA*^ ys Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú hefur valið þér nokkuð erfitt hlutverk og verð- ur því að nota krafta þína til hins ýtrasta. Þú fram- kvæmir ákveðna hugmynd þína sem væri ekki mjög vel séð ef þú létir uppskátt um hana við of marga. ww Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Maður £ fjölskyldutengslum við þig biður þig um aðstoð sem þú átt erfitt með að veita. Hlutir sem þú hefur mikinn áhuga fyrir ganga mjög vel. Þú ferð bráðlega í ferðalag. fl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní); Þér bjóðast óvenjumörg tækifæri á því sviði sem þú ert að þreifa fyrir þér á. Þú þarft að vera mjög varfærinn og sjálfstæður ef þú átt að velja rétt. Þú færð skemmtilega heimsókn. ffr Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú þarft að gera manni greiða sem getur haft ó- þægilegar bakverkanir fyrir þig. Þú lýkur ákveðnu verkefni sem þú hefur unnið sleitulaust að um langan tíma. Vertu heima á föstudagskvöld. w Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú kemst í óþægilega aðstöðu vegna þess að þú vilt ekki kannast við hluti sem gerzt hafa. Persóna sem þú ert lítið hrifin af sýnir þér nokkurn áhuga. Sýndu umhverfi þínu meiri tillitssemi. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):- Þú verður fyrir nokkrum töfum við störf þín en i stað þess að stökkva upp á nef þér yfir því skaltu nola tímann til að slaka á spennunni og búa þig undir ný átök. Þú gerir gömlum kunningja greiða. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Menn sem þú umgengst mikið bera fram vissar uppá- stungur við þig, og hvernig þú bregzt við mun hafa mikla þýðingu fyrir sjáfan þig. Reyndu að komast hjá öllum meiri háttar viðskiptum að sinni. ¥ Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Vinir þinir hafa orðið fyrir áfalli og þarfnast hjálp- ar þinnar og samúðar. Þú ert ekki ánægður með stöðu þína en skalt samt bíða rólegur um sinn. Þú verður fyrir nokkrum erfiðleikum á ferðalagi. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú átt mjög annrikt og flestir frítímar þinir fara í að leysa störf sem þú getur annars ekki annað vegna truflana i umhverfi þínu. Þú verður þátttakandi í fjölmennum og skemmtilegum mannfagnaði. £ SteingeitarmerHið (22. desember — 20. janúar); Nokkrir kunningjar þínir bjóða þér til hátiðahalda með sér. Það er ástæða íyrir þig að hugsa þig tvisvar um. Þú átt í nokkru basli með hlut sem þú hefur fengið að láni. Heillatala er þrír. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19 febrúar): Ungt fólk sem býr 1 nágrenni við þig leitar hjálp- ar þinnar. Þú hlýtur smáupphefð vegna sjaldgæfra málefna sem þú kannt nokkur skil á. Þú skalt fara út að skemmta þér á laugardagskvöld. Fiskamerkið (20. febrúar — 20 marz): Ung vinkona þín léttir af þér nokkru erfiði. Þú reynir eitthvað nýtt í vikunni sem þú verður mjög hrifinn af. Ættingi þinn fær skrýtna hugmynd sem þú verðúr að sansa hann til með. 02 VIKAN 10. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.