Vikan - 10.03.1966, Blaðsíða 7
og með þeim ósköpum fædd að
vilja vera dálítið þversum við
skoðanir annarra.
Nú langar mig að vita þitt álit.
Hvað á ég að gera?
„Ung á átjánda“.
Ég ráðlegg þér eindregið að
hætta ekki við þínar fyrri fyrir-
ætlanir. Farðu, eins og til stóð,
út í lönd, en þú þarft kannski
ekki endilega að vera þar í 10
mánuði, ef til vill væru 6 mán-
uðir nóg. Annars er það atriði,
sem þú átt auðveldara að gera
upp við þig eftir nokkurn tíma
erlendis. Eins og þú segir sjálf,
veiztu ekki hve ástin er mörg
stig hjá þér, og aðskilnaður um
tíma, ásamt því óvenjulega, sem
dvöl erlendis í fyrsta sinn býð-
ur upp á, getur auðveldlega orð-
ið til að hjálpa þér að glöggva
þig á því. Komistu að því, að
stigin séu fleiri en þú hélzt, get-
ur þú alltaf komið heim fyrr en
ætlað var, séu þau færri, getur
þú lengt tímann eða gert hreint
fyrir þínum dyrum. Þessi bið-
tími hjálpar vini þínum einnig
tii að átta sig, bæði á sjálfum
sér og þér, og sé hann góður
strákur og ástin mörg stig, verð-
ur biðtíminn honum ekki ofraun.
Þú ert mjög ung ennþá og átt
cftir að sjá þig töluvert um; verð-
ir þú kyrr heima er hætt við, að
tækifærum til þess fækki nokk-
uð, og skoðanir annarra eiga ekki
endilcga að ráða öllu fyrir þig
sjálfa. Sé hann eins góður strák-
ur og af er látið, hlýtur hann að
skilja þig og þín rök og verða
til samninga. — Og ef ástin reyn-
ist þola aðskilnaðinn, getur orð-
ið mjög skemmtilegur tími úr
þvl, ef hann kemur út til móts
við þig og þið ferðist eitthvað
um saman og skemmtið ykkur
ytra, í cndann á dvöl þinni þar.
VILL EKKI KYSSAST.
Elsku Vika mín!
Viltu nú reyna að hjálpa mér,
og það eins fljótt og hægt er!
Strákur sem ég kemst ekki hjá
að umgangast, er orðinn agalega
hrifinn af mér. Nú er hann ægi-
lega viðkvæmur og feiminn.
Einu sinni reyndi hann að kyssa
mig, en þegar ég var nú að hugsa
um hvað ég ætti að gera, kom
sem betur fer stelpa sem ég
þekki, svo það varð ekkert úr
þessu. Nú er ég ekkert hrifin
af stráknum. En ég er svo hrædd
um að særa hann. Hann er svo
agalega viðkvæmur.
Hvemig á ég Vika mín að neita
stráknum um koss, án þess að
særa hann?
Ekki snúa útúr. PLEASE!
P.S. Hvernig er skriftin?
„Greyið“.
Ég bar þetta undir unga stúlku,
sem sagði stutt og laggott: „Hún
verður bara að vera töff og lýsa
frati á drenginn"! Það hefur hins
vegar þann ágalla, að með því
myndirðu særa hann, og það viltu
bersýnilega ekki. Þú getur nátt-
úrlega reynt að koma því þann-
ig fyrir, að þú þurfir ekki að
vera með honum einslega, en ef
það reynir of mikið á þig, er
ekki um annað að ræða en segja
honum hreinlega, að þig langi
ekki að kyssast með honum, því
miður. Hann verður þá að taka
því eins og hann vill, en ef þú
reynir að gera þetta hlýlega og
ekki eins og þú sért að sparka
í rassinn á honum, ætti hann
ekki að særast holund. Og ein-
hvem veginn hefur kvenfólk ein-
stakt lagt á að særa EKKI, ef
það vill það við hafa, án þess að
það þýði sama og undanlát.
Skriftin er grófgerð og ójöfn, en
auðlæsileg.
SNÖGGT t HNAKKANUM,
LOÐIÐ t VÖNGUNUM,
IDDA BLÍANTINN.
NILFISK
verndar gólfteppin -
þvl að hún hefur neegilegt sogafl og afburða
teppasogstykki, sem rennur mjúklega yflr
teppin, kemst undir lægstu húsgögn og
DJWPHREINSAR jafnvel þykkustu teppi full-
kömiega, þ.e. nser upp sandi, steinkornum,
glersalla og öðrum grófum óhreinindum, sem
berast inn, setjast djúpt ( teppin, renna til,
þegar gengið er 6 þeim, sarga undirvefnað-
inn og slfta þannig teppunum ótrúlega fljótt.
NILFISK slitur alls ekki teppunum, þar sem
hún hvorki burstar né bankar, en hreinsar
aðeins með rétt gerðu sogstykki og nægilegu
sogafli.
hreinsar hátt og lágt -
þvi henni fylgja fleiri og betri sog-
stykki, sem n6 til ryksins, hvar sem
það sezt, fró gólfi til lofts, og auka-
lega fóst bónkústur, hárþurrka,
málningarsprauta, fatabursti o.m.fl.
þægllegrl -
þvi hún hefur stillanlegt sogafl, hljóðan gang,
hentuga áhaldahillu, létta, lipra og sterka
slöngu, gúmmfstuðara og gúmmihjólavagn, sem
„eltir" vel, en hægt er að taka undan, t.d. í
stigum.
hreinlegri -
því tæmingin er 100% hreinleg og auðveld,
þar sem nota má jöfnum höndum tvo hreinleg-
ustu rykgeyma, sem þekkjast i ryksugum málm-
fötu eða pappírspoka.
traustari —
þvi vandaðra tæki fæst ekki — það vita þær,
sem eiga NILFISK — og jafnvel langömmur, sem
fengu hana fyrir mörgum áratugum og nota
hana enn, geta ennþá fengið alla varahlutl 6
stundinni, þvi þá höfum við og önnumst vKS-
gerðir á eigln verkstæði. Gömlu NILFISK ryk-
sugurnar voru góðar, en þær nýju eru ennþá
betri.
NILFISK HEIMSINS BEZTA RYKSUGA!
O.KORMERIÍPHA1SE1I1 F
SÍMI 2-44-20 - SUÐURGATA 10 - REYKJAVÍK
Undirrit. óskar að fá sendan NILFiSK myrtdalista rneð Upptý»In(fUtn
um verð og grölðsluskilmóla.
Nafn: ...................................................................
Heimili: ............................. .
Tll: FÖNIX S.F. Pawhólf T42I, RóykjaVTk.
V-I0
VIKAN 10. tl)l. J